

Sýningin Myndir ársins 2022 verður opnuð á Ljósmyndasafni Reykjavíkur klukkan 15 í dag. Veitt verða verðlaun fyrir fréttamyndir ársins.
Við höldum áfram að rifja upp sögur og viðtöl úr Atvinnulífinu í fyrra og í þetta sinn horfum við á starfsframann og tækifærin. Sem svo sannarlega geta verið alls konar.
Á sunnudögum í janúar ætlum við að rifja upp ýmiss viðtöl og efni úr Atvinnulífinu í fyrra eða á vegum umsjónarmanns Atvinnulífsins.
Innrás er orð ársins 2022 hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Lesendur Rúv völdu þriðju vaktina hins vegar orð ársins.
Karl III verður krýndur konungur, Indland mun taka fram úr Kína sem fjölmennasta ríki heims og kosningar eru fyrirhugaðar víða um heim.
Hjól tímans rúllar sífellt áfram og tölvuleikirnir fylgja með. Tölvuleikjaiðnaðurinn verður sífellt umfangsmeiri og leikirnir fleiri og stærri. Fyrstu mánuði ársins 2023 verður lítið um stóra drætti en von er á stórum leikjum seinna meir.
Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum desembermánuði. Tilkynnt var um sex hópuppsagnir á árinu 2022 þar sem 229 var sagt upp störfum.
Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu.
Að hækka stýrivexti þvert gegn ráðleggingum annarra hagfræðinga og seðlabanka krefst ekki aðeins hugrekkis heldur sömuleiðis ákveðni, eiginleikar sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Íslands hefur yfir að bera, segir í umfjöllun The Banker. Alþjóðlega fjármálatímaritið, sem er gefið út af The Financial Times, hefur valið Ásgeir sem seðlabankastjóra ársins 2023.
Karlalið Víkings í fótbolta var til umræðu í Sportsíldinni á gamlársdag, þar sem íþróttaárið var gert upp. Einn leikmanna liðsins átti fagn ársins.
Valur kom, sá og sigraði í Bestu deild kvenna í sumar. Eftir óvænt tap gegn Þór/KA á Akureyri í 2. umferð var sett í fimmta gír og spólað yfir önnur lið, í deild og bikar.
Besta deild karla var gerð upp í Íþróttasíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Segja má að Breiðablik hafi stolið senunni árið 2022 en eftir að missa titilinn úr greipum sér árið 2021 kom ekkert annað til greina en að landa þeim stóra. Sumarið 2022 var grænt svo vægt sé tekið til orða.
Sportsíldin var sýnd á Stöð 2 Sport á gamlársdag þar sem farið var yfir allt það helsta í íþróttalífinu á árinu. Tímabilið í Olís-deild karla var gert upp en Valsmenn unnu alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili.
Óhætt er að segja að umræðurnar hafi verið hressilegar í hinni árlegu Kryddsíld sem sýnd var í beinni útsendingu á Stöð 2 í gær.
Sportsíldin var sýnd á Stöð 2 Sport á gamlársdag þar sem farið var yfir allt það helsta í íþróttalífinu á árinu. Tímabilið í Olís-deild kvenna var gert upp en þar voru það Framkonur sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Bylgjan hefur tekið saman lista yfir vinsælustu lög stöðvarinnar árið 2022 en listinn er valinn út frá öllum Bylgjulistum ársins.
Árið 2022 er að renna sitt skeið og líkt og hvert ár hefur fjöldi knattspyrnumanna ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu. Töluvert magn heimsfrægra leikmanna ákvað að kalla þetta gott en að sama skapi voru menn að hætta sem flest öll okkar töldu að hefðu hætt fyrir löngu síðan.
Á þessum síðasta degi ársins er vert að líta yfir farinn veg í tónlistarheiminum en Árslisti FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2022 á stöðinni.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Valið var kunngjört í beinni útsendingu í Kryddsíldinni rétt í þessu. Ljóst er að Ásgeir hefur með ákvörðunum sínum haft gríðarleg áhrif á daglegt líf Íslendinga á árinu.
Haraldur Ingi Þorleifsson er maður ársins 2022 að mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu.
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar rifjaði í desember upp það helsta sem gerðist á árinu sem er að líða í formi tuttugu annála sem birtir voru alla virka daga. Hér að neðan má finna alla annála ársins.
Íþróttaljósmyndarar heimsins fylgdust vel með keppnum ársins og náðu mörgum eftirminnilegum stundum á mynd.
Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu á árinu 2022 sem senn líður undir lok.
Íþróttaárið 2022 á innlendum vettvangi var viðburðarríkt og þar skiptust á skin og skúrir.
Fréttamenn að mismæla sig, viðmælendur í hláturskasti, spaugilegar hrakfarir og fyndnar aðstæður. Við skyggnumst á bak við tjöldin í síðasta annál þessa árs.
Stórir sigrar, sorg og spilling er á meðal þess sem bregður fyrir í mest lesnu fréttum íþróttavefs Vísis á árinu.
Níu létust í umferðinni á árinu sem er að líða, fjórir í flugslysi og tveir á sjó.
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.
Það skiptust á skin og skúrir á árinu sem er að líða, eins og öll ár þar á undan auðvitað. Sumt gekk vel, eins og Einari Þorsteins í sveitarstjórnarkosningunum, en annað gekk alveg ótrúlega illa, eins og sorphirða í Reykjavík.
Ingibjörg Magnúsdóttir og Matthías Örn Friðriksson eru pílukastarar ársins hjá Íslenska pílukastssambandinu.