Alonso ætlaði að sækja til sigurs Fernando Alonso varð annar í Formúlu 1 mótinu í Mónakó í gær á Ferrari, eftir harðan slag við Sebastian Vettel á Red Bull og Jenson Button á McLaren á lokasprettinum. Hann hugðist sækja til sigurs, en óhapp í lok mótsins varð til þess að það gekk ekki upp. Alonso er núna fimmti í stigamóti ökumanna, en Vettel efstur eftir fimm sigra í sex mótum. Formúla 1 30. maí 2011 08:36
Keppinautar gangrýna akstursmáta Hamilton í keppninni í Mónakó Felipe Massa gagnrýndi Lewis Hamilton fyrir akstursmáta hans í keppninni í Mónakó í dag og dómarar refsuðu Hamilton fyrir tvö brot í brautinni. Hamilton reyndi að þröngva sér framúr Massa í kröppustu beygju brautarinnar, en hann ók síðan Pastor Maldonado út úr mótinu undir lokin. Formúla 1 29. maí 2011 21:16
Vettel: Tókum áhættu mörgum sinnum og það gerir sigurinn enn sætari Sebastian Vettel á Red Bull vann sitt fimmta mót í Formúlu 1 á árinu, þegar hann kom fyrstur í endmark í Mónakó kappakstrinum í dag. Fernando Alonso á Ferrari og Jenson Button á McLaren sóttu stíft að honum í lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði. Formúla 1 29. maí 2011 19:41
Vettel vann fimmta kappaksturinn á tímabilinu Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull tryggði sér sigur í Mónakó-kappaksturinn í formúlu eitt í dag eftir hraða keppni við Spánverjann Fernando Alonso hjá Ferrari og Englendinginn Jenson Button hjá McLaren. Formúla 1 29. maí 2011 14:20
Rásröðinni breytt fyrir kappaksturinn í Mónakó í dag Breytingar hafa verið gerðar á rásröð Formúlu 1 ökumanna fyrir Mónakó kappaksturinn í dag, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 11.30. Formúla 1 29. maí 2011 10:16
Vettel: Mikilvægt að vera fremstur á ráslínu Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í tímatökum í dag í Mónakó og sagði á fréttamannafundi að mikilvægt væri að vera fremstur á ráslínu, en mikilvægast hefði verið að Sergio Perez, sem lenti í óhappi í dag væri í lagi. Formúla 1 28. maí 2011 22:03
Perez tognaður og með heilahristing Sauber Formúlu 1 liðið sendi frá sér fréttatilkynningu vegna óhapps Formúlu 1 ökumannsins Sergio Perez í tímatökunni í Mónakó í dag. Perez var fluttur á Princess Grace spítalann í Mónakó eftir að hann skall harkalega á varnarvegg í brautinni. Formúla 1 28. maí 2011 15:45
Vettel fljótastur í tímatökum sem töfðust vegna óhapps Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í tímatökum á Mónakó kappakstursbrautinni í dag. Tímatakan tafðist mikið vegna óhapps sem henti Sergio Perez hjá Sauber í lok tímatökunnar. Perez skall harkalega á varnarvegg og stöðvaðist tímatakan í langan tíma af þeim sökum á meðan hugað var að Perez. Formúla 1 28. maí 2011 14:49
Alonso fljótastur á lokaæfingunni, en Rosberg fékk harðan skell Fernando Alonso á Ferrari var með besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða í Mónakó í dag, en tímatakan fer fram í hádeginu og hefst bein útsending frá henni á Stöð 2 Sport kl. 11.45. Formúla 1 28. maí 2011 10:26
Alonso: Verðum að taka áhættu Fernando Alonso var fljótasti ökumaðurinn á æfingum Formúlu 1 liða í Mónakó í gær, en lokaæfing og tímatakan fyrir Mónakó kappaksturinn sem fer fram á sunnudaginn verður á morgun. Ökumenn aka ekki í dag á brautinni í Mónakó, en hefð er fyrir því að aka fyrstu tvær æfingarnar á fimmtudögum í furstadæminu. Formúla 1 27. maí 2011 12:51
Alonso fljótastur á seinni æfingunni Fernando Alonso á Ferrari var 0.105 sekúndum fljótari en Lewis Hamilton á á McLaren seinni æfingu Formúlu 1 liða í Mónakó í dag. Þriðji varð Nico Rosberg á Mercedes, 0.198 úr sekúndu á eftir. Formúlu 1 mótið í Mónakó fer fram á sunnudaginn, en samkvæmt hefð í Mónakó fara fyrstu æfingar fram á fimmtudögum. Formúla 1 26. maí 2011 14:09
