Ísrael

Níu bornir til grafar í Jenin eftir innrás Ísraelsmanna
Íbúar í flóttamannabúðunum í Jenin á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum í Palestínu báru þá sem féllu í innrás Ísraelshers á búðirnar til grafar í dag.

Ísraelsmenn segja aðgerðum í Jenín lokið
Ísraelsmenn segjast hafa hætt aðgerðum sínum í flóttamannabúðunum í Jenín á Vesturbakkanum eftir tveggja sólarhringa átök.

Vegfarandi myrti árásarmann í Tel Aviv
Ísraelsmenn hafa haldið hernaðaraðgerðum sínum í flóttamannabúðum í borginni Jenin á Vesturbakkanum áfram í dag. Ellefu Palestínumenn hafa fallið í innrás Ísraelshers í búðirnar, yfir hundrað særst og um 120 verið handteknir.

Ók á vegfarendur og stakk í Tel Aviv
Ungur Palestínumaður ók bíl inn í hóp fólks á strætisvagnabiðstöð og stakk fólk með eggvopni í Tel Aviv í Ísrael í dag. Herskáir hópar Palestínumanna líta á hryðjuverkið sem svar við umfangsmikilli hernaðaraðgerð Ísraela á Vesturbakkanum.

Tíu látnir í Jenín og þúsundir flýja búðirnar
Þúsundir Palestínumanna hafa nú flúið flóttamannabúðirnar í borginni Jenín eftir að Ísraelsher gerði árásir á búðirnar úr lofti og af jörðu niðri. Herinn segist vera í aðgerðum gegn palestínskum vígamönnum sem hafi aðsetur í búðunum.

Mesta hernaðaríhlutun Ísraels í 20 ár
Ísraelski herinn réðst í morgun inn í borgina Jenin á yfirráðasvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum í veigamestu hernaðaraðgerð sinni þar í um tuttugu ár. Að minnsta kosti átta Palestínumenn hafa verið felldir og tugir særðir.

Segja aðgerðirnar á Vesturbakkanum geta varað í fleiri daga
Fulltrúi Ísraelshers segir að aðgerðir hans gegn vígahópum á Vesturbakkanum gætu varað í nokkra daga. Átta Palestínumenn eru nú sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna sem er lýst sem þeim umfangsmestu í tuttugu ár.

Fimm látnir í umfangsmiklum aðgerðum Ísraela á Vesturbakkanum
Ísraelsmenn eru sagðir hafa hafið umfangsmestu hernaðaraðgerðir sínar á Vesturbakkanum í mörg ár. Aðgerðirnar hófust í nótt, með árásum úr lofti og á jörðu niðri. Að minnsta kosti fimm Palestínumenn liggja í valnum og tugir eru særðir.

Refsa þurfi Ísraelsmönnum til að koma á friði
Margverðlaunaður ísraelskur blaðamaður segir að Ísraelsmenn muni ekki láta af hernaði sínum og aðskilnaðarstefnu gagnvart Palestínumönnum fyrr en alþjóðasamfélagið refsi þeim. Núverandi ríkisstjórn landsins væri versta fasista- og öfgatrúarstjórn frá stofnun Ísraelsríkis.

Áhyggjur vegna byggingaráforma á Vesturbakkanum
Bandaríkjamenn segjast hafa þungar áhyggjur af þróun mála á Vesturbakkanum eftir að í ljós kom að fyrirætlanir um að byggja 4.560 nýjar íbúðir á Vestubakkanum verða teknar fyrir af Yfirskipulagsráði Ísrael í næstu viku.

Sema gagnrýnir Ísraelstónleika Kaleo
Sema Erla Serda, aktívisti, skýtur föstum skotum á hljómsveitina Kaleo í nýlegri Facebook færslu vegna fyrirhugaðra tónleika þeirra í Ísrael seinna í mánuðinum.

Kaleo: Ekki spila í Ísrael
Í ár eru 75 ár síðan hundruðir þúsunda íbúa Palestínu voru hraktir frá heimalandi sínu, heimili þeirra jöfnuð við jörðu og landi þeirra stolið í þeim tilgangi að stofna Ísraelsríki. Síðan þá hafa ísraelsk stjórnvöld hernumið stærstan hluta Palestínuríkis, hrakið milljónir á flótta, skipulega myrt fólk og börn.

Beðið eftir mannréttindum - í sjötíu og fimm ár!
Ég byrja þetta bréf með tilvitnunum í ykkar eigin orð:„Dýpsta hugmyndafræðilega baráttan á okkar tímum snýst um mannréttindi og snýst um lýðréttindi og lýðræðismál“ „Við getum haft áhrif á það hvernig sagan endar. Það kallar á hugrekki, visku, auðmýkt og leiðtogahæfni.“

Drápu tólf í loftárásum á Gaza
Að minnsta kosti tólf Palestínumenn eru látnir, þar á meðal þrír háttsettir liðsmenn í samtökunum Heilagt stríð, í árásum Ísraelshers á Gaza-ströndinni.

Handtekinn grunaður um nauðgunartilraun og heróínvörslu
Ísraelski markvörðurinn Boris Klaiman, sem leikur með Volos í grísku úrvalsdeildinni, var handtekinn í gær eftir að 17 ára stúlka sakaði hann um tilraun til nauðgunar.

