Erlent

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“

Agnar Már Másson skrifar
Vart hefur orðið við upplýsingaóreiðu í kjölfar óeirða Ítalíu um helgina. Nemendur voru sendir fyrr heim úr skólanum eftir að orðrómar um yfirvofandi árás fóru á víð og dreif um samfélagsmiðla, að sögn Katrínar og Arnþrúðar.
Vart hefur orðið við upplýsingaóreiðu í kjölfar óeirða Ítalíu um helgina. Nemendur voru sendir fyrr heim úr skólanum eftir að orðrómar um yfirvofandi árás fóru á víð og dreif um samfélagsmiðla, að sögn Katrínar og Arnþrúðar. Samsett Mynd

Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa.

„Það veit bara enginn hvað er í gangi,“ segir Arnþrúður Kristín Zoëga Ingvadóttir, íslenskur arkítektúrnemi í IED, í samtali við Vísi. Hún segir að nemendur hafi skyndilega verið sendir fyrr heim úr tíma í dag og hafi enn ekki fengið svör um hvort þeir eigi að mæta í skólann á morgun.

Í framhaldi af óeirðunum sem brutust út eftir mótmæli í Mílanó um helgina hafa skjáskot og skilaboð farið sem eldur um sinu í spjallhópum stúdenta á WhatsApp, þar sem varað er við árás á skóla og nemendur í ítölsku borginni.

Í umfjöllun Notizie.it er tekið fram að engum þessara sögusagna fylgi nein sönnunargögn en þrátt fyrir það hafi fjölda verslana í Mílanó verið lokað vegna orðrómanna. Yfirvöld í Mílanó hafa ekki gefið út neinar opinberar yfirlýsingar um málið, né skólarnir.

Mótmælin, sem snerust í upphafi um verðlag, fóru í upphafi friðsamlega fram en á laugardaginn urðu miklar stimpingar meðal ungmenna sem voru viðstödd. Forsætisráðherrann sagði óeirðaseggi hafa nýtt sér mótmælin til að skapa ringulreið en lögregla í borginni notaði stórar vatnskanónur og táragas gegn mótmælendum sem köstuðu gangstéttarhellum, ruslatunnum og stólum að lögreglumönnum.AP

Í skjáskotum úr spjallhópum sem hafa verið í er varað við hópi manna sem var sagður skipuleggja yfirvofandi áhlaup í borginni ýmist í dag og á morgun; þeir hygðust ráðast á fólk í miðbænum og jafnvel skipuleggja hópnauðganir. „Drepum allt ríka fólk framtíðarinnar,“ segir í einu skjáskoti. Í öðrum skilaboðum er ýjað að því að nýfasistahópar ætli að berja útlendinga í tilteknum hverfum og kveikja í einkareknum skólum. Í einhverjum spjöllum er biðlað til þeirra „sem eru ekki dæmigert ítalskir í útliti“ að hafa varann á. 

Fólk er síðan hvatt til þess að deila skilaboðunum áfram.

„Allir frekar hræddir“

Arnþrúður segir að skjáskotin hafi vakið mikla ónotatilfinningu meðal nemenda og kennara enda hafi nemendur vart séð annað á samfélagsmiðlum undanfarnar klukkustundir.

„Kennarar sendu póst í dag þar sem þeir sögðu að þeir viti í raun ekkert hversu raunverulegt þetta er. Þeir viti ekki hvort þeir geti leyft okkur að koma í skólann á morgun. Það er ekkert vitað um það hversu mikill sannleikur er í því sem verið er að senda á milli,“ heldur Arnþrúður áfram.

Arnþrúður Kristín Zoëga Ingvadóttir, íslenskur arkítektúrnemi í IED.Facebook.

Að sögn Arnþrúðar virðast hótanirnar beinast sérstaklega að alþjóðanemum og hafa því sérstaklega vakið ótta í hennar vinahópi.

„Það eru allir frekar hræddir. Mér finnst líka óþægilegt að sjá ítölsku nemendurna, þeir eru mjög hræddir.“

Falsfréttir í dreifingu og sprengjuhótanir í skólum

Skilaboðin sem eru í dreifingu meðal stúdenta í Mílanó virðast ekki vera einsdæmi.

