Hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldurinn kviknaði Öryggisverðir í flóttamannabúðum í Ciudad Jarez hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldur kviknaði í búðunum í gær. Minnst 38 létust og 28 eru særðir en flóttamennirnir sjálfir eru sagðir hafa kveikt eldinn. Erlent 29. mars 2023 15:05
Kveiktu í dýnum í mótmælum en fjölmargir dóu í eldsvoðanum Flóttamenn sem óttuðust að verða fluttir úr landi kveiktu eld sem leiddi til minnst 39 dauðsfalla í Mexíkó í morgun. Forseti Mexíkó segir mennina hafa kveikt í dýnum við mótmæli í flóttamannabúðum í Ciudad Juarez, nærri landamærum Bandaríkjanna, og að þeir hafi misst tök á eldinum. Erlent 28. mars 2023 14:42
Tölum um lygar Dómsmálaráðherra Íslands, maðurinn sem ber ábyrgð á málefnum lögreglu, dómstóla og sýslumanna og réttvísinni á Íslandi svona almennt og yfirleitt, hefur endurtekið verið staðinn að lygum. Hann lýgur að þinginu. Hann lýgur að fjölmiðlum. Hann lýgur að almenningi. Skoðun 27. mars 2023 11:31
Vilja nota skrifstofuhúsnæði undir flóttafólk Ríkisstjórnin vill rýmka tímabundið reglur vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Frumvarpsdrög voru send á þingflokka stjórnarflokka í morgun. Verði frumvarpið að lögum er hægt að nýta húsnæði, sem ekki var upphaflega hugsað til búsetu, undir flóttafólk. Innlent 24. mars 2023 22:03
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. Erlent 19. mars 2023 14:31
Elva Hrönn hættir í VG Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“ Innlent 16. mars 2023 21:21
Varaþingmaður VG tekur þung skref og segir sig úr flokknum Varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum nokkrum mínútum eftir að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt í gær. Hann ætlar ekki að taka sæti aftur á þingi jafnvel þótt hann yrði kallaður inn. Innlent 16. mars 2023 11:48
Þögull barnamálaráðherra Fyrir sveitarfélögum liggur nú að taka afstöðu til samnings ríkisins um móttöku flóttafólks. Samningurinn er um margt ágætur en hann var lagður á borð sveitarfélaga án nokkurs samtals um hvað hann ætti að innihalda. Skoðun 16. mars 2023 07:01
Útlendingafrumvarpið samþykkt Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega. Innlent 15. mars 2023 20:47
Breytingartillögur felldar jafnóðum Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum. Innlent 15. mars 2023 19:17
Mótmælt fyrir utan Alþingi Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag. Innlent 15. mars 2023 16:50
Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“ Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir. Innlent 15. mars 2023 13:01
Fundurinn einn sá einkennilegasti að mati Sigmars Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að opinn nefndarfundar Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, sem haldinn var að beiðni Birgis Þórarinssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins hafi verið einn einkennilegasti opni nefndarfundur í sögu Alþingis. Innlent 14. mars 2023 13:38
Mörg ríki með verra drykkjarvatn en Venesúela að mati Birgis Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði gæði drykkjarvatns í Venesúela að umtalsefni á opnum nefndarfundi á Alþingi í dag þar sem rætt var um alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Suður-Ameríkuríkinu. Formaður kærunefndar útlendingamála benti Birgir hins vegar á að heildarmat á aðstæðum þar í landi benti til algjörs hruns réttarkerfisins. Innlent 14. mars 2023 11:11
Sprengisandur: Virkjanir, iðnaður, flóttafólk og breytingar á verslun Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 12. mars 2023 09:31
Hækkun leigu og íbúðaverðs í boði ríkisvaldsins Húsnæði fyrir flóttafólk er nánast uppurið eins og rakið hefur verið í fréttum. Í frétt Ríkisútvarpsins 4. mars sl. er haft eftir Gylfa Þór Þorsteinssyni, aðgerðastjóra móttöku flóttafólks, að gistiúrræði fyrir flóttafólk hér á landi verði fullt í þessari viku ef fram heldur sem horfir. Hann segir þörf á húsnæði sem geti rúmað tuttugu manns og upp úr. Skoðun 11. mars 2023 13:00
Börn á meðal þeirra 58 sem létu lífið Minnst fimmtíu og átta manns, þar á meðal börn, létu lífið þegar þegar bátur fórst undan suð-austurstönd Ítalíu. Slæmt var í sjóinn og skipið sagt hafa steytt á klettum. Erlent 26. febrúar 2023 16:47
Á fjórða tug fórst í skipsskaða við Ítalíu Að minnsta kosti þrjátíu og þrír fórust þegar skip með föru- og flóttafólki fórst undan suðausturströnd Ítalíu. Nær öruggt er talið að tala látinna eigi eftir að hækka. Erlent 26. febrúar 2023 09:28
Áttatíu flóttamenn flytja í gamla bandaríska sendiráðið Allt að áttatíu flóttamenn munu búa í húsunum sem áður hýstu sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg næstu tvö árin. Miðast er við að dvalartími einstaklings í húsnæðinu verði sex mánuðir. Innlent 22. febrúar 2023 14:43
Sex ákærðir eftir að átján flóttamenn fundust látnir í sendiferðabíl Saksóknari í Búlgaríu hefur ákært sex manns fyrir mansal eftir að átján afganskir flóttamenn fundust látnir aftan í sendiferðabíl í nágrenni við Sófíu. 52 flóttamönnum hafði verið troðið í sendiferðabílinn „eins og í sardínudós,“ að sögn saksóknara. Erlent 19. febrúar 2023 08:23
Hafa hægt á afgreiðslu umsókna frá Venesúela vegna rannsóknarskyldu Útlendingastofnun hefur ekki synjað neinum ríkisborgara frá Venesúela um vernd í efnislegri meðferð frá því úrskurður kærunefndar Útlendingamála um viðbótarvernd lá fyrir síðasta sumar enda bundin af úrskurðum hennar. Af fjórtán hundruð umsóknum sem bíða afgreiðslu eru níu hundruð frá fólki frá Venesúela. Innlent 13. febrúar 2023 18:59
Ákvarðanir byggðar á traustum gögnum en ekki sögusögnum Formaður kærunefndar útlendingamála segir að nefndin geti ekki byggt sína úrskurði á einhverjum sögusögnum um að hugsanlega séu einhverjir milligönguaðilar að lokka fólk til landsins. Nefndin byggi á áreiðanlegustu landsupplýsingum um aðstæður í heimalandinu á hverjum tíma. Dómsmálaráðherra segir að bregðast verði við ákveðinni þróun sem orðið hefur í málum flóttafólks frá Venesúela. Innlent 13. febrúar 2023 13:46
Fólk komi ekki frá Venesúela til að nýta velferðarkerfið Ekkert bendir til þess að fólk frá Venesúela komi til Íslands þess að misnota velferðarkerfið í stórum stíl segir þingkona Pírata. Það hryggi hana að menn ýti undir fordóma með slíkum málflutningi. Myndband frá ferðaskrifstofu í Venesúela lofar fólki sem fer til Íslands öllu fögru. Innlent 12. febrúar 2023 21:30
„Ótrúlega bíræfið“ að auglýsa misnotkun á íslensku velferðarkerfi Ferðaskrifstofa í Venesúela auglýsir gott velferðarkerfi og há meðallaun á Íslandi; lágmarkslaun frá 500 þúsund allt upp í 850 þúsund krónur. Þingmann hefur grunað að starfræktur sé iðnaður í Venesúela þar sem fólk er hvatt til að leita hingað til lands. Innlent 12. febrúar 2023 12:33
Minnstu bræðurnir Kópavogur á að fara fyrir í að hjálpa þeim sem helst eru hjálpar þurfi, ekki vera eftirbátur annarra. Fjárfesting í betra samfélagi er góð fjárfesting sem skilar góðri ávöxtun á alla mælikvarða. Mannúð elur af sér mannúð. Skoðun 10. febrúar 2023 14:30
Hætta málþófi um útlendingafrumvarpið Þingmenn Pírata eru hættir málþófi útlendingafrumvarpið svokallaða frá dómsmálaráðherra. Lítið sem ekkert annað hefur verið rætt á þingi á þessu ári en nú telja þingmennirnir að fullreynt sé að opna augu stjórnarliða um frumvarpið og galla þess. Píratar segja það skerða réttindi fólks á flótta. Innlent 8. febrúar 2023 17:31
Örfáir þingmenn hafi tekið þingið í gíslingu svo dögum skiptir Umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er enn og aftur á dagskrá þingsins í dag en tillaga um að taka málið af dagskrá var felld og tillaga um að lengja þingfund samþykkt. Fjármálaráðherra sagði stjórnarandstöðuna beita sér í grímulausu málþófi undir því yfirskini að greiða fyrir störfum þingsins. Innlent 7. febrúar 2023 15:31
Umsóknir um alþjóðlega vernd aldrei verið fleiri Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 voru 4.518 talsins en árið 2021 voru þær 875. Því er um að ræða rúma fimmföldum á umsóknum. Rúmur helmingur umsókna kom frá fólki á flótta frá Úkraínu í kjölfar innrás Rússa í landið. Innlent 7. febrúar 2023 10:05
Allt að fjörutíu flóttamenn í Múlaþing á árinu Björn Ingimarsson sveitarstjóri Múlaþings og Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Múlaþingi. Múlaþing mun taka á móti allt að fjörutíu flóttamönnum á árinu. Innlent 3. febrúar 2023 15:27
Þingfundi slitið klukkan tvö í nótt Þingfundi var slitið klukkan tvö í nótt en þá hafði framhald annarrar umræðu um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra staðið yfir í tíu klukkustundir. Innlent 2. febrúar 2023 06:17