

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.

Hyggjast opna námuna og sækja efni
Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík.

Ekki útilokað að gosið endist í marga mánuði
Kvikan sem safnaðist fyrir í Svartsengi flæðir nú beint upp og landri stöðvast. Jarðeðlisfræðingur segir yfirstandandi eldgos sambærilegt atburðum í Fagradalsfjalli. Engin merki séu um að gosið sé að minnka og það geti varað í margar vikur, jafnvel mánuði.

Hraun fossar ofan í Melhólsnámu: „Bagalegt“ að missa námuna
Hraunið sem kemur upp úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni fossar nú ofan í Melhólsnámu, sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna.

Starfsmaðurinn á batavegi og stjórnendum brugðið
Starfsmaður Bláa lónsins, sem leitaði á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna af völdum gasmengunar, er á batavegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að stjórnendum sé brugðið vegna málsins og það sé tekið alvarlega.

Hækkun varnargarða hafin: „Þetta er ekki snjór sem bráðnar“
Vinna við hækkun varnargarða norðaustan við Grindavík er þegar hafin að sögn jarðverkfræðings.

Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar
Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins.

Hraunið að færast upp á varnargarðana
Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur skriðið kröftuglega fram í dag og þrýstir nú á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Mögulegt er að hraunið komist yfir garðana á næstu klukkustundum.

Landris í Svartsengi hefur stöðvast
Áfram er góður kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og stóra Skógfells. Ljóst þykir að landris í Svartsengi hefur stöðvast. Því virðist jafnvægi komið á kerfið þar sem innflæði kviku upp í jarðskorpuna er til jafns við það sem streymir út í eldgosinu.

Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið
Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé.

Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila.

Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga
Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn hafi hitnað í febrúar, en vísitala íbúðaverðs og gögn um fasteignaauglýsingar gefa vísbendingu um aukna virkni og hærra íbúðaverð. Breytingin er mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg
Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga.

Bilaður mælir en ekki hættuástand í Garðinum
Íbúar í Garðinum geta andað léttar eftir að í ljós kom að ekki ríkir hættuástand vegna gasmengunar í bænum. Tilkynning þess efnis barst frá almannavörnum síðdegis í dag en svo kom í ljós að mælirinn var bilaður.

Gosið stöðugt en dregur mögulega úr landrisi við Svartsengi
Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat á Reykjanesi vegna eldgossins. Eldgosið er enn stöðugt en mögulega dregur úr landrisi við Svartsengi.

Vísbendingar um að gosið geti varað lengi
Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur.

Bein útsending: Svona er staðan á gosstöðvunum
Sprungan sem gýs á milli Stóra-Skógfells og Hagafells virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Lítið dró úr eldgosi í nótt.

Töluverð kvikustrókavirkni enn í gangi
Lítið virðist hafa dregið úr gosinu á Reykjanesi í nótt en sprungan sem gýs á virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga.

Umfjöllun um eldsumbrot fælir ferðamenn frá
Miklar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar um áhrif villandi fréttaflutnings erlendra miðla um eldsumbrotin á Reykjanesskaga á ferðaþjónustu í landinu. Borið hefur á afbókunum ferðamanna og hægst hefur á nýbókunum eftir hörmungarnar í Grindavík.

Landris geti leitt til lengra goss
Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur.

Nýr Grindavíkurvegur vonandi lagður til frambúðar
Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir óvissu ríkja um hraunrennsli í átt að Suðurstrandavegi þrátt fyrir að útlitið sé ágætt sem stendur. Unnið er að lagningu nýs Grindavíkurvegar sem hann vonar að verði til frambúðar.

Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk
Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt.

Eldgosið toppar þrjú síðustu
Eldgosið sem hófst á níunda tímanum á laugardagskvöld hefur nú staðið lengur en síðustu þrjúgos síðan í desember síðastliðnum. Það hefur nú staðið í tvo og hálfan sólarhring. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Opna Grindavík aftur
Grindavík hefur verið opnuð aftur og Grindvíkingum og þeim sem starfa í bænum leyft að dvelja þar og vinna. Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að lítil sem engin hreyfing sé á hraunrennsli, bæði inn í Svartsengi og fyrir ofan Suðurstrandaveg.

Stöðug virkni í nótt
Virknin í gosinu á Reykjanesi hefur verið óbreytt í nótt frá því sem var í gærkvöldi.

Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni
Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast.

Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur
Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos.

Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum
Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld.

Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil
Nýtt hættumat Veðurstofu Íslands tekur gildi í dag og mun gilda næstu tvo daga til 20. mars. Hætta er enn talin mjög mikil í Sundhnúksgígaröðinni og þá er mikil hætta vegna gasmengunar í kringum Svartsengi og vegna hraunflæðis.

Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun
Vel hefur gengið á hættusvæðinu við Svartsengi og í Grindavík í dag. Þó hefur verið töluverð mengun á svæðinu og verða aðgangsreglur inn í Grindavík endurskoðaðar á morgun.

Engin löndun í bili í Grindavík
Ekki verður landað í dag í Grindavík eins og vonir stóðu til um. Hafnarstjóri segir varnargarða þó hafa blásið mönnum byr í brjóst. Fyrirtæki fá að fara inn í bæinn í dag en fyrst stóð til að það yrði ekki leyft.