Hvað veistu um... íslenska hönnun? Íslensk hönnun hefur á undanförnum áratugum vakið sífellt meiri athygli, bæði hér heima og erlendis. Hún einkennist meðal annars af hugmyndaauðgi, einfaldleika og sterkum tengslum við íslenska náttúru og menningu. Lífið 5.10.2026 20:03
Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Margar af best klæddu konum landsins komu saman á Hverfisgötu síðastliðinn fimmtudag í tilefni af opnun nýrrar verslunar Andrá. Benni B-ruff þeytti skífum og freyðivínið flæddi. Lífið 5.10.2026 13:08
Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Við tengjum sólbrúnkuna svolítið við að líta vel út; vera útitekin, hraustleg, geisla jafnvel aðeins. Svo sæl og ánægð eftir sólbaðið. Áskorun 4.10.2026 08:00
Staðráðnar í að koma sterkari til baka „Þetta er ein af stærri áskorunum sem við höfum þurft að takast á við, ekki bara í þessum rekstri heldur líka bara almennt,“ segir Steinunn Hrólfsdóttir, annar eigenda tískuverslunarinnar Andrá Reykjavík. Eldur kom upp í kjallara í rými verslunarinnar í byrjun september og átti eftir að hafa gríðarleg áhrif. Tíska og hönnun 30. september 2026 07:02
Minningar um mömmu það allra verðmætasta „Eftir að ég missti mömmu hefur taskan fengið allt aðra merkingu fyrir mig. Hún minnir mig svo mikið á hana og er í raun ómetanleg fyrir mér,“ segir hinn 27 ára gamli Davíð Agnar Kristrúnarson, flugþjónn hjá Icelandair og starfsmaður World Class. Tíska og hönnun 29. september 2026 20:02
Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Frægðarsól tónlistarkonunnar Kolfreyju Sólar, sem er betur þekkt sem Alaska, hefur sjaldan skinið skærar en nú. Hún var að gefa út plötuna 1867 sem er í senn tilfinningarík og dansvæn og fagnaði útgáfunni með glæsilegum útgáfutónleikum í hráu umhverfi á Korpúlfsstöðum. Tónlist 28. september 2026 11:00
Banna búrkur og níkab Stjórnvöld á Ítalíu hafa bannað búrkur og níkab í skólum landsins. Þá má hlutfall nemenda sem ekki eru með ítalskan ríkisborgararétt eða tala litla ítölsku í bekk ekki vera hærra en þrjátíu prósent. Erlent 25. september 2026 09:00
Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Tískurisinn Diesel vakti mikla athygli á tískuvikunni í Mílanó í gær fyrir óvanalega sýningu og ótal marga þátttakendur. Hátt í tvö hundruð manns voru fengnir til að dulbúa sig sem áhorfendur en byrjuðu svo hægt og rólega að stynja, snerta sig og hvert annað á miðri sýningu. Lífið 23. september 2026 14:22
Sól sló í gegn á tískuviku í London Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir hefur vakið athygli undanfarin ár og er meðal annars í miklu uppáhaldi hjá fyrrum forsetafrúnni Dorrit Moussaieff. Sól, sem heitir réttu nafni Sólveig Dóra, hefur sýnt línur sínar víða um heim og var með vel sótta sýningu á tískuvikunni í London í fyrradag. Tíska og hönnun 23. september 2026 09:30
Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Grafíska hönnuðinum Þuru Stínu Kristleifsdóttur er margt til lista lagt. Samhliða hönnunarstarfinu er hún framleiðandi og listrænn stjórnandi og var um árabil einn vinsælasti plötusnúður landsins. Nú hefur hún tekið við starfi stjórnanda HönnunarMars. Menning 22. september 2026 09:01
Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Ofurfyrirsætan Cindy Crawford á erfitt með að meðtaka það að Presley Gerber, sonur hennar, sé látinn. Mæðginin eru sögð hafa verið mjög náin. Lífið 22. september 2026 07:40
„Mjög óraunveruleg og full af ást“ „Strákarnir okkar, Úlfur og Björn, sögðu að við hefðum verið eins og kóngur og prinsessa og það er svo dýrmætt að hafa upplifað þetta með þeim,“ segja hin nýgiftu Margrét Unnarsdóttir og Arnór Kári Davíðsson sem fögnuðu ástinni með pomp og prakt í London í lok ágúst. Lífið 22. september 2026 07:01
Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Það var margt um manninn í bílakjallara Kringlunnar síðastliðinn fimmtudag. Tilefnið var tískusýning þar sem hausttískunni var gerð góð skil í glæsilegri umgjörð og lýsing, tónlist og stílisering sköpuðu einstaka stemningu. Tíska og hönnun 21. september 2026 11:57
