Íþróttir
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 334 ›
Guðjón Valur enn í hópi markahæstu manna Guðjón Valur er í 4.-5. sæti á lista markahæstu leikmanna HM í Þýskalandi þegar keppni í milliriðlum er lokið, en hann hefur skorað 47 mörk í sjö leikjum. Ef mörk úr vítaköstum eru dregin frá leikmönnum er Guðjón Valur hins vegar markahæstur allra, en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr vítakasti. Tékkinn Filip Jicha er enn markahæstur með 55 mörk. Handbolti 29.1.2007 13:47
Maria Sharapova: Ég er sú besta Vont tap gegn Serenu Williams í úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis um helgina hefur ekki slegið rússnesku drottninguna Mariu Sharapovu út af laginu. Sharapova er í efsta sæti á nýjum heimslista sem birtur var í morgun og segir hún það ekki vera neina tilviljun. Sport 29.1.2007 13:45
Eggert Magnússon: Áform Platini eru óraunhæf Eggert Magnússon, fyrrum meðlimur í framkvæmdastjórn UEFA, segir að áform Michael Platini um að fækka liðum frá stærstu deildum Evrópu sem eiga gjaldgengt í Meistaradeild Evrópu vera óraunhæf. Platini var í síðustu viku kosinn nýr forseti UEFA og hafði hann boðað róttækar breytingar á fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar. Fótbolti 29.1.2007 14:36
Montgomerie vill verða fyrirliði Evrópuliðsins Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie hefur sett sér það markmið að verða fyrirliði Evrópuliðsins í keppninni um Ryder-bikarinn árið 2010. Fari svo að honum takist ekki ætlunarverk sitt mun Montgomerie freista þess að hljóta nafnbótina árið 2014, en þá fer keppnin fram í heimalandi hans. Golf 29.1.2007 13:43
Chelsea heppið með dráttinn í bikarnum Englandsmeistarar Chelsea voru einstaklega heppnir þegar dregið var í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar nú í hádeginu því þar mætir liðið annaðhvort 1. deildarliðinu Norwich eða 2. deildarliðinu Blackpool. Manchester United var ekki eins heppið því það verður Reading sem kemur í heimsókn á Old Trafford. Enski boltinn 29.1.2007 14:05
Íslendingar verða lítil hindrun Lars Rasmussen, leikmaður danska landsliðsins í handbolta, hefur trú á að liðið geti komist alla leið í úrslit Heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi. Rasmussen er sannfærður um að Íslendingar verði lítil hindrun fyrir Dani. Handbolti 29.1.2007 13:41
Beckham verður hverrar krónu virði David Beckham mun standa undir hverri krónu sem hann fær fyrir að hafa skrifað undir fimm ára samning við bandaríska liðið LA Galaxy fyrir skemmstu. Þessu heldur Alexei Lalas, forseti Galaxy, fram og bætir við að Beckham hafi þegar fært félaginu töluverðar tekjur. Fótbolti 29.1.2007 13:32
Carlo Ancelotti: Ronaldo er ekki feitur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan á Ítalíu, segir að nýjasti liðsmaður félagsins, brasilíski framherjinn Ronaldo, sé alls ekki feitur heldur aðeins vel í holdum. Ancelotti segir Ronaldo einungis skorta leikæfingu og að hann þurfi ekki að grennast. Fótbolti 29.1.2007 12:46
Framtíð Saviola ennþá óljós Yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona er ekki að flýta sér að bjóða Argentínumanninum Javier Saviola nýjan samning hjá félaginu þrátt fyrir að framherjinn hafi staðið sig einstaklega vel í síðustu leikjum liðsins. Fótbolti 29.1.2007 12:37
Hvað er málið með Materazzi? Marco Materazzi, ítalski varnarmaðurinn hjá Inter Milan, hefur enn einu komið sér í sviðsljósið en í gærkvöldi varð hann þess valdur að Gennaro Delvecchio, leikmaður Sampdoria, fékk að líta rauða spjaldið í viðureign liðanna. Atvikið þykir minna óþarflega mikið á uppákomu hans og Zinedine Zidane á HM síðastliðið sumar. Fótbolti 29.1.2007 12:23