Vettel rétt á undan Alonso í Mónakó Sebastain Vettel á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu fyrir Mónakó kappaksturinn sem verður á sunnudaginn. Fyrsta og önnur æfing fer fram á fimmtudögum samkvæmt hefð i Mónakó, ekki á föstudögum eins og í öðrum mótum. Vettel var 0.113 sekúndum á undan Fernando Alonso á Ferrari æfingunni, en Nico Rosberg 'a Mercedes varð þriðji. Formúla 1 26. maí 2011 10:08
Perez telur ökumanninn skipta meira máli í Mónakó, en á öðrum brautum Sergio Perez hjá Sauber Formúlu 1 liðinu telur að ökmaðurinn skipti meira máli í keppninni í Mónakó, en á öðrum brautum í Formúlu 1. Hann keppir á brautinni um næstu helgi ásamt liðsfélaga sínum Kamui Kobayashi. Perez er nýliði á þessu ári í Formúlu 1 en vann keppni í Mónakó í GP2 mótaröðinni í fyrra. Margir ökumenn hafa komið úr GP2 mótaröðinni í Formúlu 1. Formúla 1 23. maí 2011 17:30
Vettel: Minnstu mistök dýrkeypt Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er búinn að vinna fjögur mót á árinu og næsta viðfangsefni hans er keppnin í Mónakó um næstu helgi. Þar mætir hann ásamt liðsfélaganum Mark Webber, sem vann keppnina í Mónakó í fyrra. Vettel vann mótið á Katalóníu brautinni á Spáni í gær, eftir hörkueppni við Lewis Hamilton hjá McLaren. Formúla 1 23. maí 2011 16:15
Hamilton og Button telja Mónakó brautina erfiðustu braut ársins Lewis Hamilton hjá McLaren varð annar í Formúlu 1 kappakstrinum á Spáni í gær, á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull. Hamilton keppir í Mónakó um næstu helgi með McLaren ásamt landa sínum Jenson Button, sem varð þriðji í gær. Formúla 1 23. maí 2011 14:58
Schumacher og Rosberg njóta þess að keppa í furstadæminu Mónakó Næsta Formúlu 1 mót er á götum furstadæmisins Mónakó um næstu helgi og Mercedes liðið mætir að venju til keppni með Michael Schumacher og Nico Rosberg sér til fulltingis. Schumacher varð sjötti á Spáni í gær og Rosberg sjöundi, þegar keppt var á Katalóníu brautinni. Formúla 1 23. maí 2011 14:13
Vettel ánægður eftir erfiðan dag Sebastian Vettel vann sinn fjórða sigur í Formúlu 1 ár þessu keppnistímabili í dag, eftir harða keppni við Lewis Hamilton á McLaren allt til loka mótsins á Katalóníu brautinni á Spáni. Munaði aðeins 0.630 úr sekúndu á þeim í endamarkinu. Formúla 1 22. maí 2011 18:51
Vettel vann spennandi mót á Spáni Sebastian Vettel hjá Red Bull vann fjórða mót sitt á árinu, þegar hann kom fyrstur í endamark í Formúlu 1 mótinu á Spáni í dag. Hann varð aðeins 0.630 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Jenson Button á McLaren varð þriðji. Formúla 1 22. maí 2011 15:30
Webber telur mögulegt að geta stefnt á sigur Mark Webber hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu verður fremstur á ráslínu þegar spænski kappaksturinn fer fram á morgun, á Katalóníu brautinni. Hann náði í dag besta tíma í tímatökum í fyrsta skipti á þessu ári. Sebastian Vettel er annar á ráslínu á Red Bull, Lewis Hamilton á McLaren þriðji og Fernando Alonso fjórði á Ferrrari. Formúla 1 21. maí 2011 21:11
Mark Webber fremstur á ráslínu í fyrsta skipti á árinu Webber á Red Bull náði besta tíma í tímatökum á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Hann varð 0.200 úr sekúndu á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji 0.980 á eftir Webber. Formúla 1 21. maí 2011 13:39
Vettel rétt á undan Webber á lokaæfingunni fyrir tímatökuna Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Katalóníu brautinni á Spáni í morgun, en tímatakan fer fram í hádeginu og verður hún sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá. Formúla 1 21. maí 2011 10:22
