KA

Sjáðu bræðurna skora í Bestu deildinni og öll hin mörkin frá því í gær
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem ÍBV, KR og Fram fögnuðu sigri. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér á Vísi.

Umfjöllun: ÍBV - KA 2-0 | Eyjamenn komust úr fallsæti með sigri gegn KA
ÍBV spyrnti sér frá fallsvæði Bestu-deildar karla í fótbolta með 2-0 sigri gegn KA á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 3-3 | Endurkoma heimakvenna í ótrúlegum leik
Þór/KA og Stjarnan fengu sitthvort stigið í hreint ótrúlegum leik norðan heiða í dag. Gestirnir leiddu 3-0 eftir fyrri hálfleikinn en heimakonur björguðu stigi með jöfnunarmarki á 89. mínútu leiksins. Lokatölur því 3-3 í frábærum fótboltaleik.

„Það er eins og einhver hafi komist í mixerinn og hrært í öllum tökunum“
„Ég held að engin leikur í heiminum hafi verið meiri leikur tveggja hálfleikja og þessi“, sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir magnaða endurkomu hans stelpna í síðari hálfleik á móti Stjörnunni. Hálfleikstölur 0-3 fyrir Stjörnunni en lokatölur 3-3.

„Það voru útskriftir úr Háskóla Íslands í Laugardalshöll“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með 2-0 sigur liðsins á KA í dag. Það mátti sjá mikil bata merki í leik liðsins í dag sem gat gefið Ole Martin aðstoðarþjálfara þrjú stig í afmælisgjöf.

Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 2-0 | Mikilvægur sigur KR-inga
KR nældi sér í þrjú stig með góðum og mikilvægum sigri á KA í Frostaskjólinu í kvöld. Sigurinn þýðir að KR er einu stigi frá HK og tveimur frá KA sem er í fimmta sætinu. Vesturbæingar eru í harðri baráttu við þessi lið um að komast í efri hluta Bestu deildarinnar.

„Fann höndina fara í mjög óeðlilega stöðu“
„Maður fann rosalega mikinn verk og þegar maður sá höndina, rosalega afmyndaða og ljóta í laginu, þá var strax klárt að það væri eitthvað að,“ segir Sandra María Jessen, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í fótbolta í sumar, um handleggsbrot sitt í fyrrakvöld.

Jóhann: Getum spilað mjög vel þegar við náum okkar takti
Þór/KA vann 5-0 heimasigur á Tindastóli í 9. umferð Bestu deildar kvenna fyrr í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik settu heimakonur í fimmta gír í þeim seinni og skoruðu þrjú mörk á 7 mínútna kafla og gengu að lokum frá leiknum með fimm mörkum.

Umfjöllun: Þór/KA - Tindastóll 5-0 | Akureyringar völtuðu yfir Stólana í nágrannaslag
Þór/KA hafði 5-0 sigur gegn Tindastóli í 9. umferð Bestu deildar kvenna á Akureyri í kvöld. Staðan var markalaus í hálfleik en heimakonur gengu frá leiknum með fimm mörkum í síðari hálfleik.

Ljóst hvað bíður KA og Víkings ef þau vinna
Nú hefur verið dregið í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta, þar sem KA og Víkingur spila takist þeim að vinna mótherja sína í 1. umferð. Einnig er aðeins skýrara hvaða liði Breiðablik mætir, falli liðið úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku.

Hræðist ekki kaldara loftslag í Reykjavík: „Mikil spenna fyrir þessu verkefni“
Það skýrist í dag hvaða liði KA mætir í fyrstu viðureign sinni í rúm tuttugu ár í Evrópukeppni í fótbolta. Liðið mun þurfa að leika Evrópuleiki sína í Reykjavík og ríkir mikil spenna hjá KA-fólki fyrir drætti dagsins.

Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Þriðja sýning Vals og Davíð refsaði Blikum
Víkingar verða með fimm stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta næstu ellefu daga eftir öruggan sigur gegn Fram í gærkvöld. Öll mörkin úr 11. umferð má nú sjá hér á Vísi.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Selfoss 3-0 | Öruggt hjá heimaliðinu og gestirnir límdir við botninn
Þór/KA gerði sér lítið fyrir og rúllaði Selfoss upp í fyrsta leik 8. umferðar Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem fastast á botninum á meðan Þór/KA lyfti sér upp í 4. sæti. Liðin þurftu bæði á sigri að halda í dag enda hafði hvorugt liðið unnið leik síðan í 4. umferð deildarinnar sem fram fór um miðjan maí.

