Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Kjartan Kjartansson skrifar 29. október 2025 16:00 Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, með Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra samtakanna, sér við hlið á nefndarfundi Alþingis. Myndin er úr safni. Vísir Sú mynd sem þingmaður Viðreisnar dregur upp af stöðu nýsköpunar á Íslandi er skökk, að mati sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Þingmaður heldur því fram að tækni- og nýsköpunarfyrirtæki séu enn minna sýnileg á íslenskum markaði en í Evrópu.
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, bar saman fjölda tækni- og nýsköpunarfyrirtækja á lista verðmætustu félaganna í íslensku kauphöllinni við hlutfallið í evrópskum kauphöllum í grein sem birtist á Vísi í gær. Lágt hlutfall þeirra í Evrópu var á meðal ábendinga Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu, í skýrslu um hnignandi samkeppnishæfni Evrópu í samanburði við Bandaríkin og Kína í fyrra. „Sé litið til íslensku kauphallarinnar þá eru það fjármálafyrirtæki, smásalar, sjávarútvegsfyrirtæki og fasteignafélög sem tróna á toppnum. Allt er þetta er starfsemi sem hefur verið til í áratugi. Tæknifyrirtækin eru jafnvel minna sýnileg en í ESB,“ sagði Pawel í greininni. Alvotech og Marel á meðal stórlaxanna Við þetta gerir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, verulegar athugasemdir. Mörg verðmætustu fyrirtækjann í íslensku kauphöllinni séu þvert á móti tækni- og nýsköpunarfyrirtæki, eins og JBT Marel og Alvotech sem hafi verið byggð frá grunni á Íslandi. Til viðbótar megi nefna Emblu Medical, Kerecis og CCP. Virði Kereces við sölu þess hafi verið meira en markaðsvirði flestra þeirra félaga sem Pawel nefndi í grein sinni þó að félagið hafi ekki verið skráð á markað hér. Pawel nefndi bæði Emblu Medical og Alvotech í grein sinni en undanskildi þau frá lista sínum þar sem þau eru einnig skráð í kauphöllum annarra landa. Geri lítið úr fyrirtækjum sem hafa verið byggð upp Sigríður segir í tölvupósti til Vísis að íslenskt atvinnulíf eigi vissulega undir högg að sækja, meðal annars vegna íþyngjandi regluverk, hás raforkukostnaðar og stöðu alþjóðaviðskipta. Staðan sem Pawel dragi upp af nýsköpun hér sé þrátt fyrir það ekki rétt enda sé fjárfesting í rannsóknum og þróun umtalsvert meiri hlutfallslega á Íslandi en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. „Það er umhugsunarefni að þingmaður dragi upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar á Íslandi en að okkar mati gerir þetta lítið úr þeim stórkostlegu nýsköpunar-, tækni- og hugverkafyrirtækjum sem hafa byggst upp hér á landi,“ segir hún.
Samkeppnismál Evrópusambandið Alþingi Nýsköpun Tengdar fréttir Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Efnahagsleg hnignun Evrópu þýðir að lífsgæði íbúa álfunnar skerðast ef ekkert verður að gert. Marshall-aðstoðin eftir seinna stríð bliknar í samanburði við þá fjárfestingu sem Evrópa þarf að ráðast í samkvæmt nýrri skýrslu fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu. 9. september 2024 14:20 Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Fjármálaráðherra Þýskalands hafnaði metnaðarfullum tillögum fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu um efnahagslega endurreisn álfunnar aðeins örfáum klukkustundum eftir að þær voru lagðar fram í gær. Nær útilokað virðist að þær nái fram að ganga. 10. september 2024 08:54 Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Efnahagsleg hnignun Evrópu þýðir að lífsgæði íbúa álfunnar skerðast ef ekkert verður að gert. Marshall-aðstoðin eftir seinna stríð bliknar í samanburði við þá fjárfestingu sem Evrópa þarf að ráðast í samkvæmt nýrri skýrslu fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu. 9. september 2024 14:20
Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Fjármálaráðherra Þýskalands hafnaði metnaðarfullum tillögum fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu um efnahagslega endurreisn álfunnar aðeins örfáum klukkustundum eftir að þær voru lagðar fram í gær. Nær útilokað virðist að þær nái fram að ganga. 10. september 2024 08:54