Webber rétt á undan Hamilton á seinni æfingunni á Spáni Mark Webber á Red Bull var 0.039 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á seinni æfingu Formúlu 1 keppnisliða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji, 0.356 úr sekúndu á eftir, en Jenson Button varð fjórði á McLaren. Formúla 1 20. maí 2011 14:24
Webber fljótastur á fyrstu æfingu Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða á Katalóníu Formúlu 1 brautinni á Spáni í morgun. Hann var rúmlega sekúndu fljótari en liðsfélagi hans, Sebastiann Vettel. Webber vann mótið á Spáni í fyrra. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji á Mercedes og Fernando Alonso á á Ferrari fjórði, en hann er heimamaður. Landi Alonso, Jamie Alguersuari á Torro Rosso varð átjándi. Formúla 1 20. maí 2011 10:33
Alguersuari stefnir á vera meðal tíu fremstu á heimavelli Spánverjinn Jamie Alguersuari er á heimavelli á Katalóníu Formúlu 1 brautinni á Spáni um helgina, rétt eins og landi hans Fernando Alonso, sem er ætíð hylltur af heimamönnum. Alguersuari ekur með Torro Rosso og fær trúlega ekki sömu athygli og Alonso sem er í toppslagnum ár frá ári, en Alguersuari hefur keppt frá árinu 2009 í Formúlu 1. Formúla 1 19. maí 2011 16:48
Ferrari framlengdi samning við Alonso til ársloka 2016 Ferrari liðið hefur framlengt samning sinn við Fernando Alonso til ársloka 2016, samkvæmt fréttatilkynningu frá Ferrari liðinu, en fyrri samningurinn var til 2012 samkvæmt frétt á autosport.com Formúla 1 19. maí 2011 15:33
Webber vill komast á efsta þrep verðlaunapallsins á Spáni á ný Mark Webber vann spænska kappaksturinn á Katalóníu brautinni á Spáni í fyrra og keppir á ný með Red Bull um helgina ásamt forystumanni stigamótsins, Sebastian Vettel. Webber var fremstur á ráslínu á brautinni fyrir kappaksturinn í fyrra og nýtti það vel, en síðustu 10 sigurvegarar mótins á Spáni hafa verið fremstir á ráslínu í upphafi kappakstur Formúla 1 19. maí 2011 14:43
Paul di Resta: Verðum að taka framfaraskref Formúlu 1 nýliðinn Paul di Resta hlakkar til mótsins á Spáni um helgina, sem fer fram á Katalóníu brautinni sem er í 35 km fjarlægð frá Barcelona, höfuðborg Katalóníu héraðsins. Di Resta og Adrian Sutil aka með Force India á braut sem var notuð til æfinga í vetur og hefur verið notuð frá árinu 1991. Formúla 1 19. maí 2011 14:07
Annasamur tími framundan hjá nýliðanum Belginn Jerome d'Ambrosio hjá Virgin Formúlu 1 liðinu telur að næstu næstu tvær vikur verði spennandi í augum áhorfenda, en keppt verður á Spáni um næstu helgi og í Mónakó helgina eftir. Hann hóf að keppa í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili og ekur með Timo Glock í liði Virgin sem er að hluta til í eigu Marussia bílaframleiðandans í Rússlandi. Formúla 1 18. maí 2011 15:10
Heidfeld telur Renault geta keppt við toppliðin Formúlu 1 ökumaðurinn Nick Heidfeld hjá Renault telur að ef lið sitt nær betri árangri í tímatökum, þá geti það keppt við liðin sem eru ofar að stigum, en það eru Red Bull, McLaren og Ferrari. Heidfeld varð sjöundi í síðustu keppni, sem var í Tyrklandi. Hann er með 21 stig í stigakeppni ökumanna eins og liðsfélaginn Vitaly Petrov, en sex ökumenn eru með fleiri stig. Þeir Renault félagar keppa á Spáni um helgina. Formúla 1 18. maí 2011 13:45
Reglubreyting FIA gæti breytt gangi mála í Formúlu 1 FIA hefur ákveðið að breyta reglum um útbúnað Formúlu 1 bíla til að sporna við þróun sem bílasambandið telur ekki góða til eftirbreytni í Formúlu 1 mótum ársins. FIA hefur sent keppnisliðum skilaboð vegna málsins, en keppt verður á Katalóníu brautinni, sem er nærri Barcelona á Spáni um næstu helgi Formúla 1 17. maí 2011 19:26
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti