Viðskipti erlent

Fréttamynd

Olíuflæðið að nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki

Flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum og um Hormússund er nærri því sem það var áður en stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst í febrúar. Klerkastjórnin í Íran virðist vera að missa tökin á sundinu og þar með getuna til að beita efnahagslegum þrýstingi á Bandaríkjamenn, á sama tíma og herkví Bandaríkjanna gegn Íran hefur leitt til þess að Íran flytur varla dropa af olíu eða jarðgasi úr landi.

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan

Bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur hætt við að gefa út nýtt gervigreindarlíkan, GPT-6.1 Astra af öryggiástæðum. Líkanið er sagt hafa sýnt af sér svikula hegðun og sagt hafa reynt að nota utanaðkomandi verkfæri þrátt fyrir að hafa vitað að það væri ekki öruggt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjá­tíu ár

Seðlabanki Japans hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 1 prósenti í 1,25 prósent. Slík hækkun hefur ekki verið gerð í 31 ár en þetta er gert til að mæta efnahagslegum þrýstingi heimafyrir og gáfu forsvarsmenn bankans til kynna að frekari hækkanir væru líklegar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Greiða 4,3 milljarða vegna sölu per­sónu­upp­lýsinga

Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

ChatGPT virkar á ný

Truflanir voru á nokkrum þjónustum gervigreindarrisans OpenAI, þar á meðal á hinu geysivinsæla spjalllíkani ChatGPT. Tugþúsunda tilkynntu um truflanir og bárust fréttastofu ábendingar frá fólki hérlendis um að þjónustan hefði legið niðri.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tekjur Nvidia tvö­földuðust milli ára

Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni bandaríska tæknifyrirtækisins Nvidia, sem er verðmætasta fyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess birtu í gær ársfjórðungsuppgjör sem fór fram úr björtustu vonum greinenda og ýtti til hliðar áhyggjum fjárfesta hvað varðar eftirspurn eftir tölvuflögum fyrirtækisins fyrir gervigreind en fyrirtækið hefur hagnast gífurlega á slíkri framleiðslu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Meta kaupir sig frá mála­ferlum vegna barnavelferðar

Samfélagsmiðlarisinn Meta féllst á að greiða jafnvirði tvö þúsund milljarða íslenskra króna með sátt sem það gerði við flest ríki Bandaríkjanna í dag. Ríki höfðuðu mál gegn fyrirtækinu fyrir að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif samfélagsmiðla þess á börn.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kanada svarar tollum Banda­ríkja­stjórnar

Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Inn­kalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna

Yfirvöld í Kína hafa gert bílaframleiðendum að innkalla um 4,3 milljónir rafmagnsbíla þar í landi vegna innfelldra hurðahúna. Þeir hafa verið bannaðir í Kína en eftir að hurðahúnarnir hafa verið bendlaðir við dauðsföll í tveimur slysum í Kína hefur aukinn þrýstingur verið settur á forsvarsmenn bílafyrirtækjanna um að bæta hönnun bílanna og þá sérstaklega hurðahúnanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi

Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í nótt að hann hefði ákveðið að fresta gildistöku boðaðra refsitolla á Kanada sem áttu að taka gildi í dag um þrjá daga og segir hann viðræður um nýjan viðskiptasamning milli ríkjanna vera á lokametrunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fram­tíðar­sýn Svíans að færa flugið nær fólkinu

Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Methagnaður norska olíusjóðsins

Norski olíusjóðurinn hagnaðist um 1.753 milljarða norskra króna, jafnvirði tæpra 22.800 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaður hans hefur aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Veldi auðugustu konu Rúss­lands sagt riða til falls

Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsárin sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tollar kísilframleiðslu í Kína

Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfir­töku á Electronic Arts

Hópur fjárfesta, sem leiddur er af PIF, opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu og inniheldur meðal annars Jared Kushner, tengdason Donalds Trump, hefur lokið kaupunum á leikjafyrirtækinu Electronic Arts. Fyrirtækið er hvað þekktast fyrir leiki eins og FIFA, Madden og aðra íþróttaleiki, auk Sims, Battlefield og Mass Effect, svo einhverjir séu nefndir.

Viðskipti erlent