Sneru við farþegaþotu vegna próflauss aðstoðarflugmanns Farþegaþotu Virgin Atlantic-flugfélagsins sem var á leið frá London til New York var snúið við til Heathrow-flugvallar eftir að á daginn kom að aðstoðarflugmaðurinn hafði ekki lokið lokaprófi. Erlent 5. maí 2022 10:39
Bretar ganga til sveitarstjórnakosninga í dag Bretar ganga til sveitarstjórnakosninga í dag rétt eins og Íslendingar eftir rúma viku. Í Englandi eru 4.360 sæti í boði í 146 sveitarstjórnum auk þess sem kosið er um borgarstjóra víða. Erlent 5. maí 2022 07:26
Forsætisráðherra Bresku jómfrúareyja ákærður fyrir kókaínsmygl Forsætisráðherra Bresku jómfrúareyja hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti og kókaínsmygl. Lögmaður hans segir að hann muni lýsa yfir sakleysi sínu fyrir dómstólum í Bandaríkjunum. Erlent 4. maí 2022 23:26
Fékk yfir vel milljarð króna fyrir treyjuna hans Maradona Keppnistreyjan hans Diego Maradona í leiknum fræga á móti Englendingum á HM í Mexíkó 1986 er seld og það fyrir metfé. Fótbolti 4. maí 2022 15:55
Lýsa helvíti á jörð í Mariupol Óbreyttir borgarar sem komust frá Mariupol um helgina lýsa aðstæðum þar sem algeru helvíti. Rússar hafa byrjað árásir á stáliðjuver borgarinnar á ný. Forsætisráðherra Bretlands sagðist sannfærður um sigur Úkraínu í stríðinu við Rússa þegar hann ávarpaði þing landsins í dag. Erlent 3. maí 2022 19:20
Spinal Tap-trommarinn látinn Breski trommarinn Ric Parnell, sem fór með hlutverk trommarans Mick Shrimpton í sýndarsveitinni Spinal Tap, er látinn, 70 ára að aldri. Lífið 3. maí 2022 10:04
Heklar borðtuskur á Selfossi til að komast í Oxford-háskóla Þrettán ára stelpa á Selfossi situr við alla daga og heklar borðtuskur af miklum móð. Ástæðan er sú að hún fékk óvænt inngöngu á sumarnámskeið í Oxford háskóla í London í enskum bókmenntum og skapandi skrifum. Innlent 1. maí 2022 20:18
Kylie Minogue snýr aftur í Nágranna Kylie Minogue mun snúa aftur í Nágranna eftir meira en þrjátíu ára fjarveru áður en framleiðslu þáttanna verður hætt í sumar. Jason Donovan, sem lék unnusta Kylie í þáttunum, snýr einnig til baka. Lífið 1. maí 2022 13:11
Segir af sér eftir að hafa horft á klám í stundarbrjálæði Breski þingmaðurinn Neil Parish hefur sagt af sér eftir að hafa viðurkennt að hafa horft á klám í þingsal. Hann segir að þetta hafi gerst í stundarbrjálæði. Erlent 30. apríl 2022 14:34
Gæti misst þingsætið eftir að hafa horft á klám í þingsal Breski þingmaðurinn Neil Parish hefur verið rekinn úr þingflokki Íhaldsflokksins eftir að hafa viðurkennt að hafa horft á klám í þingsal. Erlent 30. apríl 2022 11:01
Boris Becker dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi Tenniskappinn Boris Becker hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur fyrir breskum dómstólum um að koma eignum undan eftir gjaldþrot. Sport 29. apríl 2022 15:04
Anfield fær ekki EM-leiki af því hann er of lítill Liverpool spilar undanúrslitaleik í Meistaradeildinni á Anfield leikvanginum á móti Villarreal í kvöld en þessi heimsfrægi leikvangur nær þó ekki lágmarki UEFA fyrir Evrópumótið í fótbolta. Fótbolti 27. apríl 2022 10:31
Takmarka aðgengi að matarolíu vegna stríðsins Matvöruverslanir í Bretlandi hafa takmarkað aðgengi viðskiptavina sinna að matarolíu. Mikill meirihluti sólblómaolíu landsins kemur frá Úkraínu. Erlent 23. apríl 2022 21:30
Leggur hanskana á hilluna eftir bardaga kvöldsins: Er á betri stað en síðast Hnefaleikakappinn Tyson Fury segist ekki geta beðið eftir því að leggja hanskana á hilluna. Hann hefur fengið mikla umfjöllun fyrir sigra sína innan hringsins og baráttu við þunglyndi utan hans. Sport 23. apríl 2022 09:01
Bretlandsdrottning fagnar 96 ára afmæli Elísabet önnur drottning Bretlands fagnar 96 ára afmæli í dag. Hún hyggst eyða deginum með fjölskyldu og vinum á býli í Norfolk í Englandi. Erlent 21. apríl 2022 11:38
Dómari gefur grænt ljós á framsal Assange Breskur dómari gaf í dag grænt ljós á framsal Julian Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Það er þó ríkisstjórnar Bretlands að taka lokaákvörðun í málinu og er það nú á borði Priti Patel, innanríkisráðherra. Erlent 20. apríl 2022 11:24
