Andersson hafnað í sænska þinginu Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2026 10:52 Magdalena Andersson er leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins. Vísir/Getty Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins.
Ljóst var fyrir atkvæðagreiðsluna í morgun að Andersson nyti ekki trausts meirihluta þingmanna á sænska þinginu í embætti forsætisráðherra. Niðurstaðan var sú að 99 þingmenn sögðu já en 248 sögðu nei og tveir voru fjarverandi. Flokkarnir sem mynda vinstri blokkina hafa ekki náð samkomulagi um samstarf og í gær sögðu bæði formaður Vinstriflokksins og talsmenn Græningja að flokkarnir myndu ekki greiða atkvæði með ríkisstjorn sem þeir ættu ekki sæti í. Segir óbrúanlegan ágreining til staðar Í morgun greindi formaður Miðflokksins síðan frá því að þingmenn flokksins myndu líka segja nei. „Miðflokkurinn gæti stutt ríkisstjórn sem eingöngu væri skipuð Jafnaðarmönnum, en það er engin pólitísk áætlun til staðar sem byggir á áherslum í miðjunni. Þess vegna mun Miðflokkurinn segja nei í atkvæðagreiðslu dagsins um forsætisráðherra,“ sagði Elisabeth Thand Ringqvist formaður Miðflokksins við SVT í morgun. Miðflokkurinn, Græningjar, Vinstriflokkurinn og Jafnaðarmannaflokkurinn mynda hina svokölluðu vinstri blokk sem náði meirihluta á þinginu í kosningunum þann 12. september. Miðflokkurinn hefur hins vegar gefið út að hann muni ekki starfa í ríkisstjórn með Vinstriflokknum og því hefur verkefni Andersson síðustu vikur verið að reyna að finna samstarfsflöt flokkanna á milli. Það hefur gengið bölvanlega en Andersson hefur í tvígang fengið umboð til stjórnarmyndunar frá forseta þingsins. Í fyrra skiptið gafst hún upp en fékk tækifærið á ný og hafði þá viku til að mynda stjórn. Niðurstöður þingkosningaþegar 100% atkvæða hafa verið talin Það gekk litlu betur og á fundi Andersson með þingforsetanum Andreas Norlén á þriðjudag sagði hún að aðstæður væru ekki til stjórnarmyndunar þó árangur hafi náðst í viðræðum flokkanna. Óbrúanlegur ágreiningur væri enn til staðar. Í kjölfarið ákvað Norlén að leggja fram tillögu um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins yrði skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins og sjá hvort fulltrúar hinna flokkanna í vinstri blokkinni myndu styðja við þá tillögu. Hver fær umboð til stjórnarmyndunar? Óljóst er hver fær næst umboð til stjórnarmyndunar en líklegt er að það verði Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna og fráfarandi forsætisráðherra. Forseti þingsins getur í mesta lagi lagt fram fjórar tillögur að forsætisráðherra til atkvæðagreiðslu í þingsalnum, verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Þá hafa heyrst raddir þess efnis að Elisabeth Thand Ringqvist formaður Miðflokksins ætti að láta reyna á myndun miðjustjórnar sem hún hefur talað fyrir. Slíkt myndi krefjast þess að flokkar úr hægri og vinstri blokkum myndu vinna saman. Formenn bæði Kristilegra demókrata og Frjálslyndra, sem eru hluti af fráfarandi ríkisstjórn, hafa báðir sagt að slíkt samstarf sé ekki í myndinni.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. 29. september 2026 22:43