Íþróttir
76 77 78 79 80 81 82 83 84 … 334 ›
Parker ekki á leið frá Newcastle Scott Parker er ekki á leið frá Newcastle og það tekur því ekki einu sinni að ræða þann möguleika. Þetta sagði Glenn Roeder, stjóri Newcastle, þegar hann var spurður út í orðróm þess efnis að hann og Nigel Reo-Cocker hjá West Ham myndu skipta um lið í janúar. Enski boltinn 26.12.2006 20:16
Huddlestone endurnýjar við Tottenham Hinn gríðarlega efnilegi miðjumaður Tottenham, Tom Huddlestone, hefur skrifað undir nýjan fjögurra- og hálfs árs samning við Lundúnarliðið og þar með bundið enda á allar vangaveltur um að hann yfirgæfi herbúðir félagsins. Huddlestone hefur spilað mjög vel í vetur og fengið verðskuldaða athygli stóru liðana í Englandi. Enski boltinn 27.12.2006 10:02
Tiger: Af hverju vann ekki Federer? Kylfingurinn Tiger Woods er steinhissa á að hann skuli hafa verið tekinn framyfir tenniskappann Roger Federer sem íþróttamaður ársins að mati AP fréttastofunnar. Kjör AP, sem þykir með þeim virtari í íþróttaheiminum, var gert opinbert í gær. Golf 26.12.2006 20:08
Capello vill losna við Cassano Vandræðagemlingurinn Antonio Cassano er að öllum líkindum á leið frá Real Madrid í janúar, að því er spænskir fjölmiðlar halda fram í gær. Hinn 24 ára gamli framherji er í algjörri ónáð hjá forráðamönnum félagsins sem vilja ólmir losna við hann. Fótbolti 26.12.2006 20:19
Fyrsti sigur Iverson hjá Denver Allen Iverson fagnaði sigri í í treyju Denver í fyrsta sinn í nótt þegar liðið bar sigurorð af Boston, 116-105, í NBA-deildinni. Iverson skoraði 28 stig og gaf 13 stoðsendingar. Dallas sigraði Charlotte auðveldlega, 97-84, og hefur nú unnið sjö leiki í röð. Körfubolti 27.12.2006 10:01
Jewell: Ronaldo er stórkostlegur Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, var fullur lotningar í garð Cristiano Ronaldo og lið hans Manchester United eftir leik liðanna í dag. Jewell sagði Ronaldo vera stórkostlegan leikmann og Man. Utd. vera lið sem spilar magnaða knattspyrnu. Enski boltinn 26.12.2006 19:45
Benitez kennir Crouch ekki um tapið Rafael Benitez segir að hafi verið Brad Friedel að kenna – ekki Peter Crouch – að Liverpool fór ekki með þrjú stig af hólmi frá Ewood Park í Blackburn í dag. Crouch fékk þrjú úrvals skallafæri sem öll rötuðu beint á Friedel í marki Blackburn. Enski boltinn 26.12.2006 19:43
Van Persie bjargaði Arsenal Arsenal komst upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildinnar nú í kvöld með því að bera sigurorð af Watford á útivelli, 1-2. Nýliðarnir létu leikmenn Arsenal heldur betur hafa fyrir hlutunum og það var ekki fyrr en sjö mínútum fyrir leikslok að Robin van Persie náði að skora sigurmark Arsenal. Enski boltinn 26.12.2006 19:33
Scolari hættir eftir EM 2008 Luiz Felipe Scolari hefur tilkynnt að hann muni hætta sem þjálfari portúgalska landsliðsins í fótbolta um leið og lokakeppni Evrópumótsins er lokið. Evrópukeppnin fer fram sumarið 2008 í Austurríki og Sviss. Enski boltinn 26.12.2006 17:15
Mourinho: Veit ekkert hvenær Terry snýr aftur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, kvaðst í viðtali eftir jafnteflið gegn Reading í dag ekki hafa hugmynd um hvenær fyrirliðinn John Terry yrði leikfær. Jafnframt greindi Mourinho frá því að Terry þyrfti hugsanlega að fara í aðgerð til að fá bót meina sinna. Enski boltinn 26.12.2006 17:08
