Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð. Viðskipti innlent 22.10.2026 17:29
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Erlendur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem talið er að hann myndi ella reyna að koma sér undan réttvísinni. Hann var ákærður í fyrra fyrir að hafa nauðgað andlega fatlaðri konu árið 2022 en eftir útgáfu ákæru fannst hann hvergi, þangað til að hann var gripinn í Leifsstöð á sunnudaginn. Hann hefur þegar játað nauðgunina og borið fyrir sig að hafa misst rökhugsun og ekki getað hætt samræði við konuna þrátt fyrir að hún biði hann um það. Innlent 22.10.2026 14:07
Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir. Lífið 22.10.2026 07:01
Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent 20.10.2026 08:58
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði. Innlent 18. október 2026 22:02
Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar. Erlent 16. október 2026 21:43
Fljúga daglega til Boston Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. Viðskipti innlent 16. október 2026 16:49
Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, varar við því að ófullnægjandi mönnun landamæraeftirlits á Keflavíkurflugvelli geti grafið undan tengiflugi félagsins og leitt til færri áfangastaða og ferða. Fjölmargir farþegar hafi misst af flugi í sumar vegna biðraða. Innlent 16. október 2026 13:32
Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Nýtt hátæknieldhús var formlega opnað í á athafnasvæði Icelandair á Keflavíkurflugvelli í gær. Eldhúsið er búið nýjustu tækni en vélmenni sjá um að útbúa matarbakka og ferja þá í veitingavagna. Viðskipti innlent 15. október 2026 08:01
Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Air Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu. Innlent 13. október 2026 17:13
Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Ástralska flugfélagið Qantas neyddist til að kyrrsetja eina af vélum sínum í Róm eftir að veggjalýs fundust í farþegarými vélarinnar. Vélin hafði komið til Rómar frá Perth í Ástralíu. Erlent 13. október 2026 07:14
Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi, en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði. Lífið 12. október 2026 20:45
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Innlent 12. október 2026 11:43
Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Hópur vísindamanna er nú á leið til Nikumaroro-eyju á Kyrrahafi í þeirri von um að leysa ráðgátuna um Ameliu Earhart. Earhart hvarf sporlaust þegar hún gerði tilraun til þess að verða fyrst allra að fljúga umhverfis jörðina árið 1937. Erlent 11. október 2026 23:45
Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar vara ferðalanga og flugfélög við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu í fyrstu yfirlýsingu sinni eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu í gær þar sem tólf létust og 309 manns særðust. Um er að ræða þriðju árásina á sádí-arabíska flugvelli í vikunni. Erlent 11. október 2026 10:55
„Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Formaður grænlensku landstjórnarinnar segir það svekkjandi að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kúlusúk á Austur-Grænlandi yfir vetrartímann enda hafi flugleiðin reynst vel upp á ferðamennsku og fraktflutninga á ferskvöru. Hann segir að landstjórnin leiti nú leiða til þess að tryggja flug að svæðinu á ný. Innlent 7. október 2026 21:02
Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Forstjóri Icelandia, sem rekur Flugrútuna, gagnrýnir að ríkið greiði rúma milljón króna á viku fyrir að taka við farþegum á nýrri stoppustöð við Keflavíkurflugvöll. Hann segir það auka samkeppni ríkisins við einkarekin ferðaþjónustufyrirtæki. Viðskipti innlent 7. október 2026 13:17
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. Innlent 5. október 2026 17:12
Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líklegt að flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli hafi misst yfirsýn yfir flugvélar og þyrlur sem voru á leið til og frá vellinum þann 2. ágúst 2024 sem varð til þess að tvöföld árekstarhætta skapaðist með stuttu millibili. Innlent 5. október 2026 15:46
Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi. Innlent 5. október 2026 11:12
Fljúga til Færeyja í hádeginu U21 landslið karla í fótbolta á að komast til Færeyja fyrir lokaleik liðsins í undankeppni EM á næsta ári í dag. Liðið fór í fýluferð til Keflavíkur í gær og sneri við í flughliðinu. Fótbolti 5. október 2026 08:30
Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 árs landsliðs Íslands, vonast eftir því að liðið komist ytra á morgun. Liðið fór í fýluferð til Keflavíkur í morgun og flugi þess aflýst fyrir mikilvægan leik. Það var huggun harmi gegn hjá Lúðvík að komast á körfuboltaleik hjá syni sínum. Fótbolti 4. október 2026 14:16
Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum. Erlent 4. október 2026 07:56
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Bandaríska strandgæslan leitar nú að sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í dag. Sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Erlent 3. október 2026 17:52
Illa brugðið en heill á húfi Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 3. október 2026 10:38