Lögreglan

Sagður hafa viljað lögreglubúning fyrir skotárás
Annar mannanna sem ákærður er fyrir tilraun til hryðjuverka er sagður hafa reynt að nálgast lögreglufatnað og lögregluskilríki, til að villa um fyrir fólki í tengslum við skotárás. Lögregla segir mennina tvo hafa rætt verknaðaraðferðir þekktra hryðjuverkamanna. Hálfsjálfvirkir rifflar á borð við AK-47 og AR-15 voru gerðir upptækir, auk skotfæra og íhluta í þrívíddarprentaðar byssur.

Kynferðisofbeldi verður ekki liðið
Eitt af mínum fyrstu verkum sem dómsmálaráðherra var að fela ríkislögreglustjóra að leiða markvissar aðgerðir um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi.

Lögreglan fær streymi frá Reynisfjöru
Uppsetningu viðvörunar- og upplýsingaskilta í Reynisfjöru er lokið og búið er að koma fyrir löggæslumyndavélam á mastri í fjörukambinum. Þaðan er myndum streymt á varðstöfu lögreglunnar á Selfossi.

Hyggjast bregðast við ofbeldi meðal barna
Mosfellsbær, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ undirrituðu síðastliðinn föstudag viljayfirlýsingu um samstarf vegna barna í viðkvæmri stöðu. Brugðist verður við auknu og alvarlegra ofbeldi meðal barna með þverfaglegu samstarfi sem ætlað er að draga úr líkum á ofbeldisbrotum og stuðla að farsæld fyrir börn í viðkvæmri stöðu í Mosfellsbæ.

Segir ákæruna tilraun til að réttlæta frumhlaup lögreglunnar
Lögmaður annars þeirra sem hefur verið ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka segir ákæruvaldið leggja líf tveggja ungra manna í rúst til að réttlæta frumhlaup lögreglunnar. Þetta er í fyrsta sinn í Íslandssögunni sem ákært er fyrir hryðjuverkabrot.

Hulda Elsa aðstoðarlögreglustjóri komin í leyfi frá störfum
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta gerist eftir að sálfræðistofa gerði úttekt hjá starfinu á ákærusviðinu og skilaði í framhaldinu skýrslu.

Hrækti á og hótaði lögreglumönnum líkamsmeiðingum á jóladag
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sextíu daga fangelsi fyrir að hafa hrækt á lögreglukonu og hótað lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra líkamsmeiðingum. Brotin áttu sér stað á jóladag á síðasta ári.

Segir lögregluembættin ekki hafa sinnt skráningu og eyðingu gagna
Í nýrri skýrslu ríkissaksóknara um eftirlit með símahlustun og skyldum úrræðum á síðasta ári eru lögregluembættin og yfirstjórn lögreglunnar harðlega gagnrýnd fyrir meðferð og vörslu upplýsinga.

Skýr skref í þágu löggæslunnar
Við höfum öll orðin vör við aukna hörku og breyttar aðstæður í glæpastarfsemi á Íslandi. Síðustu vikur hafa fregnir af hrottalegum árásum og auknum umsvifum glæpasamtaka verið daglegt brauð. Lögreglan gerir allt sem hún getur með þann mannafla og þá tækni sem hún hefur í höndum sér, en þó sjáum við íbúa óttaslegna við þróun skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi.

„Lögreglumenn alltof oft í aðstæðum sem þeir ráða ekkert við“
Viðhorf almennings gagnvart lögreglunni á Íslandi er almennt gott en konur eru þó með jákvæðara viðhorf en karlar. Meirihluti fólks er ósammála því að lögregla eigi að bera skotvopn. Þá telja flestir lögregluna skorta þekkingu þegar kemur að geðrænum vanda og fíknivanda.

Aukin heimild til eftirlits nái frumvarpið fram að ganga
Nýtt frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum felur í sér að lögregla fái heimild til að viðhafa sérstakt eftirlit með einstaklingum sem hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi, án þess þó að þeir séu grunaðir um afbrot. Frumvarpið felur einnig í sér að eftirlit með störfum lögreglu verður eflt frá núverandi mynd.

VG gerir fyrirvara við frumvarp Jóns um lögregluna
Þingflokkur VG hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum og sent það til þinglegrar meðferðar. Þingflokkurinn gerði nokkra fyrirvara við frumvarpið, til dæmis hvað varðar heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með borgurum.

Gerir stjórnvöldum kleift að stíga mjög ákveðin skref
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að aukin framlög til löggæslu- og fangelsismála sem gert sé ráð fyrir í breytingartillögum fjármálaráðherra við fjárlög muni gera mönnum kleift að stíga mjög ákveðin skref í rannsóknum og greiningum á skipulagðri glæpastarfsemi.

Ráðherra leggur til 37 milljarða heildarhækkun fjárframlaga
Framlög til ýmissa málaflokka hækka um 37 milljarða króna ef tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2023 verða að veruleika. Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti tillögurnar fyrir fjárlaganefnd í gær.

Segir lögreglumann hafa brotið tölvuskjá sinn á bjórkvöldi í sal Gróttu
Rapparinn Ísleifur Eldur Illugason segir lögreglumann hafa brotið skjá tölvu sinnar síðastliðið föstudagskvöld. Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Fjölmennt lið lögreglu mætti á svæðið með mikinn viðbúnað og leysti upp samkvæmið.

