Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Sindri Sverrisson skrifar 7. nóvember 2025 22:16 Joey Barton mætti með bros á vör fyrir rétt í vikunni. Getty/Peter Byrne Fótboltamaðurinn fyrrverandi Joey Barton hefur verið dæmdur sekur fyrir „gróflega móðgandi“ skrif á samfélagsmiðlum. Skrifin beindust að fjölmiðlafólki.
Barton, sem er 43 ára, var fundinn sekur í sex ákæruliðum. Skrifin beindust að útvarpsþáttastjórnandanum Jeremy Vine og sjónvarpskonunum Lucy Ward og Eni Aluko. Barton líkti til að mynda Aluko og Ward við raðmorðingjaparið Fred og Rose West í skrifum sínum, og kallaði Vine „hjólaníðing“ [e. Bike Nonce] sem héldi hlífiskildi yfir barnaníðingum. BREAKING: Former footballer Joey Barton found guilty of six counts of sending "grossly offensive" social media posts directed at Jeremy Vine, Lucy Ward and Eni Aluko. pic.twitter.com/SR5jxArw00— Sky Sports News (@SkySportsNews) November 7, 2025 Kviðdómendur við Liverpool Crown Court féllust á rök saksóknara um að Barton hefði „farið yfir mörkin milli tjáningarfrelsis og glæps“ í sex ákæruliðum. Barton, sem á sínum tíma var leikmaður Manchester City, QPR og Newcastle, var hins vegar sýknaður af sex öðrum ákæruliðum af svipuðum toga. Barton, sem er með 2,7 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum X, bar fyrir sig að hann hefði aðeins verið að beita svörtum og heimskulegum húmor. Hann hefði aldrei ætlað sér að gefa í skyn að Vine væri barnaníðingur, þrátt fyrir að skrifa til að mynda að fólk ætti að hringja í neyðarlínuna ef það sæi hann nálægt barnaskóla. Það kemur í ljós 8. desember hvaða refsingu Barton mun hljóta en dómari varaði hann við því að það væri mjög heimskulegt að skrifa um málið á samfélagsmiðlum fram að því.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira