Viðskipti innlent

Nú hægt að sækja um að ráð­stafa sér­eignar­sparnaði á hús­næðis­lán

Lovísa Arnardóttir skrifar
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram frumvarp á síðasta þingi sem var samþykkt í sumar um breytingu á fyrirkomulagi ráðstöfunar séreignasparnaðar. 
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram frumvarp á síðasta þingi sem var samþykkt í sumar um breytingu á fyrirkomulagi ráðstöfunar séreignasparnaðar.  Vísir/Anton Brink

Skatturinn opnaði í gær fyrir það að fólk gæti sótt um hjá þeim um að nýta séreignarsparnað skattfrjálst til að greiða inn á húsnæðislán. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins og þarf að sækja um fyrir 1. desember vilji fólk nýta sparnaðinn á þessu ári.

Úrræðið gerir fólki kleift að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á höfuðstól húsnæðisláns í allt að tíu ár. Á árinu 2026 er heimilt að ráðstafa allt að 500.000 krónum á mann með þessum hætti.

Úrræðið tók gildi í byrjun mánaðar en umsóknarferlið var ekki tilbúið fyrr en nú. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í júní. Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að fólk muni geta ráðstafað sinni séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt.

Á vef Skattsins segir að til að nýta úrræðið þurfi umsækjandi að eiga að minnsta kosti 30 prósenta eignarhlut í húsnæðinu, vera með þar skráð lögheimili og hafa lán sem er tryggt með veði í eigninni.

Þau sem vilja nýta séreignarsparnað vegna iðgjalda sem greidd hafa verið frá 1. janúar 2026 þurfa að sækja um fyrir 1. desember 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma gilda frá og með umsóknarmánuði. Hægt er að sækja um hér. 


Tengdar fréttir

Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar

Hægt verður að sækja um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána þann 1. október. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði. Hægt verður að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×