Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 07:52 Kveikt var í bílum og byggingum. Vísir/EPA Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland í gær. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum í gær og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt. Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum.
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víðar, meðal annars í Limoges þar sem mikill eldur í ráðhúsinu olli því að þakið hrundi að hluta. Í frétt BBC segir að einhverjir mótmælenda hafi farið að ræna í verslunum og þá hafi einnig verið greint frá umfangsmiklum skemmdarverkum á ráðhúsum og fyrirtækjum. Þar kemur einnig fram að í París hafi mótmælin byrjað friðsamlega en þegar leið á daginn hafi einhverjir hópar kveikt elda á götum úti og í ökutækjum, meðal annars á þekktum stöðum í miðborginni á borð við Place de la République. Óeirðarlögregla kölluð til Verslanir voru rændar, að minnsta kosti einn veitingastaður brann til kaldra kola og BBC varð vitni að slagsmálum milli sumra hópanna. Þá segir að óeirðalögregla hafi ráðist að mannfjölda í miðborg Parísar og berja nokkra með kylfum. Í frétt BBC segir að Grégory Doucet borgarstjóri hafi harmað bruna ferðamannaskrifstofu borgarinnar. Það væri harmleikur. „Þetta kremur hjörtu okkar því þetta er mjög táknræn og þekkt söguleg bygging.“ Lögreglan á staðnum sagði að „óvinveittir einstaklingar“ hefðu komið í veg fyrir að slökkviliðsmenn gætu með öruggum hætti ráðið niðurlögum eldsins. Slökkvilið barðist einnig við eldinn í ráðhúsinu í Limoges og segir í frétt BBC að í Saint-Étienne hafi ungur maður misst höndina í mótmælunum. Greint hefur verið frá umfangsmiklum skemmdarverkum. Vísir/EPA Markvisst ofbeldi Innanríkisráðuneyti Frakklands segir að sums staðar hafi verið um að ræða „markvisst ofbeldi“ af hálfu „hettuklæddra einstaklinga“, meðal annars í hlutum höfuðborgarinnar og einnig í Marseille, Rennes, Toulouse og Angers. Greint hafi verið frá skemmdum á byggingum víða um Frakkland, meðal annars í Grenoble, Avignon, Pau, Montpellier og Valence. Brotist var inn í fata- og matvöruverslanir í París og Apple-verslun í Lille var brotin upp og tæmd. Mótmælin fylgja þriggja vikna mótmælaöldu undir forystu stúdenta víðs vegar um landið. Reiði vegna fjarvista kennara og lélegs aðbúnaðar í skólum breyttist fljótt í landsmótmæli gegn ójöfnuði, ónógum opinberum útgjöldum og versnandi gæðum menntunar. Stjórnvöld hafa reynt að koma til móts við kröfurnar, en Édouard Geffray menntamálaráðherra lofaði 3.000 forfallakennurum til viðbótar í sjónvarpsviðtali 8. október en mótmælin hafa aðeins haldið áfram og harðnað eftir það. Stjórnvöld segja sums staðar hafa verið um markvisst ofbeldi og þjófnað að ræða. Vísir/EPA Gulu vestin kölluð til Kallað hefur verið eftir því að verkalýðsfélög og áberandi einstaklingar úr hinni svokölluðu gulu vestin-hreyfingu frá 2018 taki þátt í mótmælunum. CGT, eitt stærsta verkalýðsfélag Frakklands, hefur lýst yfir stuðningi við mótmælin og kallað eftir „hærri launum og lífeyri, lægra verðlagi og verndun opinberrar þjónustu sem mætir þörfum fólks“. Í frétt BBC segir að þó svo að mótmæli og óeirðir séu ekkert nýmæli í Frakklandi komi þessi hrina á sama tíma og landsmenn eru að ganga inn í nokkra pólitíska óvissu með brotthvarfi Emmanuel Macron úr forsetastól á næsta ári. Mótmælendur mótmæla hærri framfærslukostnaði og lakari gæðum menntunar. Vísir/EPA Óvissa framundan Skoðanakannanir benda til þess að forsetakosningarnar í apríl gætu snúist um baráttu milli Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, og Jean-Luc Mélenchon úr harðvinstriflokknum La France Insoumise. Bæði hafa þau tjáð sig um mótmælin samkvæmt frétt BBC en sá síðarnefndi tók einnig þátt í þeim og sakaði lögregluna um að hafa „sleppt sér“ á mótmælendur en fordæmdi þó rán og íkveikjur mótmælenda. Le Pen sagði að „réttmætum kröfum“ mótmælenda hefði verið „haldið í gíslingu af öfgavinstrinu“ og sakaði Mélenchon um að kynda undir ofbeldinu.
Frakkland Tengdar fréttir Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir. 15. október 2026 08:13 Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri. 9. október 2026 07:39 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira
Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir. 15. október 2026 08:13
Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri. 9. október 2026 07:39