Vikið úr starfi fyrir að dreifa myndskeiðum frá Bankastræti Club
Starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið vikið úr starfi fyrir að hafa staðið að dreifingu á myndskeiði af hnífstunguárásinni á Bankastræti Club fyrr í mánuðinum. Talið er að starfsmaðurinn hafi ekki ætlað að myndböndin færu til fjölmiðla.

„Það er raunveruleg ógn sem að okkur steðjar“
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að styrkja lögregluna og þá sérstaklega varðandi rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og varðandi forvarnir. Aukin notkun stunguvopna kallaði líka eftir því að lögregluþjónar fengju rafmagnsbyssur.

„Vonandi verður þetta betra í kvöld“
Skemmtistaðaeigandi í miðbæ Reykjavíkur vonar að meiri aðsókn verði í bæinn í kvöld en í gær. Hann telur of mikið hafa verið gert úr sögusögnum af mögulegum hnífstunguárásum þar um helgina í fjölmiðlum og skilur vel að fólk sé smeykt. Lögregla er aftur með mjög aukinn viðbúnað í bænum í kvöld.

Löggan býður upp á Black Friday tilboð sem allir vilja missa af
Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að í dag er Svartur föstudagur. Fólk er hvergi óhult fyrir auglýsingum fyrirtækja sem keppast um að bjóða sem best tilboð. Í dag birtist þó heldur óhefðbundin auglýsing, þegar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsti „Black Friday“ tilboð á umferðasektum.

Um nauðsynlega aukafjárveitingu til fangelsismála
Í fréttum síðustu daga hefur verið fjallað um nýjan veruleika í störfum lögreglu, aukinn vopnaburð og hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Á sama tíma hefur verið fjallað um umfangsmiklar og íþyngjandi aðhaldsaðgerðir í rekstri fangelsa, stóraukinn vopnaburð fanga og skort á fjármagni til að bæta ófullnægjandi aðbúnað fangavarða.

Nýr veruleiki tekinn við
Nýr veruleiki er tekinn við í afbrotum sem lögregla fæst við, segir Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir sömu stöðu upp komna og hefur verið á öðrum Norðurlöndum undanfarin ár.

Héraðssaksóknari rannsakar myndbandslekann
„Þetta mál verður skoðað, það eru alveg hreinar línur,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Grunur leikur á að myndböndum af hnífaárásinni á Bankastræti Club á síðustu viku, hafi verið lekið úr gagnagrunni lögreglunnar. Í myndbandinu sést á tölvuskjá í tákn skráningakerfis lögreglunnar, Löke.

Neyðarástand í fangelsismálum og umhverfi hættulegt fangavörðum
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir fangelsismálin í algjörum ólestri og lýsir yfir neyðarástandi í málaflokknum. Dómsmálaráðherra segir ástandið alvarlegt. Gríðarlegt álag sé á fangelsin, samanborið við fyrri ár, sem skapi ófyrirséðan kostnað.

Lögreglumenn vilja betri búnað og heimildir
Undanfarið ár hef ég oft komið fram í fjölmiðlum og skrifað greinar og pistla í dagblöð og félagsblað okkar lögreglumanna, Lögreglumanninn, um þær hættur sem stafa að þjóðfélaginu og lögreglumönnum sérstaklega.

Frumvarp Jóns um lögreglu afgreitt úr ríkisstjórn
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögreglulögum, sem felur meðal annars í sér heimildir til forvirkra rannsókna og vopnaburð lögreglu, var afgreitt af ríkisstjórn í morgun. Ráðherranna telur raunhæft að frumvarpið verði að lögum fljótlega eftir áramótin.

Lögreglan kalli ekki eftir forvirkum rannsóknarheimildum
Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim.

Ráðherra hætti að ráðast að fangelsum í stað þess að ráðast í stríð
Þingmaður Viðreisnar sakar dómsmálaráðherra um að fjársvelta fangelsi landsins þannig að dæmdir menn komist ekki í afplánun. Ráðherrann ætti frekar að hætta að ráðast að fangelsunum í stað þess að hefja stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Boðar stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi
Dómsmálaráðherra boðar stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi með átaki sem lögreglan ætlar að ráðast í á næstunni. Vel geti verið að stigin verði umdeild skref í því átaki, meðal annars varðandi vopnaburð lögreglumanna.

Anníe Mist reyndi við inntökuprófið í „Víkingasveitina“
Það efast líklega enginn um hreysti íslensku CrossFit goðsagnarinnar Anníe Mistar Þórisdóttur. Ein okkar allra besta kona leitaði á dögunum upp enn eitt prófið til að sanna frábært form sitt.

Málið undirstriki að samfélaginu stafi ógn af skipulagðri brotastarfsemi
Koma hátt í þrjátíu meðlima vélhjólaklúbbsins Hells Angels til landsins undirstrikar að samfélaginu stafi ógn af skipulagðri brotastarfsemi. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. Fimm verður vísað frá landinu í fyrramálið til viðbótar við þá tuttugu og tvo sem gert var að yfirgefa landið í morgun.