Ítalskur túristi og breskar systur létust í hryðjuverkaárásum
Palestínskir árásarmenn myrtu þrjá og slösuðu að minnsta kosti sex á Vesturbakkanum í gær. Fyrr um daginn höfðu Ísraelar gert loftárásir á Líbanon og Gaza-ströndina. Ólga á Vesturbakkanum hefur magnast undanfarna daga á sama tíma og múslimar halda Ramadan-mánuð heilagan og gyðingar fagna páskahátíðinni. Óttast er að átökin muni stigmagnast.

Hamas beri ábyrgð á eldflaugaárásunum í Líbanon
Ísraelsher sakar Hamas-samtökin um að standa að baki eldflaugaárás sem gerð var í suður Líbanon í dag á landsvæði í norður Ísrael. Loftvarnir hafi skotið niður flestar þeirra 34 flauga sem skotið var.

Netanyahu frestar málinu og segist ætla í viðræður við andstöðuna
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur ákveðið að fresta umræðum um afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla fram að næsta þingi. Segist hann í millitíðinni munu freista þess að ná samkomulagi um málið við pólitíska andstæðinga.

Lóa Pind fann loksins dýrari matarkörfu en á Íslandi
Lóa Pind heimsótti fiðluleikarann Ara Vilhjálmsson sem fór fyrir nokkrum árum í örlagaríkt frí til Ísrael. Á síðasta degi féll hann fyrir einum innfæddum og þá var ekki aftur snúið.

„Augu heimsbyggðarinnar eru á ykkur“: Forsetinn biðlar til ráðamanna að sýna á ábyrgð
Isaac Herzog, forseti Ísrael, hefur kallað eftir því að hætt verði við afar umdeildar breytingar á lögum um dómstóla. Tugþúsundir Ísraelsmanna flykktust út á götur í gær eftir að forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu lét varnarmálaráðherrann fjúka vegna málsins.

Netanjahú „ekki í tengslum við raunveruleikann“
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, rak varnarmálaráðherrann Yoav Galant í dag eftir að hinn síðarnefndi kallaði eftir því að hætt verði við umdeildar breytingar á dómskerfi landsins. Staða hans er talin í hættu eftir vendingarnar.

Óttast að umdeildar breytingar ógni öryggi Ísraels
Varnarmálaráðherra Ísraels hvatti ríkisstjórnina til þess að hætta við umdeildar breytingar á dómstólum landsins í gær. Hann óttast að hatrammar deilur um breytingarnar ógni þjóðaröryggi landsins.

Átök í mótmælum vegna umdeildra breytinga á dómstólum
Benjamin Netanyahu, forsætisráherra Ísrael, sagðist í gær ákveðinn í því að knýja fram breytingar á lögum er varða dómstóla, þrátt fyrir hörð mótmæli síðustu vikna. Þúsundir mótmæltu breytingunum í gær og átök brutust út milli mótmælenda og stuðningsmanna Netanyahu.

Topol er látinn
Ísraelski leikarinn Chaim Topol, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Tevye í stórmyndinni Fiðlarinn á þakinu frá árinu 1971, er látinn. Hann varð 87 ára gamall.

Hvað býr að baki stuðningi Vesturlanda við Ísrael?
Þrátt fyrir að Ísrael brjóti ítrekað gegn alþjóðasamningum sem vestræn ríki telja mikilvæga í samskiptum þjóða og viðhaldi mannréttinda, þá er ríkið ósnertanlegt. Ísrael hefur ástundað mannréttindabrot í áratugi - án viðurlaga.

Landtökumenn skutu mann og brenndu bíla og hús
Minnst einn Palestínumaður er látinn eftir að múgur ísraelskra landtökumanna brenndu fjölda húsa og bíla í þorpinu Huwara á Vesturbakkanum í gærkvöldi. Minnst hundrað eru sagðir særðir en múgurinn myndaðist eftir að byssumaður skaut tvo landtökumenn til bana við nærliggjandi þjóðveg.

Eldflaugaregn eftir blóðuga rassíu á Vesturbakkanum
Ísraelsher segir að herskáir Palestínumenn hafi skotið sex eldflaugum frá Gasaströndinni á Ísrael í nótt. Svo virðist sem að eldflaugaárásirnar séu svar við blóðugri rassíu Ísraela sem urðu ellefu Palestínumönnum að bana á Vesturbakkanum í gær.

Handtökur á Vesturbakkanum enduðu með blóðbaði
Að minnsta kosti tíu Palestínumenn eru látnir og tugir eru særðir eftir að til átaka kom þegar ísraelskir hermenn gerðu rassíu í borginni Nablus á Vesturbakkanum í dag. Óttast er að átökin gætu leitt til enn frekari blóðsúthellinga.

Íslensk stjórnvöld alfarið á móti landtökubyggðum Ísraela
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir íslensk stjórnvöld alfarið á móti nýjum landtökubyggðum sem Ísraelar ætla að reisa á landsvæðum Palestínumanna. Hún hitti utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínumanna í dag.

Umsvifa- og áhrifamikill undirróðurshópur afhjúpaður
Ísraelskur félagsskapur sem kallar sig „Team Jorge“ segist hafa tekið þátt í að hafa áhrif á niðurstöður yfir 30 forsetakosninga víðsvegar í heiminum. Teymið ræður yfir „her“ gervimenna og dreifir falsfréttum og fremur skemmdarverk í þágu viðskiptavina sinna.