„Þetta er reiðarslag fyrir okkar litla samfélag“ Sveitarstjórn Húnabyggðar segir uppsögn Kjarnafæðis Norðlenska á 23 starfsmönnum í starfsstöð sinni á Blönduósi vera reiðarslag fyrir samfélagið. Sveitarfélagið ætlar sér að reyna að finna lausnir til að hjálpa þeim sem misstu vinnuna. Innlent 5. mars 2025 17:26
Árétta að uppsagnir geti verið liður í framkvæmd samruna Samkeppniseftirlitið hefur í kjölfar frétta af uppsögnum 23 starfsmanna SAH Afurða á Blönduósi sent bréf til bæði Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæði Norðlenska þar sem minnt á að stöðva skuli aðgerðir sem tengist samruna kjötvinnslustöðva. Bent er á að uppsagnir á starfsfólki geti verið liður í framkvæmd samruna. Viðskipti innlent 5. mars 2025 13:52
Sögðu 23 starfsmönnum sláturhússins upp Tuttugu og þremur af tuttugu og átta starfsmönnum sláturhúss SAH afurða á Blönduósi sagt upp á föstudag. Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis Norðlenska, segir uppsagnirnar hluta af hagræðingaraðgerðum Norðlenska Kjarnafæðis. Sveitarstjóri segir uppsagnirnar mikið högg fyrir allt samfélagið. Innlent 3. mars 2025 15:20
Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Ungur stuðningsmaður Liverpool frá Blönduósi lenti í öndunarvél á sjúkrahúsi eftir að hópur manna og unglinga réðst á hann að tilefnislausu í miðborg Liverpool í fyrrinótt. Hann er útskrifaður af sjúkrahúsi og stefnir á stórleik um helgina, að sögn föður hans. Innlent 3. janúar 2025 12:01
Borgarísjaki utan við Blönduós Borgarísjaki birtist í Húnafirði um fjórum kílómetrum fyrir utan Blönduós í dag. Magnaðar myndir náðust af ísjakanum í sólarlaginu. Innlent 29. desember 2024 16:15
Þverárfjallsvegur lokaður vegna eldsvoða í bíl Þverárfjallsvegur, sem er skammt frá Blönduósi er lokaður að svo stöddu vegna eldsvoða í bíl. Innlent 1. nóvember 2024 15:06
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Þrír voru fluttir á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur þriggja bíla við Húnaver. Útkallið barst laust eftir klukkan fimm síðdegis og kom þyrlan á vettvang um hálfsjö. Innlent 31. október 2024 21:02
Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Það stendur mikið til á Blönduósi á morgun sunnudag því þá ætla íbúar staðarins og í sveitunum þar í kring að koma saman í félagsheimilinu og taka slátur. Búist er við góðri mætingu þar sem allir hjálpast að og njóta samverunnar í leiðinni. Innlent 19. október 2024 14:06
Konan komst úr bílnum af sjálfsdáðum Bifreið hjóna sem lentu í alvarlegu umferðarslysi við Fossá á Skaga í gær var á hvolfi ofan í Fossá þegar að lögregla og viðbragðsaðilar komu á vettvang. Hjónin óku eftir malarvegi en svo virðist sem að maðurinn sem lést hafi misst stjórn á bílnum og ekið út af. Innlent 25. september 2024 15:37
Lögregluþjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga Maðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist, er einnig lögregluþjónn. Innlent 25. september 2024 10:26
Banaslys við Fossá Ökumaður bifreiðarinnar sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag lést í slysinu. Farþegi í ökutækinu var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Innlent 24. september 2024 20:59
Tveir í bílnum sem hafnaði utan vegar Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. Innlent 24. september 2024 17:55
Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Viðbragðsaðilum var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga um tvöleytið í dag. Innlent 24. september 2024 15:47
Að hjóla í manninn! Nú get ég ekki orða bundist lengur og sé mig knúinn til að leggja orð í belg, slík er orrahríðin. Haraldur Þór Jónsson oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps er gæinn á grillinu hjá ÖLLUM hinum réttlátu, réttsýnu og sanngjörnu. Skoðun 6. september 2024 21:01
Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Tveir ungir piltar reyndust á bak við umfangsmikil skemmdarverk sem unnin voru á Húnaskóla á Blönduósi í gærnótt. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglufulltrúi á Norðurlandi vestra segir að piltarnir séu ljúfir, og þeir hafi ekki endilega ætlað sér að vinna skemmdarverk. Þeir séu mjög ungir. Innlent 7. ágúst 2024 11:01
„Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Umfangsmikil eignaspjöll voru unnin á Húnaskóla á Blönduósi í nótt. Allar rúður voru brotnar í eldhúsi og smíðastofu grunnskólans og þar framin töluverð skemmdarverk. Lögregla rannsakar nú málið. Innlent 6. ágúst 2024 11:19
Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Rabarabarahátíð fer fram í gamla bænum á Blönduósi í dag þar sem rabbabarinn verður í aðalhlutverk. Þá verður draugaganga líka í boði, sem endar við kirkjuna í kvöld, auk fuglaskoðunar svo eitthvað sé nefnt. Innlent 29. júní 2024 12:15
Húnabyggð og Skagabyggð sameinast Íbúar Húnabyggðar og Skagabyggðar samþykktu í dag að sameinast í eitt sveitarfélag í íbúakosningu sem lauk í kvöld. Niðurstöður kosninganna voru birtar á heimasíðum sveitarfélaganna fyrir stuttu. Sameiningin fer formlega fram fyrsta ágúst. Innlent 22. júní 2024 20:37
Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Sveitarstjórnir Húnabyggðar og Skagabyggðar samþykktu að halda atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaganna í dag. Atkvæðagreiðslan stendur yfir í tvær vikur í júní. Innlent 3. maí 2024 18:25
Rafmagnslaust á Blönduósi Rafmagnslaust er á Blönduósi og verið er að leita að bilun. Rafmagnsbilun hefur verið hið minnsta síðan klukkan tíu í kvöld. Innlent 22. apríl 2024 23:09
Nýr Kjalvegur - Hraðbraut í gegnum hálendið Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um endurnýjun vegar yfir Kjöl með einkaframkvæmd en nokkrum sinnum hefur verið reynt að mæla fyrir málinu í gegnum tíðina án árangurs. Skoðun 16. apríl 2024 08:01
Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Varað er við hríðarveðri og allhvössum vindi yfir miðjan daginn á Norðurlandi. Búast má því að það verði víða blint og erfitt yfirferðar norðanlands. Einkum í Húnaþingi og Skagafirði, en einnig við utanverðan Eyjafjörð og austur með ströndinni. Veður 15. apríl 2024 10:11
Holtavörðuheiði opnuð á ný: Ökumenn allt að áttatíu bíla aðstoðaðir Holtavörðuheiðin var í gærkvöldi lokað. Hún var lokuð í nótt og þar til klukkan 08:56 í morgun. Lögreglan á Norðurlandi vestra þurfti að aðstoða ökumenn allt að áttatíu bíla í gærkvöldi í misjafnlega miklum vandræðum á ferðum sínum. Innlent 23. febrúar 2024 08:26
Sveitarfélögin gætu sameinast í sumar Við vinnu að sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar er gert ráð fyrir að sameiningin geti tekið gildi þann 1. júní næstkomandi, svo lengi sem hún sé samþykkt í íbúakosningu. Verkefnahópur hefur síðustu vikur skoðað mögulega sameiningu. Innlent 15. febrúar 2024 10:21
Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi. Innlent 10. janúar 2024 18:28
Ingibjörg bar þremur kálfum á Tannstaðabakka Kýrin Ingibjörg á bænum Tannstaðabakka í Hrútafirði gerði sér lítið fyrir í vikunni og bar þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Aðeins einn kálfur var lifandi, annað nautið. Innlent 29. desember 2023 20:30
„Nú kemst ég að því hvernig er að deyja“ Litlu mátti muna þegar Sigurjón Axel Guðjónsson lenti í árekstri við stóran flutningabíl á hringveginum að kvöldi til þann 22. desember í síðustu viku. Myndband úr bíl hans sýnir áreksturinn. Þar sést þegar tengivagn vörubílsins birtast skyndilega á röngum vegarhelmingi og fer utan í bíl Sigurjóns. Betur fór en á horfðist, en Sigurjón slapp með smávægileg meiðsli. Innlent 28. desember 2023 13:56
Norðurland vill ísbirnina heim Ísbirnir hafa borið á góma á sveitarstjórnarfundum tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi á síðustu dögum. Í Skagafirði óskaði Náttúrustofa Norðurlands vestra eftir því að fá uppstoppaðan ísbjörn, sem hefur safnað ryki í geymslu sveitarfélagsins, til sín og hafa hann til sýnis. Innlent 22. desember 2023 07:01
Allir nema einn útskrifaðir eftir rútuslysið Allir nema einn af þeim aðilum sem voru fluttir á Landspítala eftir rútuslys við Blönduós síðastliðinn föstudag hafa verið útskrifaðir. Þetta staðfestir Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði Akureyrarbæjar, en þeir sem voru í rútunni voru starfsmenn bæjarins. Innlent 12. september 2023 11:13
„Ömurlegur endir á góðu ferðalagi“ Enginn slasaðist alvarlega þegar rúta með rúmlega tuttugu starfsmönnum Akureyrarbæjar valt snemma í morgun skammt frá Blönduósi. Þjónustustjóri segir þetta mikið áfall fyrir fólkið en flestir voru sofandi þegar atvikið átti sér stað. Innlent 8. september 2023 22:01