Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Lovísa Arnardóttir skrifar 15. október 2026 08:13 Mótmælemdur sprengdu bleika flugelda yfir lögreglunni í Tirana í gærkvöldi. Vísir/AP Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.
Í frétt Guardian segir að mótmælendur hafi kastað steinum að lögreglu í mótmælunum sem snúist um hærri kostnað vegna menntunar og spillingu. Skipuleggjendur úr röðum námsmanna sögðu að mótmælin snerust um aðstæður í háskólum, kostnað við háskólanám, skort á fjárhagsstuðningi og atvinnuhorfur að námi loknu. Lögreglan beitti vatnsbyssum og táragasi til að stía mótmælendum í sundur eftir að þeir kveiktu í húsnæði ráðuneytis, veltu ruslatunnum og brutu glugga fyrirtækja í nágrenninu. Útibú Raiffeisen-bankans nálægt ráðuneytinu varð einnig eldi að bráð. Bajram Begaj forseti fordæmdi ofbeldið og hvatti til stillingar og bætti við: „Stjórnarskráin og lögin verða að vera mörk fyrir alla, án undantekninga.“ Mótmælendur notuðu götuskilti til að verjast vatnbyssum lögreglunnar. Vísir/AP Vilj aðgerðir gegn spillingu Mótmælin eru hörðustu átökin til þessa gegn Edi Rama forsætisráðherra, sem var kjörinn til fjórða kjörtímabils í maí í fyrra en hefur síðan mætt vaxandi óánægju vegna meintrar spillingar meðal æðstu embættismanna. Mótmælendur hafna jafnframt leiðtogum stjórnarandstöðunnar og segja þá ekki skárri kost. Mótmælin hófust í sumar og hafa að mestu farið friðsamlega fram. Mótmælendur hafa kallað eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu. Kveikt var í dómsmálaráðuneytinu. Hér sést einn mótmælandi við bygginguna í gær og eldurinn. Vísir/AP Flamingóbyltingin Fyrst um sinn, þegar mótmælaaldan hófst, snérust mótmælin um fyrirhugaða uppbyggingu lúxushótels á náttúruverndarsvæði. Félagið á bak við fjárfestinguna tengist Jered Kushner, eiginmanni Ivönku Trump, og einum nánasta ráðgjafa Bandaríkjaforseta. Mótmælin hafa verið kennd við flamingóa, Flamingóyltingin, vegna þess að lúxusbyggingarnar átti að reisa á friðlýsta votlendinu Vjosa–Narta og á eyjunni Sazan og ógna viðkvæmu strandvistkerfi sem er mikilvægt búsvæði rósaflamingóa, krullupelíkana, Miðjarðarhafsmunkasela og klumbuskjaldbaka. Mótmælendur hafa því brotið flamingóa úr pappa, uppblásna flamingóa og breytta þjóðfána með flamingóum til að krefjast umhverfisverndar. 35 voru handteknir í mótmælunum í gær. Vísir/AP „Þetta er bylting. Við erum orðin þreytt á friðsamlegum mótmælum. Við hættum ekki fyrr en Rama segir af sér,“ er haft eftir Lora, mótmælanda og námsmanni, í frétt Guardian. Lora vildi ekki gefa upp eftirnafn sitt á meðan hún kastaði grjóti í lögregluna. Aðrir hrópuðu „afsögn“ og „glæpalögregla“. Óeirðirnar eru hluti af víðtækari bylgju aðgerða námsmanna sem gengur yfir Evrópu vegna menntunar og lífskjara. Í Frakklandi hafa framhaldsskólanemar staðið fyrir margra vikna mótmælum og lokunum skóla og krafist fleiri kennara og betri aðstöðu, með þeim rökum að hrörnandi skólabyggingar og yfirfullar kennslustofur grafi undan menntun. Albanskir fjölmiðlar greindu frá því að mótmælin á miðvikudag hefðu breiðst út til háskóla í Elbasan og Shkodër. Fulltrúar stjórnvalda hafa fordæmt mótmælin. Albana Koçiu, aðstoðarforsætisráðherra Albaníu, sagði á Facebook að þó svo að hver og einn hefði réttinn til að mótmæla mætti það ekki nota sem afsökun fyrir því að nota ofbeldi eða gera tjón á eignum. Hann hvatti mótmælendur Þá segir í frétt Guardian að lögreglan í Tirana hafi hvatt til stillingar í yfirlýsingu og ítrekað að þeir sem beiti ofbeldi og valdi skemmdarverkum yrðu sóttir til saka. Þá hafi sendinefnd Evrópusambandsins í Tirana sagt í yfirlýsingu að hún hafi skráð hjá sér tilkynningar um ásakanir um óhóflegt ofbeldi lögreglu gegn mótmælendum og lögreglu. Albanía hefur verið umsóknarland í Evrópusambandið frá 2014 og því sérstök sendinefnd starfandi. Í frétt Guardian segir að í yfirlýsingu sendinefndarinnar hafi verið lýst yfir áhyggjum af „ofbeldisfullum stigmögnun mótmæla í Tirana“. Sendinefndin kallaði eftir skjótri rannsókn og hvatti „alla aðila til að draga úr spennunni“.
Albanía Bandaríkin Fuglar Umhverfismál Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Danska knattspyrnuliðið Midtjylland gat aðeins æft í örfáar mínútur í dag á Air Albania-leikvanginum í Tirana, höfuðborg Albaníu, áður en tæma þurfti völlinn vegna táragass. 14. október 2026 21:29 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Sjá meira
Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Danska knattspyrnuliðið Midtjylland gat aðeins æft í örfáar mínútur í dag á Air Albania-leikvanginum í Tirana, höfuðborg Albaníu, áður en tæma þurfti völlinn vegna táragass. 14. október 2026 21:29