Innlent

Þykir leitt að yfirfærslan gekk ekki sem skyldi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. vísir/Vilhelm

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir ferlið við greiningar á leghálssýnum í Danmerku ganga betur með hverri vikunni sem líður. 

„Mér þykir það hins vegar afskaplega leitt að þessi yfirfærsla gekk ekki sem skyldi vegna þess að ég er mjög meðvituð um það hversu mikilvægt er að þjónusta af þessu tagi sé örugg og hnökralaus,“ sagði Svandís á Alþingi í dag.

Hann Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, gekk nokkuð hart fram gegn ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma, vegna gagnrýni á fyrirkomulagið og sagði stjórnvöld komin í ógöngur þar sem sífellt erfiðara yrði að vinda ofan af afleiðingunum. „Hvað er planið?“ spurði Hanna Katrín og vísaði til nýlegra svara frá landlækni um að Landspítalinn ætti að ráða við greiningar á leghálssýnum. 

Svandís sagði biðtíma eftir greiningu stytast með hverri viku. „Sums staðar í löndunum í kringum okkur hefur verið farin sú leið þegar skimanir eru færðar frá einum þjónustuaðila til annars að skimanir liggi niðri um einhvern tíma á meðan þjónustan er færð yfir til þess að allt utanumhaldið sé orðið sem best áður en það er sett í gang með nýjum hætti.“ 

„Við völdum að fara ekki þá leið, heldur að það yrði ekkert rof á þjónustunni, sem gerir það að verkum að við erum höfum þurft að vinna niður kúf og líka vegna þess að ekki hafði verið unnið úr öllum þeim sýnum sem höfðu verið tekin fyrir áramót af Krabbameinsfélaginu,“ sagði Svandís til þess að útskýra tafir við greiningar á liðnum vikum.

Þá sagði hún að skýrslan, sem nú er verið að vinna um flutning þjónustunnar, væri væntanleg á næstu dögum. Hún gæti orðið leiðarvísir um framhaldið að mati Svandísar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×