Man. Utd. með fjögurrra stiga forystu Manchester United er komið með fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki dagsins. Man. Utd. lagði Wigan örugglega af velli á heimavelli sínum, 3-1, en Chelsea náði aðeins jafntefli gegn Reading í dag. Liverpool beið í lægri hlut gegn Blackburn. Enski boltinn 26.12.2006 16:59
Mourinho vill breyta landsleikjafyrirkomulagi Jose Mourinho hjá Chelsea hefur enn einu sinni tjáð sig um landsleikjamál í fótboltanum og nú heldur hann því fram að það sé algjörlega tilgangslaust að spila 15 leiki sem hafa þann eina tilgang að láta leikmenn lenda í meiðslum. Enski boltinn 26.12.2006 11:23
Wade skyggði algjörlega á Kobe Einvígi Dwayne Wade og Kobe Bryant í viðureign Miami og LA Lakers í NBA-deildinni í nótt náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir. Það er skemmst frá því að segja að Bryant kolféll á prófinu á meðan Wade blómstraði í sannfærandi 101-85 sigri Miami. Körfubolti 26.12.2006 15:01
Chelsea tapaði stigum á heimavelli Englandsmeistarar Chelsea náðu aðeins jafntefli gegn nýliðum Reading á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 2-2 og á Manchester United því alla möguleika á að ná fjögurra stiga forystu með því að sigra Wigan á heimavelli sínum í leik sem hefst kl. 15. Enski boltinn 26.12.2006 14:55
Jewell: Væntum mikils af Heskey Paul Jewell, stjóri Wigan, vill að framherjinn Emile Heskey bjóði upp á sömu frammistöðu gegn Man. Utd. á Old Trafford í dag eins og hann gerði gegn Chelsea á Þorláksmessu. Þá skoraði Heskey tvö mörk og lék sinn besta leik í langan tíma. Enski boltinn 26.12.2006 11:21
Adebayor: Ég myndi spila frítt fyrir Arsenal Emanual Adebayor, framherjinn stóri og stæðilegi hjá Arsenal, kveðst svo ánægður í herbúðum liðsins að hann væri reiðubúinn að spila án þess að þiggja laun fyrir. Adebayor hefur unnið hug og hjörtu stuðningsmanna liðsins, að sögn stjórans Arsene Wenger, sem er hæstaánægður með frammistöðu pilts. Enski boltinn 26.12.2006 11:17
Ferguson ánægður með breiddina Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., kveðst mjög ánægður með þá breidd sem leikmannahópur liðs síns býr yfir þessa stundina. Einhverjar efasemdir hafa verið uppi um möguleika Ferguson ef einhverjir af hans mikilvægustu leikmönnum myndu lenda í meiðslum, en stjórinn segir sjálfur að hægt sé að leysa alla af hólmi. Enski boltinn 26.12.2006 11:12
Hughes hræddur við Bellamy Mark Hughes, stjóri Blackburn, er dauðhræddur við framherjann Craig Bellamy hjá Liverpool, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hughes þekkir vel til styrkleika Bellamy, en hann lék með Blackburn á síðustu leiktíð áður en hann var keyptur af Rafa Benitez í sumar. Enski boltinn 26.12.2006 11:10
Federer ætlar að gera enn betur á næsta ári Roger Federer, langbesti tennisspilari heims, stefnir á að ná enn betri árangri á næsta ári en hann gerði á þessu ári. Federer segir það vel mögulegt, þrátt fyrir að hann hafi verið nánast óstöðvandi í ár. Sport 25.12.2006 14:15