Héraðsmiðill í Cremona greinir frá því að verslanir hafi í dag lokað dyrum sínum fyrr en ella eftir að falsfréttir fóru í dreifingu um að óeirðir væru yfirvofandi í bænum í dag, auk þess sem fölsuð myndskeið hafi verið í dreifingu.

Jafnframt eru lögregluyfirvöld að kanna grunsamleg hópspjöll sem hafa skotið upp kollinum í dag þar sem boðað er til óeirða í Como næstu helgi – þar sem lúxusverslanir virðast sérstaklega í sigtinu. 

Auk þess barst hið minnsta 50 skólum fölsk sprengjuhótun í dag og þeir rýmdir, að því er Rai greinir frá. Meðal þeirra var grunnskóli á Mílanó-svæðinu.

Ungmennamótmæli sem vöttu upp á sig

Óreiðir brutust út á hliðarlínum mótmæla sem vítt og breitt um Evrópu á laugardag, en þær urðu mestar í Frakklandi. 

Talið er að um fimm þúsund manns hafi verið á götum Dómkirkjutorginu í Mílanó á Ítalíu en þar brutust ungmenni inn í verslanir og stálu þaðan vörum, auk þess sem borgarar voru beittir ofbeldi, að sögn lögregluyfirvalda.

Frá óeirðum í Mílanó á laugardag. AP

Samkvæmt umfjöllun AMSA voru ríflega þrjátíu handteknir í Mílanó, þar á meðal 23 ungmenni, og á þriðja hundrað manns voru færðir á lögreglustöð. 

Giorgia Meloni forsætisráðherra sagði í gær að óeirðaseggir hefðu nýtt sér mótmælin til að skapa ringulreið en lögregla í borginni notaði stórar vatnskanónur og táragas gegn mótmælendum sem köstuðu gangstéttarhellum, ruslatunnum og stólum að lögreglumönnum.

Corriere della Sera greinir frá því að forsætisráðherrann Meloni hafi í hyggju að grípa til neyðarúrræða til að bregðast við. Ríkisstjórnin er þar sögð ætla að senda 500 hermenn til Mílanó. Þá segir sami miðill að ríkisstjórnin hyggist herða löggæslu gagnvart ungmennum, en Meloni hefur áður lýst áhuga á að setja á serstök lög til að sporna við ofbeldishegðun ungmenna. 

„Súrrealískt“

Katrín Sunneva Einarsdóttir, sem stundar einnig nám við IED skóloann, segist hafa komið aftur til borgarinnar í gær þegar rykið var tekið að setjast eftir að óeirðirnar. 

„Ég var í skólanum, í smíðastofunni, og þá var allur bekkurinn að vinna í verkefni þegar ég fæ skilaboð frá vinkonu minni sem er líka í námi hérna með skilaboðum sem eru að lýsa grófum hótunum sem beinast að erlendum nemendum og ákveðnum hverfum,“ segir hún.

Skyndilega fóru skilaboð að hrannast inn í pósthólfin um meintar óeirðir sem væru boðaðar.

„Ég fæ þessi skilaboð og hugsa að þetta sé ógnvekjandi en samt ekkert endilega trúlegt, hvernig þetta var sett fram,“ segir hún. Síðan hafi skilaboðin farið að hrannast inn. Á einni klukkustund hafi hún fengið sjö sambærileg skilaboð í mismunandi spjallhópum.

„Svo kallar kennarinn yfir alla í smíðastofunni að allir þurfi að drífa sig heim út af ástandinu. Þá er þetta búið að frétta til skólans, þessar hótanir.“

Katrín Sunneva Einarsdottir, nemandi í IED í Mílanó.Facebook

Nemendur hafi verið í miklu uppnámi. „Þetta var súrrealískt. Þetta var eins og brunaæfing, allur skólinn var búinn að drífa sig út,“ bætir hún við.

„Þetta er mjög óhugnanlegt,“ bætir hún við og tekur fram að þessar hótanir hafi vakið litla athygli í landsmiðlum á Ítalíu. 

„Þetta virðist vera hræðsluáróður á samfélagsmiðlum og þess vegna hefur kannski ekki verið fjallað mikið um þetta í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×