Andlát

Andlát

Fréttamynd

Okkar McCartney, okkar Bach kveður

Gunnar Þórðarson tónlistarmaður er allur og íslenski tónlistarbransinn er í sárum. Eins og Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður segir hafa nú fjórir merkir tónlistarmenn kvatt á þessu ári og við erum fátækari í dag en í gær – miklu fátækari í ár en í fyrra: Magnús Eiríksson, Björgvin Halldórsson, Megas og nú Gunnar Þórðarson sem hlýtur að teljast risi á þessum vettvangi.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gunnar Þórðar­son er látinn

Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn 81 árs að aldri. Gunnar hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og meðal annars barist við Parkinson-veiki.

Innlent
Fréttamynd

Líkir Trygginga­stofnun við hand­rukkara

Ingi Björn Sigurðsson hagfræðingur missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpum tveimur árum en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins; kröfur sem tvöfaldast án útskýringa.

Innlent
Fréttamynd

Hall­dór Árni Sveins­son er látinn

Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, er látinn. Halldór Árni var fæddur 22. febrúar 1955 en hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Leikarinn Sam Neill er látinn

Leikarinn Sam Neill er látinn. Hann var 78 ára. Dánarorsök hans hefur ekki verið gefin upp en hann greindi nýlega frá því að hann hefði náð sér af eitilfrumukrabbameini, sem hann greindist með árið 2022.

Lífið
Fréttamynd

Lindsey Graham er látinn

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham lést í gærkvöldi 71 árs að aldri eftir bráð veikindi. 

Erlent
Fréttamynd

Kinu Rochford sagður myrtur

Körfuboltamaðurinn Kinu Rochford, sem lék hér á landi á árunum 2018 til 2020, er látinn 35 ára að aldri. Hann er sagður hafa verið skotinn til bana í Harlem í New York.

Körfubolti
Fréttamynd

Joanna Pettet er látin

Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bonnie Tyler er látin

Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“.

Tónlist
Fréttamynd

Þrúður Vil­hjálms­dóttir er látin

Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin 53 ára að aldri. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí síðastliðinn eftir erfið veikindi. Þrúður var lærð leikkona, lék á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi og starfaði sem flugfreyja í tvo áratugi samhliða leiklistinni.

Lífið
Fréttamynd

Megas er látinn

Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi. Megas var 81 árs gamall.

Lífið
Fréttamynd

Lauren Bennett látin 37 ára að aldri

Tónlistarkonan Lauren Bennett er látin, 37 ára að aldri. Hún var hluti af sveitunum Paradiso Girls og G.R.L. auk þess að vera þekkt fyrir framkomu sína í laginu Party Rock Anthem sem kom út með LMFAO árið 2011.

Lífið
Fréttamynd

Michael Byrne er látinn

Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Söngvari YMCA látinn

Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri.

Tónlist