Bakvörðurinn Basile til Njarðvíkur Bandaríkjamaðurinn Dedrick Basile mun leika með Njarðvík í efstu deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Basile átti stórgott tímabil með Þór Akureyri á síðustu leiktíð og vonast Njarðvíkingar eftir annarri eins frammistöðu í vetur. Körfubolti 17. ágúst 2021 10:25
Jón Axel hitti áfram illa í tapi Phoenix Suns í Sumardeild NBA í nótt Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson spilaði með Phoenix Suns í nótt þegar liðið tapaði naumlega á móti Cleveland Cavaliers í Sumardeild NBA í Las Vegas. Körfubolti 17. ágúst 2021 07:30
Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 80-82| Flautukarfa tryggði Svartfjallalandi lygilegan sigur Ísland tapaði á grátlegan hátt gegn Svartfjallalandi 80-82. Ísland var tíu stigum yfir þegar fjórði leikhluti fór af stað. Staðan var 80-80 þegar tæplega 27 sekúndur voru eftir af leiknum.Elvar Már Friðriksson fékk þá tækifæri til að koma Íslandi yfir undir lok leiks en skot hans mislukkaðist og Svartfellingar keyrðu af stað sem endaði með sigur flautukörfu frá Igor Drobnjak. Nánari umfjöllun væntanleg Körfubolti 16. ágúst 2021 20:15
LA Clippers „losar sig“ við Patrick Beverley og Rajon Rondo Los Angeles Clippers hefur náð samkomulagi við Memphis Grizzlies um að skipta á leikmönnum fyrir komandi tímabil í NBA-deildinni. Körfubolti 16. ágúst 2021 16:01
Elvar sá fyrsti til að skora 30 stig á móti Dönum í 41 ár Elvar Már Friðriksson fór á kostum á dögunum þegar íslenska körfuboltalandsliðið burstaði Dani með 21 stigi í forkeppni HM í körfubolta. Körfubolti 16. ágúst 2021 12:46
41 árs og spilaði bara einn leik á síðasta tímabili en fékk samt nýjan NBA samning Udonis Haslem er búinn að ganga frá nýjum samningi við Miami Heat í NBA deildinni í körfubolta. Haslem kemst um leið í fámennan hóp. Körfubolti 16. ágúst 2021 12:15
Nat-vélin þurfti að einangra sig frá restinni af íslenska landsliðshópnum Þetta var ekki sérstök helgi fyrir landsliðsmiðherjinn Ragnar Ágúst Nathanaelsson sem er staddur úti í Svartfjallalandi með íslenska körfuboltalandsliðinu. Körfubolti 16. ágúst 2021 09:31
Sterkasti maður Íslands neyddist til að hætta í körfubolta vegna höfuðhöggs Stefán Karel Torfason varð á dögunum sterkasti maður Íslands en leið hans á toppinn í kraftlyftingum er ansi mögnuð. Sport 15. ágúst 2021 19:15
Jón Axel í stuði með Phoenix Suns Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson lék í 16 mínútur með Phoenix Suns í sumardeild NBA þegar liðið lagði Portland í nótt. Körfubolti 15. ágúst 2021 12:46
Richotti til Njarðvíkur Körfuknattleiksliði Njarðvíkur hefur aldeilis borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í úrvalsdeild karla í körfubolta. Nicolas Richotti kemur frá Palencia í næst efstu deild Spánar en hann lék í áratug fyrir Tenerife í efstu deild þar í landi. Þetta kemur fram á vefnum www.karfan.is. Sport 14. ágúst 2021 20:15
Gríska undrið fékk kveðju frá átrúnargoðinu Giannis Antetokounmpo, gríska undrið, varð í vor meistari í NBA-deildinni í körfubolta með liði sínu Milwaukee Bucks. Hann vildi þó á sínum tíma alltaf verða atvinnumaður í fótbolta en faðir hans spilaði fótbolta þegar Giannis var ungur. Körfubolti 14. ágúst 2021 09:00
Ty Sabin yfirgefur KR Bandaríski körfuboltamaðurinn Tyler Sabin hefur yfirgefið herbúðir KR og heldur nú til Ítalíu þar sem hann mun spila með San Sevro. Körfubolti 13. ágúst 2021 22:31
Leik lokið: Ísland - Danmörk 91-70 | Auðveldur en mikilvægur sigur Íslands Ísland vann gríðarlega mikilvægan sigur á Danmörku í forkeppni undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta. Eftir að hafa tapað fyrir Svartfjallalandi í gær var ljóst að liðið einfaldlega þurfti að vinna til þess að vera í góðri stöðu fyrir síðari umferðina. Körfubolti 13. ágúst 2021 19:57
Tvær breytingar á íslenska hópnum fyrir leikinn sem verður að vinnast Craig Pedersen, þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta, hefur ákveðið hvaða 12 leikmenn verða í hóp liðsins gegn Danmörku í leiknum sem fram fer í kvöld. Eftir tapið gegn Svartfjallalandi sagði Craig að íslenska liðið verði einfaldlega að landa sigri í dag. Körfubolti 13. ágúst 2021 12:01