Fisichella óánægður með nýju dekkin Lið í formúlu 1 þurfa að gera breytingar á bremsubúnaði bíla sinna ef ökumenn þeirra eiga að geta ráðið við nýju Bridgestone-dekkinn, sem gerð eru úr nýrri tegund af gúmmí en áður hefur verið notast við. Þetta segir Giancarlo Fisichella hjá Renault. Formúla 1 25.12.2006 14:13
Cahill snýr aftur sem betri leikmaður Það styttist óðum í endurkomu Tim Cahill, stjörnuleikmanns Everton, sem hefur verið frá vegna hnémeiðsla í næstum tvo mánuði. Búist er við því að Cahill byrji að spila að nýju í janúar, og segist hann ætla að snúa til baka sem betri leikmaður en áður. Enski boltinn 25.12.2006 14:11
Hahnemann: Allt er mögulegt Marcus Hahnemann, markvörður Reading, segir að nýliðarnir ætli sér að koma á óvart í heimsókn sinni til Stamford Bridge á morgun. Reading sækir þá meistara Chelsea heim, en þar hefur liðið ekki enn tapað undir stjórn Jose Mourinho, og nokkrum dögum síðar heimsækir Reading Old Trafford. Enski boltinn 25.12.2006 14:06
Schumacher í fullri vinnu hjá Ferrari Michael Scumacher er vissulega hættur að aka fyrir Ferrari-liðið í formúlunni en honum er engu að síður ætlað stórt hlutverk hjá liðinu á næsta ári. Nú hefur verið tilkynnt að Schumacher mun verða helsti ráðgjafi liðsins í þróun keppnisbílsins og einnig þróun hina “hefðbundnu” Ferrari-bíla. Formúla 1 25.12.2006 14:05
Baulið gerir Ronaldo bara betri Baulið sem Cristiano Ronaldo þarf að þola í útileikjum Manchester United gerir hann aðeins að betri leikmanni. Þetta er álit Edwin van der Saar, markvarðar og samherja Ronaldo hjá Man. Utd. Enski boltinn 25.12.2006 14:02
Adriano þakkar samherjum sínum Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano tileinkaði liðsfélögum sínum hjá Inter markið sem hann skoraði gegn Atalanta á laugardag. Markið var hans fyrsta í átta mánuði fyrir félagið, en Adriano hefur verið í mikilli lægð á þessu ári eftir frábært tímabil í fyrra. Fótbolti 25.12.2006 14:00
Redknapp ekki stressaður yfir leikmannamálum Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, segist ekki hafa sett niður neinn óskalista af leikmönnum sem hann vill fá til síns liðs í janúar, en að hann muni ábyggilega fá einhverja leikmenn til að styrkja liðið. Redknapp segir markmið félagsins hafa breyst eftir gott gengi það sem af er leiktíð. Enski boltinn 25.12.2006 13:58
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. Körfubolti 25.12.2006 13:56
Orðastríð Mourinho og Ferguson heldur áfram Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur varað kollega sinn hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson, við því að meistararnir verði mun sterkari á síðari hluta keppnistímabilsins en þeir hafi verið á þeim fyrri. Enn fremur segir Mourinho Man. Utd. hafa verið heppna því ”allt hafi gengið upp hjá þeim.” Enski boltinn 25.12.2006 13:51
Aston Villa vill fá Defoe Samkvæmt fregnum frá Englandi í morgun er Aston Villa að undirbúa 12 milljón punda tilboð í Jermain Defoe, framherja Tottenham, um leið og leikmannaglugginn opnar í byrjun janúar. Enski boltinn 25.12.2006 13:54
Pardew tekur við Charlton Alan Pardew hefur verið ráðinn þjálfari Charlton í ensku úrvalsdeildinni og tekur hann við starfi Les Reed, sem var sagt upp síðdegis á aðfangadag. Pardew er þriðji knattspyrnustjórinn hjá Charlton á þessari leiktíð. Enski boltinn 25.12.2006 13:24