Íslendingar erlendis

Gera geggjuð fjölskyldujólakort: „Ekki einu sinni mamma veit neitt“
„Það eru allir alla leið í þessu. Eða „all in“ eins og maður segir. Krakkarnir meira að segja pressa á okkur hvenær við ráðumst í þetta. Tengdabörn eru með. Vinir og vandamenn spyrja hvað megi búast við með næsta jólakorti,“ segja hjónin Lóa Dís Finnsdóttir og Torfi Agnarsson um fjölskyldujólakortin sem send hafa verið út síðustu árin og vægast sagt vekja athygli.

Kokkalandsliðið stefnir aftur á gullið
Íslenska kokkalandsliðið hefur keppni á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í dag. Liðið vann til gullverðlauna á síðasta heimsmeistaramóti árið 2018 og stefnir ótrautt á að endurtaka leikinn.

Ætlar sér að verða betri maður eftir martraðarkennda fangelsisvist
Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til landsins eftir að hafa verið síðustu átta mánuði í spænsku fangelsi. Hann segir gróft ofbeldi á við morð og nauðganir hafa verið daglegt brauð í fangelsinu.

Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“
„Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á.

Ragga Ragnars fékk líflátshótanir eftir myndatökur í Yellowstone
Ragnheiður Ragnarsdóttir, leikkona og fyrrverandi afreksmaður í sundi, fékk líflátshótanir frá notendum á Instagram eftir að hún baðst afsökunar á því að hafa gengið um hverasvæðið í Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum.

„HM snýst ekki um bjór og brennivín“
„Fyrir mér ætti þetta að vera ævintýri fyrir fólk sem snýst ekki um bjór, heldur fótbolta“ segir fyrrum fótboltamaðurinn Jónas Grani Garðarsson sem starfar í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta hófst í dag. Katarar hættu við bjórsölu í nánd við velli mótsins á föstudag.

Þórir Hergeirs forviða á spurningu blaðamanns | „Heimskasta spurning sem ég hef heyrt“
Þórir Hergeirsson er á leið í enn einn úrslitaleikinn á stórmóti í dag þegar stelpurnar hans í norska handboltalandsliðinu mæta Dönum í úrslitaleik EM.

Kristján Einar hefur „sögur að segja“ eftir fangelsisvist á Spáni
Sjómaðurinn og áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson er nú laus úr fangelsi eftir að hafa setið inni í átta mánuði. Þessu greinir hann frá á Instagram reikningi sínum.

Íslendingur í Katar segir gagnrýnina óvægna: „Hafa ekki notið vafans“
Jónas Grani Garðarsson, fyrrum leikmaður FH og Fram í efstu deild, sem nú starfar sem sjúkraþjálfari í Katar, segir gagnrýni Evrópuríkja í garð Katara eiga til að vera ósanngjarna.

Styðjum við íslenska læknanema erlendis
Menntasjóði námsmanna (sem áður hét Lánasjóður íslenskra námsmanna) er ætlað að vera félagslegt jöfnunartæki sem veitir öllum námsmönnum tækifæri til náms og styður um leið við menntun, nýsköpun og þekkingu í íslensku samfélagi. Fjöldi námsmanna velur að fara erlendis í nám, enda er það þroskandi og gefandi fyrir hvern og einn, en ekki síst gagnlegt fyrir íslenskt samfélag sem vegna smæðar getur ekki boðið upp á nám á öllum sviðum.

Stjörnulífið: „Ég verð að fara að heyra í þeim aftur og láta þá laga aðeins í hornunum“
Ferðalög, djammið og bónorð í París vöktu athygli á samfélagsmiðlum í liðinni viku. Feðradagurinn tók svo yfir samfélagsmiðlana í gær. Instagram var bókstaflega yfirfullt af fallegum skilaboðum til þeirra sem gefa sig alla í stóra hlutverkið.

Huga þurfi að sjúkratryggingum þegar ferðast er til Bretlands
Sendiherra Íslands í Bretlandi hvetur Íslendinga til að gera ráðstafanir áður en þeir ferðast þangað. Margt hafi breyst eftir að Brexit gekk í gegn. Meðal annars gilda evrópsku sjúkratryggingaskírteinin yfirleitt ekki lengur þar í landi.

Sporvagn skreyttur norðurljósum í tilefni af formennsku Íslands
Ísland tók í dag formlega við formennsku Evrópuráðsins af Írum á fundi ráðherraráðsins í Strassborg. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra er nýr formaður ráðherranefndarinnar. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland tekur við formennsku ráðsins.

Alveg jafn sátt með appelsínuöndina sex árum síðar
Ellen Guðmundsdóttir sló óvart í gegn hér á landi fyrir sex árum síðan þegar eiginmaður hennar birti mynd af henni á Facebook. Þá misskildi vinur hans færsluna og hélt hann væri að kalla eiginkonu sína appelsínuönd.

Guðni heldur í fyrirlestraferð til Bandaríkjanna
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heldur í dag í fyrirlestraferð til Bandaríkjanna. Þar mun hann heimsækja þrjá háskóla.