Jón Axel fékk aðeins sex mínútur í fyrsta sigri Suns í sumardeildinni Jón Axel Guðmundsson fékk ekki margar mínútur er Phoenix Suns vann sex stiga sigur á Denver Nuggets í sumardeild NBA í körfubolta, lokatölur 90-84. Körfubolti 13. ágúst 2021 07:30
Sanngjarnt tap í Svartfjallalandi Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik tapaði gegn Svartfjallalandi í sínum fyrsta leik í annarri umferð forkeppni HM 2023. Lokatölur urðu 69-83 en staðan í hálfleik var 33-39, Svartfellingum í vil. Þessi tvö lið leika ásamt Danmörku í þessum undanriðli og fara tvö lið áfram í næstu umferð. Ísland mætir Danmörku á morgun en liðin þrjú klára alla leikina í riðlinum á næstu dögum. Körfubolti 12. ágúst 2021 20:31
Þegar Jason Kidd frestaði jólunum Þrátt fyrir að nú sé NBA tímabilið í hléi þá hefur nýútgefin ævisaga NBA meistarans Giannis Antetokounmpo sett nafn nýráðins þjálfara Dallas Mavericks, Jason Kidd í sviðsljósið. Körfubolti 12. ágúst 2021 14:30
Ísland án lykilmanna í mikilvægum leikjum Íslenska landsliðið í körfubolta hefur í dag leik Svartfjallalandi þar sem leikið er í forkeppni undankeppni HM 2023. Íslenska liðið verður án sterkra leikmanna en bæði Martin Hermannsson og Jón Axel Guðmundsson gefa ekki kost á sér í leikina. Körfubolti 12. ágúst 2021 12:00
Jón Axel sagður á leið til Ítalíu Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, er sagður vera á förum frá Frankfurt Skyliners í Þýskalandi til að semja við Bologna á Ítalíu. Körfubolti 11. ágúst 2021 22:00
Stóð til boða að fá tíu og hálfan milljarð en fær nú aðeins tæpar 750 milljónir Leikstjórnandinn Dennis Schröder hefur samið við Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Körfubolti 11. ágúst 2021 12:45
Martin Hermansson: Manni svona dreymir um að ná verkefni þar sem að við erum allir með og það vantar engann Íslenska landsliðið í körfubolta mætir Dönum og Svartfellingum í vikunni í undankeppni heimsmeistaramótsins. Martin Hermannsson, leikmaður Valencia, gaf ekki kost á sér þar sem að hann þarf að vera mættur til æfinga með félagsliði sínu næsta mánudag. Körfubolti 10. ágúst 2021 19:16
Berglind Gunnars er nýr aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals Körfuknattleikskonan Berglind Gunnarsdóttir kemur inn í þjálfarateymi deildar- og Íslandsmeistara Vals á komandi tímabili. Körfubolti 10. ágúst 2021 11:41
Luka skrifaði undir risasamning og verður áfram hjá Mavericks Slóvenski körfuboltamaðurinn Luka Doncic hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Dallas Mavericks í NBA-deildinni. Er samningurinn til fimm ára og skilar Luka 207 milljónum Bandaríkjadala í laun eða um 26 milljarða íslenskra króna. Körfubolti 10. ágúst 2021 09:30
Jón Axel fékk fyrstu mínúturnar sínar í Sumardeild NBA en skotin duttu ekki Jón Axel Guðmundsson spilaði sínar fyrstu mínútur í Sumardeild NBA í Las Vegas í nótt þegar lið hans Phoenix Suns tapaði á móti Utah Jazz. Körfubolti 10. ágúst 2021 07:30
Nat-vélin samdi við Stjörnuna Íslenski landsliðsmiðherjinn Ragnar Nathanaelsson mun spila áfram í úrvalsdeild karla í körfubolta á komandi tímabili. Körfubolti 9. ágúst 2021 13:45
Martin missir af enn einu landsliðsverkefninu vegna Valencia Martin Hermannsson verður ekki með íslenska körfuboltalandsliðinu í forkeppni HM 2023 en nú eru liðnir 23 mánuðir síðan að besti körfuboltamaður landsliðsins spilaði síðast með landsliðinu. Körfubolti 9. ágúst 2021 08:30
Jón Axel fékk ekki að koma inn á í fyrsta leiknum í Sumardeild NBA Íslenski körfuboltamaðurinn Jón Axel Guðmundsson er staddur í Las Vegas þessa dagana þar sem hann spilar með Phoenix Suns í Sumardeild NBA. Körfubolti 9. ágúst 2021 08:16
Sjöundi titill Bandaríkjanna í röð Bandaríkin urðu Ólympíumeistari kvenna í körfubolta í nótt eftir 90-75 sigur á heimakonum frá Japan í úrslitum. Bandaríkin hafa unnið keppni í körfubolta kvenna sjö leika í röð. Körfubolti 8. ágúst 2021 11:01
42 stig Mills tryggðu Áströlum fyrstu verðlaunin á ÓL Ástralir hlutu verðlaun í körfubolta karla á Ólympíuleikum í fyrsta sinn eftir 107-93 sigur á Slóveníu í bronsleiknum í dag. Frakkar hlutu brons kvennamegin eftir sigur á Serbíu. Körfubolti 7. ágúst 2021 13:01
Durant lykillinn að sextánda gulli Bandaríkjanna Bandaríkin urðu í nótt Ólympíumeistarar í körfubolta karla í sextánda sinn. Lið þeirra náði fram hefndum gegn liði Frakka, sem þeir töpuðu fyrir í fyrsta leik sínum á mótinu. Körfubolti 7. ágúst 2021 09:31