Inter vann 14. leikinn í röð Inter Milan er áfram með 11 stiga forystu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu eftir að hafa unnið sinn 14. sigur í röð í gærkvöldi. Liðið vann þá Sampdoria, 2-0, en helstu keppinautarnir í Roma gera það sem þeir geta til að halda í við Inter og unnu 1-0 sigur á Siena um helgina. Fótbolti 29.1.2007 12:08
McLeish tekur við Skotum Skoska knattspyrnusambandið hefur staðfest að það hefur ráðið Alex McLeish sem þjálfara skoska landsliðsins í knattspyrnu. McLeish tekur við starfinu af Walter Smith, eftir að sá síðarnefndi tók við liði Rangers fyrir skemmstu. Fótbolti 29.1.2007 12:01
Íslenska liðið sagt óskamótherjinn Ulrik Wibek, þjálfari danska landsliðsins, segir Íslendinga mjög spennandi andstæðinga en ljóst varð í gær að liðin mætast í átta liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik. Þá er haft eftir Lasse Boesen, einum leikmanna danska liðsins, í Jótlandspóstinum að Íslendingar hafi verið óskamótherjinn í átta liða úrslitum og hann viðurkennir að Danir eigi nú góða möguleika á að ná í undanúrslitin og jafnvel lengra. Handbolti 29.1.2007 11:51
Alfreð hættir með landsliðið í sumar Alfreð Gíslason segir í viðtali við vefmiðilinn Sport1.de að hann muni hætta með landsliðið í sumar vegna fjölskyldu-ástæðna. Alfreð er þjálfari þýska liðsins VfL Gummersbach og það er ekki mikið um frítíma hjá kappanum enda fara öll fríin með þýska liðinu í verkefni landsliðsins. Handbolti 29.1.2007 11:46
Finley skoraði flautukörfu gegn LA Lakers Michael Finley skoraði þriggja-stiga körfu og tryggði San Antonio 96-94 sigur á LA Lakers þegar 1,3 sekúndur voru eftir í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Phoenix gefur ekkert eftir og vann sinn 17. sigur í röð. Körfubolti 29.1.2007 11:43
Íslendingar mæta Dönum Nú er orðið ljóst að það verða Danir sem mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum HM í handbolta á þriðjudag. Danir lögðu Tékka af velli í Mannheim í kvöld þar sem lokatölur urðu 33-29. Þar sem Spánverjar töpuðu fyrir Króötum í dag fara Danir upp í annað sæti millriðils 2 og mæta þar með Íslendingum, sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðils 1. Handbolti 28.1.2007 20:31
ÍR og Hamar/Selfoss mætast í bikarúrslitum Það verða lið Hamars/Selfoss og ÍR sem leiða saman hesta sína í úrslitaleik bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta karla. Hamar/Selfoss lagði Keflavík í kvöld og ÍR vann Grindavík í undanúrslitunum sem fram fóru í kvöld. Í kvennaflokki eru Haukar komnir í úrslit þar sem þeir mæta annaðhvort Keflavík eða Hamar, sem mætast annað kvöld. Körfubolti 28.1.2007 21:16
Arsene Wenger: Vorum ekki góðir í dag Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var óánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Bolton í dag en þá náði liðið aðeins 1-1 jafntefli á heimavelli. Liðin þurfa því að mætast öðru sinni á heimavelli Bolton í leik sem Wenger kvíður þó ekki fyrir. Fótbolti 28.1.2007 20:26
Werder Bremen aftur á toppinn í Þýskalandi Schalke sat sat um sólarhring í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en Werder Bremen endurheimti sætið með öruggum 3-0 sigri á Hanover í sínum fyrsta leik eftir vetrarfrí í dag. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahóp Hanover. Fótbolti 28.1.2007 20:18
Danir með tveggja marka forystu í hálfleik Þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Dana og Tékka á HM í handbolta er staðan 17-15, Dönum í vil. Tékkar komu Dönum í opna skjöldu með mikilli baráttu í upphafi leiks og náðu meðal annars 7-2 forystu. Danir hafa hins vegar náð að vinna sig aftur inn í leikinn og gott betur. Ef Danir sigra mæta þeir Íslendingum í 8-liða úrslitum. Handbolti 28.1.2007 19:55