Sonur Cindy Crawford er látinn Presley Gerber, fyrirsæta og sonur ofurfyrirsætunnar og leikkonunnar Cindy Crawford, er látinn, 27 ára að aldri. Óvíst er með dánarorsök en hann er sagður hafa verið í meðferð vegna fíknivanda þegar hann lést. Lífið 21. september 2026 07:18
Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Steven Kolb, forstjóri og formaður CFDA, samtaka tískuhönnuða í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér eftir að hann beitti mótmælendur ofbeldi á tískusýningu fyrr í vikunni. Atvikið náðist á myndband og hefur hann beðist afsökunar á framferði sínu. Lífið 19. september 2026 14:05
Ungir fatasalar möluðu gull Metta sport seldi íþróttafatnað fyrir 733 milljónir króna og hagnaðist um 252 milljónir í fyrra. Félagið er í 80 prósenta eigu Péturs Kiernan og 20 prósenta eigu Samúels Ásberg O'Neill, sem báðir eru á þrítugsaldri. Einn helsti keppinautur Metta, Kenzen, seldi fyrir 245 milljónir og hagnaðist um sextíu milljónir. Árið áður hafði Kenzen aðeins hagnast um 250 þúsund krónur. Þá sækir nýja fatamerkið Takk Takk í sig veðrið. Viðskipti innlent 18. september 2026 16:39
Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Bræðurnir sem standa að baki hönnunarmerkisins Endurtakk opna á morgun nýtt verslunarrými á jarðhæðinni í Hlemmur.Haus að Laugavegi 114 þar sem Tryggingamiðstöðin var áður til húsa. Verslunarrýmið er rekið af bræðrunum Rik og Ross McNair. Undanfarin fimm ár hafa þeir rekið vörumerkið Endurtakk, sem framleiðir föt og fylgihluti úr endurnýttum textílefnum. Viðskipti innlent 17. september 2026 16:00
Frægir í fjöri yfir framtíðinni Það var líf og fjör í Grósku í gærmorgun þegar alls konar fólk úr ólíkum áttum samfélagsins kom saman í morgunbolla og ýmsar skemmtilegar hugleiðingar um framtíðina yfir morgunbollanum. Bergur Ebbi fór meðal annars á kostum og vinur hans, uppistandarinn Dóri DNA, lét sig ekki vanta. Menning 17. september 2026 13:32
Próteinskammtur alltaf með í töskunni Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Fanney Dóra tók lífsstíl sinn í gegn með betri heilsu og vellíðan að leiðarljósi. Hún segist hafa lært að huga betur að samsetningu matarins og tryggja að líkaminn fái nægilegt prótein og trefjar. Fæðubótarvörurnar frá Bloom hafa hjálpað henni að ná markmiðum sínum í annasömu dagskipulagi. Lífið samstarf 17. september 2026 08:30
Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn „Ég klæði mig auðvitað fyrst og fremst fyrir sjálfa mig en það væri líka frekar dapurlegt að skapa öll þessi listaverk og sýna aldrei neinum þau,“ segir hin tvítuga Emma Kjartansdóttir, fatahönnunarnemi í LHÍ og tískuáhugakona með meiru. Tíska og hönnun 16. september 2026 11:31
Bob Mackie er látinn Fata-og búningahönnuðurinn Bob Mackie lést í gærkvöldi, 87 ára að aldri. Hann á að baki sér glæstan feril sem spannar um fimmtíu ár og hannaði flíkur sem eru skrifaðar í tískusöguna um ókomna tíð. Lífið 15. september 2026 16:31
Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Gull, glans og elegans tók yfir bláa dregilinn á Emmy-hátíðinni í gær þar sem skærustu sjónvarpsstjörnur heimsins klæddu sig upp og vonuðust eftir því að fara heim með styttu. Grínistinn og leikkonan Megan Stalter gerði gott betur og klæddi sig upp sem verðlaunastyttan. Tíska og hönnun 15. september 2026 09:27
Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé. Innlent 14. september 2026 23:10
Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og enginn breyting varð þar á í dag. Tískuunnendur bíða oft spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið. Ljósir haustlitir voru áberandi í ár og báru margir þingmenn sólgleraugu vegna blíðunnar. Ótvíræður tískusigurvegari var Sigmundur Ernir sem minnti helst á Philip Marlowe. Tíska og hönnun 8. september 2026 15:35