Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2026 22:03 Vólódímír Selenskí á blaðamannafundi í Brussel í dag. AP/Geert Vanden Wijngaert Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni.
Trump gerði nýlega samkomulag við Vladimír Pútín um kaup á díselolíu og felldi niður refsiaðgerðir á rússneska díselolíu en Selenskí sagðist ekki geta sætt sig við það. Sambærilegar aðgerðir gegn rússnesku jarðgasi gætu fylgt á eftir. „Ef ég stend ekki gegn þessu, hver gerir það þá?“ spurði Selenskí á hliðarlínum fundar Leiðtogaráðs Evrópusambandsins í Brussel í dag. Trump hefur haldið því fram að það sé Selenskí en ekki Pútín sem standi í vegi friðar í Úkraínu og kennir áðurnefndum árásum Úkraínumanna um hátt eldsneytisverð, sem sérfræðingar segja að sé að miklu stærri hluta til komið vegna stríðs Trumps gegn Íran. Eftir fundinn í dag var Selenskí spurður, samkvæmt frétt BBC, hvort hann teldi Trump vera að reyna að gera hann að blóraböggli fyrir eigin vandamál Trumps. Selenskí beið í um fimmtán sekúndur á meðan hann hlustaði á túlk sinn og glotti svo en þá hlógu blaðamenn. „Þetta er svarið mitt.“ Q: Do you think you are being treated as a scapegoat for Trump's own problems? Zelensky: (Smiles) This is my answer. https://t.co/30UHJbIu4E— Clash Report (@clashreport) October 16, 2026 Þakkaði Evrópu fyrir Selenskí ávarpaði leiðtogafund Evrópusambandsins í Brussel í morgun. Þar sagðist hann þakklátur fyrir stuðninginn sem Úkraína hefði fengið frá Evrópu. Margt hefði gengið á á undanförnum árum. „Ekkert okkar vildi þetta stríð, algerlega ekkert okkar. En það erum við sem þurfum að bregðast við þessum grimmileika og óstöðugleikanum sem stríðið hefur valdið.“ Forsetinn sagði að án Evrópusambandsins og samstöðu þess hefði Vladimír Pútín gengið enn lengra en hann hefði þegar. Í ávarpi sínu talaði Selenskí einnig um samband Úkraínu, Evrópu og Bandaríkjanna. Það samband hefur beðið mikla hnekki á undanförnum dögum og einnig áður. Hann sagðist þakklátur þeim sem væru að reyna að halda Evrópu og Bandaríkjunum saman. Þá sagði Selenskí að í Bandaríkjunum væri margt góðhjartað fólk sem vildi hinu illa allt illt og að Úkraína standi keik gegn innrás Rússa. Það væru sömu góðu hjörtu og hefðu hjálpað Evrópu að verja frelsi sitt á árum áður, unnið kalda stríðið og vildu það besta fyrir Evrópu. „Ég tel að flestir Bandaríkjamenn séu enn þeirrar skoðunar. Og þegar upp er staðið mun bandaríska þjóðin fá að láta vilja sinn í ljós.“ Þar var Selenskí líklega að vísa í þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Ef marka má kannanir eru Repúblikanar ekki líklegir til að ríða feitum hesti frá þeim kosningum. Hann sagði einnig að eina leiðin til að fá Pútín til að hlusta væri að hita verulega undir honum og gera honum eitt ljóst. Að annaðhvort velji hann frið en verði blankur. I am grateful to all of you who are trying to keep Europe and the United States together. There are so many people with good hearts in America who sincerely want evil to lose and Ukraine to stand strong. These are the very hearts that helped Europe defend its freedom, and that fought on D-Day, won the Cold War, and want what is best for Europe. Hearts that want to be allies, not to divide or humiliate Europe. I believe most Americans still feel this way. And at the end of the day, the American people will have their say. Putin will listen to America if America really turns up the heat on him and makes one thing clear – either he chooses peace, or he gets no more money for his war. From an address to the participants of the European Council meeting. (2/5)— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 16, 2026 Selenskí nefndi einnig niðurfellingu Trumps á rússneskri díselolíu og sagði að Úkraínumenn hefðu varað við því að ef slakað yrði á refsiaðgerðum gegn Rússlandi myndu aðrir nýta það. Peningar væru þegar byrjaðir að flæða aftur til Rússlands. Þrátt fyrir það myndi samkomulagið hafa hverfandi áhrif á verð díselolíu í heiminum en það myndi hafa mikil áhrif á pyngju Pútíns og gera honum auðveldara að fjármagna stríðsreksturinn gegn Úkraínu. Hann kallaði eftir frekari refsiaðgerðum og betri eftirfylgni með þeim refsiaðgerðum sem þegar eru í gildi. Sérstaklega hvað varðar fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við Rússa og selja þeim íhluti fyrir skotflaugar, samskiptabúnað og dróna. Úkraínumenn skoða reglulega þessa íhluti sem finnast í eldflaugum og drónum Úkraínu og þeir koma margir frá fyrirtækjum á Vesturlöndum. We warned that if sanctions are eased anywhere in Europe, others will quickly – we see it – take advantage of it. And now we can see how cash will start flowing back into Russia through the “Diesel Deal.” This “Diesel Deal” will never be enough to offset the impact of the Strait of Hormuz on global markets. But it will put more money straight into Putin’s pocket to fund this war. We need a strong 22nd EU sanctions package. And please, we need real sanctions against every company and every person involved in making Russian ballistic missiles, advanced communications systems and drones – and those involved in Russia’s financial system. From an address to the participants of the European Council meeting. (3/5)— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 16, 2026 Vantar enn peninga og flugskeyti Selenskí sagði að stríðið myndi kosta Úkraínumenn um 155 milljarða evra á næsta ári. Úkraínumenn þyrftu frekari fjárhagsaðstoð og þá sérstaklega við að auka drónaframleiðslu. Minnst sjötíu milljarða þyrfti frá Evrópu. „Þetta er raunsæ upphæð og ég bið ykkur um að finna þennan stuðning. Það mun hjálpa okkur við að halda aftur af Rússum.