Innlent

Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni

Agnar Már Másson skrifar
Slökkviliðið þurfi að sinna ýmsum verkefnum í gær.
Slökkviliðið þurfi að sinna ýmsum verkefnum í gær. Slökkviliðið

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur haft nóg að gera síðasta sólarhring og þurft að sinna fjölda útkalla vegna veðurs.

Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns.

„Við þurftum að festa niður þakjárn og taka niður einn gamlan gervihnattardisk sem farinn var að losna og skapa hættu,“ skrifar slökkviliðið.

Ásamt færslunni birtust myndir úr einu útkalli síðasta sólarhrings en þar má sjá að töluverður vatnsleki hafi orðið þegar flæddi úr vatnsúðarakerfi í verslunarhúsnæði í Mjóddinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×