Sjálfstæðisflokkurinn
80 81 82 83 84 85 … 85 ›
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Vilja auka val, gæði og árangur Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í hádeginu fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er, -að sögn frambjóðenda flokksins, -að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. Innlent 23.4.2006 14:17
Litlu flokkarnir sækja í sig veðrið Sjálfstæðisflokkur tapar töluverðu fylgi og litlu flokkarnir sækja á í Reykjavík samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag. Innlent 23.4.2006 10:02
Gísli biðst lausnar sem varaþingmaður Gísli S. Einarsson hefur ákveðið að biðjast lausnar undan skyldum sínum sem varaþingmaður Samfylkingarinnar. Gísli þáði á dögunum boð Sjálfstæðismanna á Akranesi um að verða bæjarstjóraefni þeirra í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði. Innlent 21.4.2006 15:58
Stefna á meirihluta í bæjarstjórn Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt. Innlent 19.4.2006 18:07
Gísli verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi í vor. Innlent 19.4.2006 10:43
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Óttast ekki andstöðu við frumvarpið Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið. Innlent 3.4.2006 16:58
Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu. Innlent 3.4.2006 15:54
Sjálstæðismenn með vísan meirihluta Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi. Innlent 26.3.2006 11:46
Mikil fjölgun Sjálfstæðismanna í Grindavík Sjálfstæðismönnum í Grindavík fjölgaði gríðarlega í tengslum við prófkjör flokksins sem haldið var í gær, um heil um 179 prósent. 156 tóku þátt í prófkjörinu, þar af voru um eitt hundrað nýir sjálfstæðismenn. Innlent 26.2.2006 10:35
Tólf í prófkjöri í Grindavík Sjálfstæðismenn í Grindavík velja sér í dag frambjóðendur í efstu sæti framboðslista síns fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Tólf gefa kost á sér í prófkjöri sem hófst klukkan tíu og stendur til klukkan sex. Innlent 25.2.2006 10:01
Flestir komnir úr ungliðastarfinu Sjö af hverjum tíu ráðherrum Sjálfstæðisflokksins frá lýðveldistöku hafa unnið sig upp í gegnum flokksstarfið og hafið ferilinn í ungliðahreyfingu flokksins. Þetta kemur fram í lokaritgerð Jóhanns Bjarna Kolbeinssonar, nema í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Innlent 24.2.2006 22:29
Prófkjör á Akureyri og í Árborg í dag Sjálfstæðismenn í Árborg og Framsóknarmenn á Akureyri velja í dag frambjóðendur sína fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ljóst er að breytingar verða á oddvitasveit beggja flokka. Innlent 18.2.2006 12:37
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. Innlent 13.2.2006 11:57
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Geir neitar að tjá sig Geir H. Haarde utanríkisráðherra neitar að tjá sig um þá yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hann telji að Ísland verði orðið aðili að Evrópusambandinu árið 2015. Innlent 8.2.2006 15:32
Marklaus þriggja ára áætlun Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja þriggja ára áætlun meirihlutans í borgarstjórn fyrir árin 2007 til 2009 marklausa og hvetja til þess að hún sé dregin til baka. Fyrri umræða um áætlunina hófst á borgarstjórnarfundi klukkan tvö og hafa Sjálfstæðismenn bókað að hún sýni meiri óskhyggju en raunhæfar áætlanir. Innlent 7.2.2006 15:12
Hringsnerist ef ég reyndi að sætta alla Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir erfitt að ná niðurstöðu um loðnuveiðar, ef sætta eigi þá sem gagnrýna hann fyrir að úthluta of litlum loðnukvóta og þá sem gagnrýna hann fyrir að leyfa veiðar yfir höfuð. Innlent 2.2.2006 15:49
Segir sig ekki úr stjórnarskrárnefnd Þorsteinn Pálsson gerir ekki ráð fyrir að segja sig úr stjórnarskrárnefnd þrátt fyrir að taka við ritstjórn Fréttablaðsins síðar í mánuðinum. Þorsteinn Pálsson var tilnefndur í stjórnarskrárnefnd af hálfu Sjálfstæðisflokksins og skipaður varaformaður hennar þegar hún tók til starfa í janúar á síðasta ári. Innlent 2.2.2006 10:56
Ræddu stjórnarmyndun löngu fyrir kosningar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson höfðu lagt grunninn að stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks eftir þingkosningarnar 1991, meðan Alþýðuflokkurinn var enn í vinstristjórn og áður en Davíð Oddsson felldi Þorstein í formannskosningu í Sjálfstæðisflokknum. Innlent 1.2.2006 15:58
Lögðu á ráðin um stjórn fyrir kosningar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson lögðu grunninn að samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks með samningum nokkuð fyrir kosningar 1991 segir Össur Skarphéðinsson í pistli á heimasíðu sinni. Innlent 1.2.2006 06:50
Sökuð um að ganga erinda Bandaríkjamanna Íslensk stjórnvöld voru sökuð um að ganga erinda bandaríska landvarnaráðuneytisins í stað þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar í skeleggum umræðum um fangaflug á Alþingi í dag. Innlent 26.1.2006 20:36
Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum. Innlent 26.1.2006 07:30
Árangurinn kom Ásthildi á óvart Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttu fjögurra einstaklinga um annað sætið á framboðslista Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Einna mesta athygli í prófkjöri þeirra í gær vekur þó árangur nýliðans Ásthildar Helgadóttur sem segir árangurinn hafa komið sér á óvart. Innlent 22.1.2006 12:14
Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa af fimmtán í Reykjavík ef gengið væri til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndi flokkurinn næði inn borgarfulltrúa. Innlent 22.1.2006 12:03
Gunnsteinn vann baráttuna um annað sætið Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttuna um að skipa annað sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Þrír karlmenn skipa efstu sætin eftir prófkjör í gær og konur urðu í næstu sjö sætunum. Innlent 22.1.2006 10:29
Mikil spenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna 306 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi klukkan tólf. Mikil barátta stendur um hver skipar annað sæti listans fjórir stefna að því marki og hefur flokksmönnum í Kópavogi fjölgað um nær þriðjung síðustu daga. Innlent 21.1.2006 11:48
Fimmtán í framboði Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en kjörstaðir opnuðu klukkan níu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sætið en fjögur keppa um annað sætið á listanum. Innlent 21.1.2006 09:26