“ Varðandi dróna sagði hann Úkraínumenn hafa burði til að framleiða tvisvar til þrisvar sinnum fleiri dróna en það færi eftir týpu. Með auknu fjármagni gætu þeir aukið þrýstinginn á Rússa verulega. Þá nefndi Selenskí einnig skort Úkraínumanna á flugskeytum í Patriot-loftvarnarkerfi, sem eru helstu varnir Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum. Hann sagði ekki ganga að Úkraínumenn fengu tvö eða fjögur flugskeyti frá einu ríki á nokkurra mánaða fresti. Selenskí sagðist þakklátur fyrir þau flugskeyti sem Úkraínumenn fengju en þörfin á fleirum væri gífurleg. Bað hann um að fá þau flugskeyti sem til væru í Evrópu svo hægt væri að standa vörð um líf Úkraínumanna. The war will cost 155 billion euros next year. And we need at least 70 billion euros more from you – for defense, for weapons, and for our resilience. This is a realistic amount. And I ask you to find this support. It will help us hold Russia back. There are some very simple facts. We stop most Russian assaults on the front line thanks to drones. We cut Russian supply lines with these technologies. And our drones are helping to weaken Russia’s economy. Right now, we could produce two or three times more drones – depending on the type. But we simply don’t have enough money for that. It’s true. Just imagine if we could put two or three times more pressure on Russia than we do today. From an address to the participants of the European Council meeting. (4/5)— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 16, 2026 Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Í ávarpi sínu sagðist Selenskí standa í þeirri trú að þótt stríðinu myndi ljúka fljótt hefði Pútín gert umfangsmiklar breytingar í Rússlandi og að Evrópu myndi áfram stafa ógn af ríkinu. „Hann er að móta Rússland sem líkist Norður-Kóreu, þar sem börn eru alin upp frá unga aldri fyrir stríð og til að deyja fyrir leiðtoga þeirra. Rússland mun ekki hætta að vera hættulegt.“ Þá sagði Selenskí að það væri styrkur Úkraínu, her landsins og tækni sem myndi hjálpa við að halda Evrópu öruggri. Það væri ekki enn endurspeglað í fjárútlátum Evrópu til varnarmála og þyrfti að endurskoða. We believe this war will be over as soon as possible. But Putin plans to stick around much longer. He is building a Russia that looks like North Korea – where children are raised from an early age for war and to die for their leader. So Russia will not stop being dangerous. And it is our – Ukrainian – strength, our army, our technologies that help guarantee also European security, your security. These security guarantees are not yet reflected – we think – in your budget from 2028 onward. Let’s get serious about this. Let’s work out exactly how Ukraine’s defense capabilities should be included in that budget. From an address to the participants of the European Council meeting. (5/5)— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 16, 2026 Snýst ekki bara um Donbas Á blaðamannafundinum eftir fund leiðtogaráðsins var Selenskí spurður út í kröfur Pútíns til Donbashéraðsins svokallaða. Það er myndað af Lúhansk og Dónetskhéruðum. Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“. Það svæði er um fimmtungur Dónetsk, og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir. Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti. Selenskí svaraði spurningunni á þá leið að stríð Rússa gegn Úkraínu snerist ekki um Donbassvæðið. Það snerist um tilvist Úkraínu. Ef Úkraínumenn hættu að berjast yrði þeim útrýmt. „Pútín segist vilja Donbas en af hverju hófst innrásin hans á því að þeir hernámu næstum því Kænugarð? Er hún í austurhluta landsins? Er hún í Donbas?“ Selenskí sagði að svo væri ekki. Kænugarður væri höfuðborg Úkraínu og án höfuðborgar myndi ríkið hætta að vera til. „Hann vill útrýma okkur.“ Zelensky: Putin is saying that he wants Donbas. But why did the full-scale invasion begin with almost occupying Kyiv? Is that in the east of our country? Is that in Donbas? No, that is the capital, and the state does not exist without the capital. He wants to annihilate us. https://t.co/vhIBPi880K— Clash Report (@clashreport) October 16, 2026 Þá bætti Selenskí við að ef varnir Úkraínumanna féllu og ríkið yrði hernumið af Rússlandi myndi Pútín reka milljónir af Úkraínumönnum til Evrópu. „Hann vill gera út af við okkur. Hann virðir okkur ekki, fullveldi okkar né landamæri okkar. Hann heldur í alvörunni að við séum ekki ríki, séum ekki þjóð.“ Þess vegna sagði Selenskí ekki hægt að treysta því að Pútín myndi láta staðar numið við Donbassvæðið, ef Úkraínumenn gæfu það eftir. Áhugasamir geta horft á allan blaðamannafundinn í spilaranum hér að neðan.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Donald Trump Bandaríkin Evrópusambandið Hernaður Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Sjá meira