Boris biðst afsökunar á partýstandi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði breska þingið í fyrsta skiptið í dag síðan hann var sektaður fyrir veisluhöld í miðjum heimsfaraldri. Erlent 19. apríl 2022 16:25
Advania kaupir Azzure IT Advania hefur fest kaup á breska fyrirtækinu Azzure IT sem sérhæfir sig í viðskiptakerfum Microsoft í skýinu. Með kaupunum bætast sextíu nýir sérfræðingar á því sviði í hóp Advania-samstæðunnar. Viðskipti innlent 19. apríl 2022 10:48
Handtekinn fyrir tilraun til að myrða lögregluþjóna Lögreglan í London hefur handtekið mann fyrir meinta morðtilraun sem beindist gegn tveimur lögregluþjónum í Westiminster. Erlent 18. apríl 2022 15:33
Farbann Gylfa framlengt fram á sumar Farbann Gylfa Þórs Sigurðssonar hefur verið framlengt til 16. júlí. Farbannið átti að renna út í dag. Fótbolti 17. apríl 2022 09:32
Aðstoðarráðherra segir af sér vegna veisluhalda Aðstoðarráðherra í dómsmálaráðuneyti Bretlands hefur ákveðið að segja af sér vegna veisluhalda í Downingstræti. Veisluhöldin voru haldin á meðan Covid faraldrinum stóð. Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt veisluhöldin harðlega og krafist afsagnar forsætisráðherra og fjármálaráðherra. Erlent 15. apríl 2022 09:50
Hótuðu að skera fingurna af fyrrverandi landsliðsmanni Englands Ashley Cole, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, varð fyrir óþægilegri lífsreynslu þegar innbrotsþjófar brutust inn í hús hans í janúar 2020. Fótbolti 14. apríl 2022 08:00
Þjálfari Norður-Írlands segir konur tilfinningaríkari en karla: Hefur beðist afsökunar Kenny Shiels, þjálfari kvennalandsliðs Norður-Írlands í fótbolta, telur að konur séu tilfinningaríkari en karlar. Opinberaði hann skoðun sína á blaðamannafundi eftir 5-0 tap N-Írlands gegn Englandi í undankeppni HM 2023. Fótbolti 13. apríl 2022 13:31
Engar fregnir af máli Gylfa fyrr en eftir páska Lögreglan í Manchester á Englandi mun ekki upplýsa um framgang rannsóknar í máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar fyrr en eftir páska. Gylfi er í farbanni, sem rennur út á páskadag. Fótbolti 12. apríl 2022 13:59
Johnson og Sunak verða sektaðir vegna veisluhaldanna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, verða sektaðir vegna veisluhalda í Downingstræti á meðan Covid faraldrinum stóð en þetta staðfestir talsmaður ríkisstjórnarinnar við breska fjölmiðla. Stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar þeirra. Erlent 12. apríl 2022 13:18
Segja Rússa beita efnavopnum í Maríupol Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússaher um að notast við efnavopn við Maríupol, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna fylgist með málinu en hefur ekki viljað staðfesta fregnir af árásinni. Erlent 11. apríl 2022 22:55
Sakfelldur vegna morðsins á þingmanninum Sir David Amess Dómstóll í Bretlandi hefur fundið íslamska ofstækismanninn Ali Harbi Ali sekan af ákæru um morðið á þingmanninum Sir David Amess í október 2021. Erlent 11. apríl 2022 14:57
„Þreytt og þreklaus“ eftir Covid Elísabet Bretadrottning segist þreytt og þreklaus eftir að hún smitaðist af Covid-19 í febrúar. Drottningin, sem verður 96 ára gömul í þessum mánuði, sýndi væg einkenni og hafði þeim verið líkt við flensu. Erlent 11. apríl 2022 10:08
Ed Sheeran hafði betur í Shape of You-máli Enski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hafði betur í höfundarréttarmáli þar sem hann var sakaður um lagastuld í tengslum við stórsmellinn Shape of You sem hann gaf út árið 2017. Dómur í málinu féll í morgun. Tónlist 6. apríl 2022 10:07
Stærsta herskip sem sést hefur á Íslandi við bryggju í Reykjavík Stærsta herskip sem komið hefur til Íslands og flaggskip breska sjóhersins, flugmóðurskipið Prince of Wales, verður í Reykjavík fram á föstudag. Koma skipsins tengist þó ekki varnaræfingunni Norður-Víkingi heldur er liður í reynslusiglingum skipsins um Norður-Atlantshaf. Innlent 4. apríl 2022 20:42