Barcelona aftur á toppinn eftir sigur gegn Celta Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Celta Vigo í kvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í lið Barcelona þegar tæpar 10 mínútur voru eftir. Fótbolti 28.1.2007 19:50
Pearce tekur líklega við U-21 árs liði Englands Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur samþykkt að taka við stjórn enska U-21 árs landsliðsins í fótbolta. Hins vegar er ekki orðið endanlega ljóst hvort hann taki við liðinu þar sem forráðamenn Man. City og enska knattspyrnusambandsins þurfa að ná samkomulagi. Enski boltinn 28.1.2007 19:20
Logi Geirsson: Þjóðverjar eru væluskjóður “Þetta var bara hrein snilld. Það er ekki hverjum sem er sem tekst að fá 12 þúsund manns upp á móti sér. Þessir Þjóðverjar eru svo miklar væluskjóður. Þetta var skemmtilegast tapleikur sem ég hef spilað á ævinni,” sagði Logi Geirsson eftir leikinn gegn Þýskalandi í dag. Ítarlega verður rætt við Loga í Fréttablaðinu á morgun um atvikið sem varð til þess að hann fékk alla áhorfendur í Halle-höllinni á móti sér. Handbolti 28.1.2007 18:35
Noregur burstaði Úkraínu og vann Forsetabikarinn Norðmenn unnu Forsetabikarinn svokallaða með því að gjörsigra Úkraínumenn í úrslitaleik í dag, 32-22. Um er að ræða keppni þeirra liða sem komust ekki áfram í milliriðla á HM í Þýskalandi. Norðmenn höfnuðu þar með í 13. sæti Heimsmeistarakeppninnar. Handbolti 28.1.2007 19:07
Rússar í 8-liða úrslit eftir ótrúlegan sigur á Ungverjum Ungvjerar voru fjórum sekúndum frá því að komast í 8-liða úrslit HM í handbolta en það var þegar svo mikið var eftir þegar Rússar náðu að skora sigurmarkið í leik liðanna nú í kvöld. Rússar sigruðu með einu marki, 26-25, og "stálu" sæti í 8-liða úrslitum af Ungverjunum. Handbolti 28.1.2007 18:49
Guðjón Valur: Við vorum að spara kraftana Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins, viðurkenndi í samtali við fjölmiðla eftir leikinn gegn Þýskalandi á HM í dag að leikmenn liðsins hefðu sparað krafta sína fyrir væntanlega viðureign í 8-liða úrslitum. Leikmenn þýska liðsins segja úrslitin hafa ráðist í fyrri hálfleik. Handbolti 28.1.2007 18:34
Vignir Svavarsson: Ekki merkilegur leikur “Það náðist að bjarga þessu fyrir horn og þetta ekki merkilegur leikur hjá okkur hér í dag.. Hvorki í vörn né sókn,” sagði línumaðurinn Vignir Svavarsson sem náði sér ekki alveg á strik gegn Þjóðverjum í dag. Handbolti 28.1.2007 18:30
Pólverjar sigruðu Slóvena og tryggðu efsta sætið Slóvenar voru engin fyrirstaða fyrir sterkt lið Pólverja á HM í Þýskalandi í dag og svo fór að Pólverjar unnu 11 marka sigur, 38-27, og tryggðu sér þannig sigur í milliriðli 1. Þar með er endanlega ljóst að Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins og Frakkar í því fjórða, sama hvernig leikur þeirra gegn Túnisum fer í kvöld. Handbolti 28.1.2007 18:17
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Argentínumaðurinn Javier Saviola byrjar inn á hjá meisturunum í þriðja leiknum í röð. Leikurinn hófst nú kl. 18 og er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 28.1.2007 18:09
Arsenal og Bolton skildu jöfn í hörkuleik Arsenal og Bolton þurfa að eigast við öðru sinni til að skera úr um hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Liðin skildu jöfn, 1-1, á Emirates-vellinumí dag en mætast að nýju á Reebook-vellinum þann 14. febrúar næstkomandi. Enski boltinn 28.1.2007 17:53