Viðskipti innlent

Bein út­sending: Rök­styðja stýri­vaxtaákvörðun sína

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Einar

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, munu gera grein fyrir ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30.

Greint var frá því í morgun að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefði ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Í yfirlýsingunni sagði meðal annars að verðbólga hafi aukist enn frekar frá því í sumar líkt og búist hafi verið við. Hún mælist nú 5,9 prósent og hafi ekki verið meiri í tvö ár. „Aukning mældrar verðbólgu hafi fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hafi hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega fjórum prósentum um nokkra hríð.

Hægt verður að fylgjast með fréttamannafundinum í spilaranum að neðan.


Tengdar fréttir

Stýrivextir áfram átta prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×