„Við ætlum að vera í topp sex“
„Þetta er mikil léttir og ég er gríðarlega ánægður með mitt lið í dag. Vilji, gæði, skipulag og agað spil skóp þennan sigur.“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir góðan 3-0 sigur á Selfoss á Þórsvellinum í dag.

Umfjöllun: KA - Fylkir 2-1 | Heimamenn aftur á sigurbraut
KA tók á móti Fylki í leik þar sem að sæti í efri hlutanum var undir. Með sigri hefðu Fylkismenn getað komið sér í efri hluta Bestu deildarinnar, svo fór þó ekki og sigruðu KA 2-1.

Steinþór veðjaði á eigin leik og verður í banni út árið
Steinþór Freyr Þorsteinsson, knattspyrnumaður úr KA, hefur verið úrskurðaður í bann frá allri þátttöku í knattspyrnu út árið 2023, vegna veðmála á leiki.

Steinþór kærður af KSÍ fyrir að veðja á leiki
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur kært Steinþór Frey Þorsteinsson, leikmann KA í Bestu deild karla í fótbolta, fyrir brot á veðmálareglum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór/KA 1-0 | Meistararnir unnið þrjá í röð
Íslandsmeistarar Vals unnu góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Þór/KA í 7. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valskonur tróna því enn á toppnum og hafa nú unnið þrjá deildarleiki í röð, en þetta var hins vegar þriðja tap Þórs/KA í röð.

„Alltaf langbest að skjóta með vinstri“
Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, var nokkuð sáttur eftir 1-0 sigur liðsins gegn Þór/KA í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Grindavík 2-1 | Akureyringar í undanúrslit eftir torsóttan sigur
KA varð í dag þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Grindavík á Akureyri. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu eftir að Grindvíkingar höfðu komið til baka í síðari hálfleik.

Birgir: Draumur hjá mér að vinna þennan bikar
Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, spilaði í vinstri bakvarðarstöðunni og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-1 sigri KA á Grindavík í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Greifavellinum á Akureyri í dag. Birgir var kampakátur strax eftir leik sér bikarúrslitin í hyllingum.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 4 -0 KA | Stjarnan lyftir sér úr fallsæti með stórsigri
Stjarnan fór með 4-0 sigur af hólmi er liðið mætti KA í Bestu deild karla í kvöld.

Kjóstu besta leikmann maí í Bestu deildinni
Fjórir leikmenn eru tilnefndir sem besti leikmaður maí í Bestu deild kvenna í fótbolta og nú geta lesendur Vísis kosið um hver þeirra skaraði fram úr.

Sjáðu markaveislu Fylkis og KR í Árbænum og mörkin úr FH-sigri á Akureyri
Fylkir og KR buðu upp á sex marka leik í Lautinni í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og það er ekki hægt að segja annað en Vesturbæingar séu farnir að finna markið aftur.

„Við erum með í mótinu“
Ég er gríðarlega ánægður. Það að fara með þrjú stig héðan er frábært. Þetta er erfiður heimavöllur að koma á og það er erfitt að mæta flottu liði Þór/KA, sagði Guðni Eiríksson þjálfari FH eftir 2-0 sigur á Þór/KA á Akureyri í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - FH 0-2 | Hafnfirðingar gerðu góða ferð norður
FH vann sinn annan sigur í Bestu deild kvenna á tímabilinu þegar liðið vann 2-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan í kvöld. FH fer úr fallsæti með sigrinum.

Allan samdi til tveggja ára við Val
Valsmenn hafa nú tilkynnt um komu færeyska landsliðsmannsins Allans Norðberg en hann kemur til félagsins eftir að hafa gegn stóru hlutverki í liði KA á liðnum árum.

Fyrsta liðið síðan KA 2002 til að komast í oddaleik 2-0 undir
Haukar eru fyrsta liðið í 21 ár sem tryggir sér oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla.

Fengu leikmann Viljandi og norskan markvörð
Handknattleiksdeild KA hefur tryggt sér tvo erlenda leikmenn fyrir átökin í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Annar er reynslubolti frá Eistlandi en hinn ungur markvörður frá Noregi.

Sjáðu Tryggva Hrafn halda lífi í titilbaráttu Bestu deildarinnar
Valsmenn urðu í gær fyrstir til að vinna Víkinga í Bestu deildinni í sumar og komu í veg fyrir að Fossvogsliðið stingi hreinlega af i deildinni.