Annáll Olís-deildar karla: Valsmenn öðrum framar Smári Jökull Jónsson skrifar 2. janúar 2023 07:00 Valsmenn unnu alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili. Sportsíldin var sýnd á Stöð 2 Sport á gamlársdag þar sem farið var yfir allt það helsta í íþróttalífinu á árinu. Tímabilið í Olís-deild karla var gert upp en Valsmenn unnu alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili.
Allir helstu sérfræðingar Stöð 2 Sport komu saman á gamlárskvöld í Sportsíldinni þar sem íþróttaárið var gert upp í máli og myndum. Í Olís-deild karla voru Valsmenn liðið sem skaraði fram úr og vann alla titla sem í boði voru á tímabilinu. Valsarar hófu tímabilið með sigri á Haukum í Meistarakeppni HSÍ og hófu síðan tímabilið vel þrátt fyrir að lykilleikmenn hefðu helst úr lestinni vegna meiðsla. Bræðurnir Benedikt Gunnar og Arnór Snær Óskarssynir vöktu gríðarlega athygli og voru fremstir í flokki í Valsliðinu sem tókst að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Úrslitakeppnin var æsispennandi. Einvígi Hauka og KA í 8-liða úrslitum var gríðarlega dramatískt sem og viðureign FH og Selfyssinga. Að lokum voru það þó lið Vals og ÍBV sem tryggðu sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Klippa: Annáll - Olís deild karla Einvígi þeirra var stútfullt af dramatík. Valsmenn völtuðu yfir Eyjamenn í fyrsta leiknum sem sýndu síðan gríðarlegan karakter á heimavelli í leik tvö og komu til baka. Í þriðja leiknum hafði Valur betur eftir mikla spennu og gátu því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í leik fjögur í Vestmannaeyjum. Það tókst þeim eftir mikinn baráttuleik og Íslandsmeistaratitillinn því Valsmanna. Valur varð einnig bikarmeistari í fyrra og vann því alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili. Það afrek tryggði þeim verðlaun sem lið ársins á hófi íþróttafréttamanna nú í lok ársins, sem og Snorra Steini Guðjónssyni tilnefningu sem þjálfari ársins. Alla umfjöllunina í Sportsíldinni um Olís-deild karla má sjá hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Valur Fréttir ársins 2022 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira