Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Samúel Karl Ólason skrifar 9. janúar 2026 15:13 María Corina Machado og Donald Trump. EPA og AP Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra.
Þetta er meðal þess sem Trump sagði í viðtali við Sean Hannity hjá Fox News sem birt var í gærkvöldi. Þar sagðist Trump telja að hann myndi hitta Machado í næstu viku og sagðist hlakka til að heilsa upp á hana. Finna má viðtalið hér. unspeakably pathetic stuff from Trump here as he says he'd be honored to accept María Corina Machado's Nobel Prize if she wants to give it up to him pic.twitter.com/AhLvnBqRAO— Aaron Rupar (@atrupar) January 9, 2026 Eftir að Bandaríkjamenn námu Nicolás Maduro, forseta Venesúela, á brott sagði Trump í síðustu viku að Machado gæti ekki leitt landið að svo stöddu. Hún nyti ekki nægrar virðingar. Fjölmiðlar vestanhafs segja sérfræðinga Leyniþjónustu Bandaríkjanna hafa haldið því fram við Trump að besta leiðin til að tryggja stöðugleika í landinu væri að láta Delcy Rodríguez, varaforseta Maduros, stjórna ríkinu. Machado gæti ekki auðveldlega tekið stjórn á her og öryggissveitum Venesúela en það eru mjög valdamiklar fylkingar þar í landi. Trump er einnig sagður pirraður yfir því að hann hafi ekki fengið friðarverðlaun Nóbels og að þau hafi verið veitt Machado. „Ef hún hefði hafnað þeim og sagt: „Ég get ekki tekið við þeim vegna þess að þau tilheyra Donald Trump“, væri hún forseti Venesúela í dag,“ sagði einn heimildarmaður Washington Post úr Hvíta húsinu. Var það eftir umdeildar kosningar í Venesúela árið 2024. Machado var meinað að taka þátt í kosningunum en umfangsmiklar vísbendingar benda til þess að stjórnarandstaðan hafi þrátt fyrir það sigrað kosningarnar með miklum yfirburðum. Ríkisstjórn Maduros lýsti þó yfir sigri. Tileinkaði Trump verðlaunin Þegar Machado fékk friðarverðlaunin tileinkaði hún þeim Trump og sagði að hann hefði réttilega átt að vinna verðlaunin. Þegar hún var svo í viðtali við Hannity fyrr í þessari viku sagðist hún vilja afhenda Trump verðlaunin. Í færslu sem Trump skrifaði á Truth Social, samfélagsmiðil sinn, fyrr í vikunni kvartaði hann enn og aftur yfir því að Noregur hafi ekki veitt honum friðarverðlaunin. Hann hafði einn síns liðs bundið enda á átta stríð og bjargað milljónum mannslífa. Yfirvöld í Noregi koma ekki að því að veita friðarverðlaun og Trump hefur ekki bundið enda á átta stríð. Sjá einnig: „Ég efa að NATO yrði til staðar fyrir okkur“ Í viðtalinu við Hannity sagði Trump það skammarlegt fyrir Noreg að hann hefði ekki fengið friðarverðlaunin og laug því aftur að hann hefði bundið enda á átta stríð. Hann viðurkenndi þó að vita ekki hvort Noregur kæmi formlega að friðarverðlaununum en benti á að nóbelsnefndin sem heldur utan um friðarverðlaunin væri í Noregi og þar væri mikið af Norðmönnum. Þess vegna væri þetta skammarlegt fyrir Noreg. „Hvort sem þeir koma nálægt þessu eða ekki, þeir segjast ekki gera það, en ég held þeir geri það,“ sagði Trump. „Þegar maður hefur bundið enda á átta stríð ætti maður í raun að fá ein verðlaun fyrir hvert stríð.“
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Nóbelsverðlaun Noregur Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Sjá meira