Stjórnar hljómsveitinni og syngur óperu á sama tíma
Óperudagar fara nú fram í sjötta sinn í Hörpu en lokahátíð þeirra fer fram á morgun. Þar mun 21 árs gömul tónlistarkona frumflytja þrjú íslensk verk. Hún stjórnar ekki aðeins hljómsveitinni heldur syngur hún á sama tíma.

Noregur hefur titilvörnina á sigri
Keppni hófst á Evrópumóti kvenna í handbolta í dag. Mótið fer fram í Slóveníu, Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu en leikið var í A- og B-riðli í fyrst nefnda landinu í kvöld.

Erum við hætt að skilja sum starfsheiti?
Veistu hvað Partner Success Manager gerir? En Global Engagment & Cultural Manager? Hvað gerir sá sem er titlaður Leiðtogi?

Ólafur Elíasson kynnti verk sitt í eyðimörkinni í Katar
Íslensk-danski listamaðurinn Ólafur Elíasson kynnti í gær verk sitt í eyðimörkinni í Katar í tengslum við listahátíðina Qatar Creates Week.

„Ég sagðist vera hjartalæknir sem þýðir að nú er ég kallaður doktor þar“
„Ég á erfitt með þetta. Finnst ég kannski ekki nógu merkilegur. Þetta er svona feimnistilfinning,“ segir Snæbjörn Arngrímsson þegar hann reynir að skýra út hvers vegna honum finnst erfitt að kalla sig rithöfund.

Emilíana Torrini klippti sig stutt eftir ágreining við Vogue
Tónlistarkonan Emilíana Torrini rifjar upp erfiða upplifun sína af myndatöku sem hún fór í hjá tískutímaritinu Vogue þegar hún var aðeins tuttugu ára gömul.

Kalla eftir hjálp við að flytja lögheimili Gylfa frá Bretlandi til Íslands
Sótt hefur verið um flutning á lögheimili knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðsson frá Bretlandi til Íslands. Umsókn þess efnis liggur á borði Þjóðskrár. Faðir hans segist hafa kallað eftir aðstoð utanríkisráðherra vegna málsins en Gylfi sætir enn farbanni í Bretlandi. Þá hafi ekkert heyrst frá KSÍ vegna máls Gylfa. Sigurður faðir Gylfa segir brotið á mannréttindum sonar hans.

Mafíusögur 2022: „Er einhver frægur kominn hingað?“
Það er yfir þrjátíu stiga hiti á paradísareyjunni Ustica, en hún er í ríflega klukkustundar siglingafjarlægð frá Palermo á Sikiley.

Verðmæti menningarlæsis
Þegar ég lagði af stað í skiptinemadvölina mína til Ítalíu, vissi ég ekki nákvæmlega hversu hár kletturinn var sem ég myndi þurfa stökkva af, en ég var fullviss um að flugið yrði þess virði og tilfinning frelsisins var eitthvað sem ég gat ekki einu sinni byrjað að ímyndað mér í september á síðasta ári.

„Platan varð eiginlega óvart til“
„Platan varð eiginlega óvart til,“ segir söngvarinn Aron Hannes Emilsson í samtali við Vísi. Hann var að gefa út plötuna Twenties í dag og nýlega varð hann einnig faðir. Hann segir plötuna vera yfirferð á fyrri helming þrítugsaldursins þar sem hann fer yfir ástina, hugsanir, heimþrá og óöryggið.

Skroppið til Portúgal í bjór og sól en engan farseðil á HM
Það eru tuttugu klukkustundir síðan vekjaraklukkan hringdi í vesturbæ Reykjavíkur. 183 Íslendingar sitja á flugvellinum í Porto og bíða eftir því að komast aftur á klakann. Síðasti bjórinn teygaður. D-vítamínsöfnun dagsins er lokið. Hið daglega amstur er handan við hornið. HM draumurinn er úti. Þetta hefði alls ekki þurft að enda svona.

Klara söng á meðan Kim Kardashian gekk inn á veitingastað í Mílanó
Glöggir áhorfendur The Kardashians raunveruleikaþáttanna máttu heyra kunnuglega rödd óma í tveimur atriðum í nýjasta þættinum. Það er engin önnur en hin íslenska tónlistarkona Klara Elíasdóttir eða Klara Elias sem syngur í þessum heimsfrægu þáttum - og það ekki í fyrsta sinn.

Áhugi heimamanna við frostmark en McDonalds borgarar glöddu
„Borgarar fyrir alla,“ kallaði Ingimar Elí Hlynsson, fararstjóri Icelandair, þegar hann steig út úr leigubíl á torgi nokkru í Pacos de Ferreira með poka fullan af ostborgurum frá McDonald's. Kærkomið fyrir svanga stuðningsmenn í bæ sem virðist ekki hafa átt von á einum né neinum í tengslum við stórleik í fótbolta.

Stuðningssveitin lent í Porto
Flugvél stuðningssveitar íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta lenti á flugvellinum í Porto í Portúgal um klukkan 11 í morgun. Mikil stemmning er í hópnum nú þegar um fimm tímar eru í leik.

Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“
„Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara.