
Skimun fyrir krabbameini

„Þetta er grafalvarlegt mál“
Á þriðja tug kvenna hafa kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini hér á landi. Umboðsmaður segir um grafalvarlegt mál að ræða og að hann fylgist grannt með stöðu mála.

Áttu „mjög góðan“ fund með umboðsmanni
„Hann hefur verið að fylgjast með málinu, er að gera það og mun gera það,“ segir Erna Bjarnadóttir, forsvarsmaður Facebook-hópsins Aðför að heilsu kvenna, sem fundaði með Umboðsmanni Alþingis nú í morgun.

Svandís segir það í skoðun að flytja rannsóknirnar aftur heim
Heilbrigðisráðherra segist hafa það til skoðunar að flytja rannsóknir á leghálssýnum aftur heim frá Danmörku. Hún segir það þó krefjast mikils undirbúnings.

Heilsugæslan segist ekki „henda“ sýnum
Forsvarsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segjast ekki „henda“ sýnum sem berast Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilsugæslunnar.

Læknar ræða að fá Landspítala til að rannsaka einkennasýni
Læknar skoða nú þann möguleika að Landspítalinn taki að sér rannsóknir á einkennasýnum frá leghálsi. Vísir hefur heimildir fyrir því að þetta hafi verið rætt innan Landspítalans.

Telur mögulega saknæmt að henda sýnum kvenna með einkenni krabbameins
Fæðinga- og kvensjúkdómalæknir segir að Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana Heilsugæslunnar hafa gert lítið úr konum, sem sýnt hafa einkenni leghálskrabbameins, með því að hafa hent sýnum þeirra. Hún veltir því fyrir sér hvort förgun slíkra sýna sé mögulega saknæm.

Segir kerfið virðast svo stíft að það taki yfir læknisfræðina
Fyrrverandi formaður Læknafélags Íslands vill að læknar fái ákveða sjálfir hvort leghálssýni sjúklinga þeirra verði tekin til rannsóknar eða ekki. Hann segir kerfið alltof stíft og farið að taka yfir læknisfræðina.

Með frumubreytingar og einkenni en sýninu engu að síður hent
Kona sem greindist með frumubreytingar í leghálsi í júní í fyrra og hefur verið með dæmigerð einkenni leghálskrabbameins fær sýnið sitt ekki rannsakað. Ákvörðun þess efnis var tekin af Kristjáni Oddssyni, yfirmanni Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.

Réttindi kvenna og kynfæri þeirra
Íslenskar konur eiga mun betra skilið nú þegar konur sitja í æðstu embættum landsins sem lúta að heilbrigðismálum.

Persónuvernd telur mögulega tilefni til að útvíkka athugun sína
Persónuvernd hefur borist svar frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu um það hvernig leitast er við að tryggja öryggi við auðkenningu leghálssýna sem send eru til Danmerkur og upplýsinga sem verða til við rannsóknir á þeim.

Kvensjúkdómalæknar gagnrýna skýrslu um skimanir
Stjórn Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna hefur gefið úr tilkynningu þar sem hún gagnrýnir skýrslu sem Haraldur Breim vann fyrir heilbrigðisráðherra um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir leghálskrabbameini.

Nauðsynlegt að fá fleiri konur í leghálsskimanir
„Skimunin hófst 1964 þannig að þetta er orðið ótrúlega langur tími,“ segir Sigrún Arnardóttur kvensjúkdóma- og fæðingalæknir.

Heilbrigðisráðuneytið vill engu svara um leghálssýnarannsóknir
Heilbrigðisráðuneytið segist ekki getað svarað því hvort breytinga sé að vænta varðandi framtíðarfyrirkomulag rannsókna á leghálssýnum í tengslum við skimun eftir leghálskrabbameini.

Stirðlegt yfirtökuferli „gagnrýnivert“ en enginn gerður ábyrgur
Fátt nýtt kemur fram í skýrslu sem Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, hefur unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi.

Ekkert bólar á skýrslu um skipulag og framkvæmd leghálskimana
Enn bólar ekkert á skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi sem 26 þingmenn óskuðu eftir frá heilbrigðisráðherra.

Hljóp berrössuð milli bæja
Í síðustu viku dreymdi mig að ég hlypi allsnakin hér um sveitina og næstu sveitir og bankaði á hvers manns dyr en enginn kom til dyra. Nú veit ég hvernig skuli ráða þennan draum. Ég hef opinberað fyrir alþjóð mín innstu heilbrigðismál; það þarf talsvert að ganga á svo kona geri það. Mín persóna er þó að sjálfsögðu aukaatriði í stóra samhenginu en stundum þarf að tengja raunveruleikann við manneskju, ekki bara excel-skjal og reglur.

Tímafrekt að senda sýnin utan og svartíminn of langur
Of mikill tími fór í merkingar og pökkun sýna, sendingartíminn var oft langur og þá voru íslensku sýnin ekki í neinum forgangi og svartíminn í heild of langur. Þetta segir Auður Eiríksdóttir, lífeindafræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands, um reynsluna af því að láta rannsóknarstofu í Svíþjóð sjá um HPV-rannsóknir á leghálssýnum.

Hvers vegna eru HPV mælingar ekki framkvæmdar á Landspítalanum?
Á Fésbókarsíðunni „Aðför að heilsu kvenna“ má sjá fjölmargar reynslusögur kvenna sem beðið hafa mánuðum saman eftir svörum eftir leghálssýnatöku og fá þau ekki þrátt fyrir mikla eftirgangssemi. Boðunarkerfi virðist ekki vera í lagi þar sem margar konur kvarta yfir því að fá ekki boðun í skimun. Skimunarferli þarf að vera mjög skipulegt og eftirfylgni þarf að vera pottþétt. Skimun er gagnlaus ef engin er eftirfylgni.

„Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir
Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt.

Þurfa að handvinna gögn úr leghálssýnatökum
Tæknilegir erfiðleikar við úrvinnslu leghálssýna hafa orðið til þess að biðtími eftir niðurstöðum úr leghálssýnatöku hefur lengst talsvert frá því að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tók við verkefninu. Forstjóri heilsugæslunnar segir að ekki verði hægt að laga þetta fyrr en á síðari hluta þessa árs.

Biðlistastjóri ríkisins
Undir þessari ríkisstjórn hefur opinberum störfum fjölgað um 8000 eða um tvö þúsund störf á ári samkvæmt tölum Hagstofunnar. Ef árangurinn væri sjáanlegur hjá ríkinu í formi betri þjónustu og öflugri velferð væri vart hægt að mæla því mót.

Heilsugæslan horfir til framtíðar í samvinnu við Hvidovre
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hyggst síðar á þessu ári bjóða konum upp á að taka sjálfar leghálssýni. Þetta er sagt munu verða gert í samvinnu við rannsóknarstofu Hvidovre-sjúkrahússins en enn er óljóst hver mun sinna umræddum rannsóknum.

Stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir óskaði eftir
Bryndís Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti sín við Kristján Oddsson, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir Kristján hafa hafnað því að láta rannsaka leghálssýni sem kvensjúkdómalæknir hennar tók fyrr í þessum mánuði.

Þykir leitt að yfirfærslan gekk ekki sem skyldi
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir ferlið við greiningar á leghálssýnum í Danmerku ganga betur með hverri vikunni sem líður.

„Hef ég efni á að fá ekki krabbamein?“
Konur með breytt BRCA-gen á landsbyggðinni sem sækja fyrirbyggjandi meðferð í Reykjavík telja að þeim sé mismunað vegna búsetu. Dæmi séu um að konur sjái eftir meðferð vegna sligandi ferðakostnaðar.

Ellefu skipta með sér 89 milljónum til rannsókna á krabbameini
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitti í dag 11 styrki að upphæð 89 milljóna króna. Voru þar sjö styrkir til nýrra rannsókna og fjórir framhaldsstyrkir til rannsókna sem hafa áður fengið styrk.

Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa
Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku.

Góðir leghálsar
Um daginn gekk ég til góðs. Við fórum saman 126 konur upp á hæsta tind Íslands til að styðja við Lífskraft og safna fyrir bættum aðbúnaði fyrir krabbameinsgreinda.

Álit Persónuverndar vegna flutnings leghálssýna til Danmerkur til skimunar fyrir krabbameini
Á fundi Velferðarnefndar Alþingis þann 28. apríl síðastliðinn óskaði ég eftir að fá minnisblað frá Persónuvernd vegna flutnings leghálssýna til Danmerkur, nefndin samþykkti beiðnina.

Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum
Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim.