Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Smári Jökull Jónsson skrifar 16. október 2026 07:14 Reuters segir skipunina hafa komið innan úr Hvíta húsinu. Spennan á milli Donald Trump og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta hefur aukist síðustu daga. Vísir/AP Skipun um að að hægja á gervihnattakerfinu Starshield í Úkraínu kom innan úr Hvíta húsinu. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem vísar í heimildir frá bandarískum og vestrænum embættismönnum sem fengu upplýsingar um málið.
Í frétt Reuters segir að tveir bandarískir embættismenn og einn vestrænn hafi fengið upplýsingar um málið og segir að yfirmenn í bandaríska varnarmálaráðuneytinu hafi fengið skilaboð um að hægja þyrfti á Starshield-þjónustu SpaceX sem úkraínski herinn notar í stríðsrekstrinum. Hvorki er tilgreint hver í Hvíta húsinu tók ákvörðunina né hver bar ábyrgð á framkvæmd hennar. Starshield er hernaðarútgáfa Starlink-þjónustunnar og er Pentagon stærsti viðskiptavinur hennar. Þegar leitað var viðbragða sagði háttsettur bandarískur embættismaður að Donald Trump forseti hefði aldrei lagt fram beiðni um að hægt skyldi á Starshield-kerfinu. Hvíta húsið svaraði ekki spurningum um hvort aðrir embættismenn í ríkisstjórninni kynnu að hafa gert það. Kennir Úkraínu um hækkandi olíuverð Fyrr í vikunni var greint frá því að Starlink-móttökustöðvar hefðu slökkt á sér eftir að hafa náð ákveðnum hraða og að við það hefðu úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir voru að fljúga. Hafa Úkraínumenn lengi reitt sig mikið á notkun Starlink-gervihnatta SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, og móttökustöðvar til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum sínum. Að undanförnu hefur Starlink reynst sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að stýra sérstökum varnardrónum sem eru hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum. Atvikin koma í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þrýst á stjórnvöld í Kænugarði að hætta árásum á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Kennir Trump þeim um hækkandi orkuverð sem gæti haft áhrif á möguleika Repúblikanaflokksins í þingkosningunum í nóvember. Sérfræðingar segja þó að hækkunina megi aðallega rekja til stríðs Bandaríkjanna og Ísraels við Íran sem hafi leitt til lokunar Hormússunds. Selenskí sé erfiðari en Pútín Í viðtali við fréttamiðilinn Newsmax sagði Trump að árásir Úkraínu á olíuhreinsunarstöðvarnar væru hneyksli. „Ég held að mér finnist erfiðara að eiga við Selenskí en við Pútín,“ sagði Trump meðal annars en samskipti á milli Kænugarðs og Washington hafa versnað undanfarna daga eftir fund í Miami á dögunum þar sem fulltrúar bæði Úkraínumanna og Bandaríkjanna, auk fulltrúa Evrópu og Alþjóðabankans, komu saman. Samkvæmt heimildum Reuters voru Jared Kushner, tengdasonur Trump, og Steve Witkoff, sendiherra bandarískra stjórnvalda í málefnum Mið-Austurlanda, harðorðir í garð Úkraínumanna á fundinum og lýstu óánægju með að árásir á olíuhreinsunarstöðvar Rússa hafi haldið áfram þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um að þeim skyldi hætt. Selenskí var í viðtali hjá fjölmiðlamanninum Piers Morgan í vikunni þar sem hann sagði að sárt væri að horfa upp á Trump velja sér aðra samherja en Úkraínu. Selenskí hefur lýst því yfir að hann muni ekki virða kröfu bandarískra stjórnvalda um að hætta árásum á olíuhreinsunarstöðvarnar þar sem Rússar hafi ekki virt hið svokallaða orkuvopnahlé, heldur haldið áfram árásum á orkuinnviði Úkraínu.
Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira