Sögðu 23 starfsmönnum sláturhússins upp Lovísa Arnardóttir og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 3. mars 2025 15:20 Ágúst Torfi segir Kjarnafæði Norðlenska gera það sem þau geta til að milda áhrifin hjá þeim sem var sagt upp á föstudag. Samsett Tuttugu og þremur af tuttugu og átta starfsmönnum sláturhúss SAH afurða á Blönduósi sagt upp á föstudag. Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis Norðlenska, segir uppsagnirnar hluta af hagræðingaraðgerðum Norðlenska Kjarnafæðis. Sveitarstjóri segir uppsagnirnar mikið högg fyrir allt samfélagið. „
Við erum að starfa í gríðarlega þröngu rekstrarumhverfi og við töpuðum peningum í fyrra og framleiðsla er á leið niður hjá bænum og það stýrir auðvitað álagi á sláturhús. Okkur er nauðugur einn kostur. Við verðum að hagræða,“ segir Ágúst Torfi. Fyrst var greint frá uppsögnunum á vef RÚV. Í tilkynningu á vef SAH afurða á föstudag kom fram að tekin hefði verið ákvörðun um að sauðfé yrði ekki slátrað á Blönduósi haustið 2025. „Ákvörðunin tengist nauðsynlegri hagræðingu í rekstri Kjarnafæðis Norðlenska. Rekstur félagsins var þungur árið 2024 m.a. vegna mikilla kostnaðarhækkana og rík þörf á hagræðingu ef hægt á að vera að halda áfram á þeirri vegferð að bjóða neytendum vörur á samkeppnishæfu verði á sama tíma og verð til bænda þróist með ásættanlegum hætti. Áætlað er að færa þá starfsemi sem hefur verið utan sláturtíðar í starfsstöðinni á Blönduósi til annarra starfsstöðva fyrirtækisins í áföngum,“ segir í tilkynningunni. Erlend samkeppni að harðna Ágúst Torfi segir samkeppni við útlönd alltaf að harðna og aukast. Tollaverndin rýrni á sama tíma og framleiðendur minna varin fyrir innflutningi. „Eina leiðin fyrir okkur að keppa við það er að lækka framleiðslukostnað innanlands eins og okkur er frekast unnt og það verður ekki gert án þess að hagræða.“ Hann segir töluverð umsvif þó hafa verið í sláturhúsinu og það taki lengri tíma en nemur uppsagnarfresti að vinda ofan af starfseminni. Því hafi ekki öllum starfsmönnum verið sagt upp. Ágúst Torfi tilkynnti fólki sjálfur um uppsagnirnar síðasta föstudag. „Þetta eru erfiðar fréttir fyrir fólk að fá og við gerum það sem í okkar valdi stendur til að milda áhrifin eins og okkur er unnt og aðstoða fólk í atvinnuleit. Ef einhver vill færa sig á aðrar starfsstöðvar félagsins þá er það eitthvað sem við erum mjög opin fyrir, þó að við hvetjum fólk ekki endilega til að flytja frá staðnum. Ef það kýs það sjálft getum við aðstoðað við það. Við reynum að gera þetta eins vel og hægt er.“ Hann á von á því að uppsagnirnar séu stærsta hagræðingaraðgerðin sem Kjarnafæði Norðlenska ræðst í á þessu ári. Högg fyrir samfélagið Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar, segir þetta erfitt fyrir lítið samfélag. Fjöldinn sé þannig að ef slík uppsögn myndi eiga sér stað í Reykjavík væri líklega um þrjú þúsund manns að ræða. „Þetta er mikið högg fyrir samfélagið. Þetta er einn af stærstu vinnustöðunum hjá okkur,“ segir Pétur. Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar, segir uppsagnirnar mikið högg fyrir lítið samfélag. Vísir/Vilhelm Hugur þeirra sé hjá starfsfólki sem missti vinnuna en sveitarfélagið hafi ekki neina beina aðkomu að þessu. Þau skoði stöðuna og meti hvernig þau geti mögulega hlutast til um það að snúa vörn í sókn. Hann segir jákvætt við þetta svæði að atvinnulaust er nánast ekki neitt og það eigi að vera hægt að finna störf en kannski ekki fyrir svona margt fólk á einu bretti. „Það verður áskorun að vinna úr því að búa til atvinnutækifæri fyrir þetta fólk,“ segir Pétur en það sé verkefni sem þau séu tilbúin í.
Húnabyggð Landbúnaður Samkeppnismál Vinnumarkaður Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Sjá meira