Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2026 13:04 Frá veitingastöðunum tveimur. Tveir nýir veitingastaðir, Dom Brasserie & Bar og Lauf Bistro, hafa opnað á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju. Íslandshótel annast rekstur beggja staðanna, sem eru hluti af aukinni áherslu félagsins á veitingarekstur samhliða fjölgun hótela í rekstri þess, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar segir að Dom Brasserie & Bar sé staðsettur á Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut. Áhersla sé lögð á að staðurinn þjóni fjölbreyttum hópi gesta yfir daginn, allt frá morgunverði fyrir hótelgesti, viðskiptafundum yfir hádegisverði og til kvöldverðar. Veitingarekstur hótelsins þjóni jafnframt ráðstefnum, veislum og öðrum viðburðum. Í tilkynningunni segir að íslensk hráefni séu áberandi á matseðli Dom. Í hádeginu sé boðið upp á hlaðborð með heitum og köldum réttum og um helgar sé boðið upp á brönshlaðborð. Dom Bar sé jafnframt hluti af veitingarekstri hótelsins og þar sé sérstakur barmatseðill. Fram kemur að Guðmundur Víðir Víðisson sé yfirmatreiðslumeistari Hilton Reykjavík og Dom Brasserie & Bar. Hann hafi víðtæka reynslu úr íslenskum veitingarekstri og hafi meðal annars starfað á Argentínu steikhúsi, Reykjavík Meat og Mathúsi Garðabæjar. Áður en hann gekk til liðs við Íslandshótel hafi hann haft umsjón með eldhúsum Vox og Satt Restaurant Lauf Bistro opnar á Hótel Reykjavík Öskju Þá kemur fram í tilkynningunni að á Hótel Reykjavík Öskju hafi Lauf Bistro opnað með áherslu á vandaða en aðgengilega matargerð og afslappað andrúmsloft. Þar sé boðið upp á morgunverðarhlaðborð, rétti af matseðli og kvöldverðarhlaðborð auk brönshlaðborðs um helgar og á almennum frídögum. „Yfirmatreiðslumaður Laufs Bistro er Ómar Stefánsson, sem á að baki langan feril í íslenskum veitingarekstri. Ómar lærði matreiðslu í Kaupmannahöfn hjá Erwin Lauterbach á veitingastaðnum Saison og hefur meðal annars starfað á Vox og Dill. Hann var jafnframt í kokkalandsliðinu í fjögur ár. Síðar starfaði hann sem yfirkokkur á Fosshótel Stykkishólmi og leiddi opnun Fröken Reykjavíkur Kitchen & Bar á Hótel Reykjavík Saga árið 2023.“ segir í tilkynningunni. „Veitingarekstur er mikilvægur hluti af starfsemi Íslandshótela. Með Dom Brasserie & Bar og Laufi Bistro erum við að byggja upp tvo ólíka veitingastaði sem þjóna bæði hótelgestum og fólki sem býr og starfar á höfuðborgarsvæðinu. Veitingastaðirnir verða sjálfstæð vörumerki með skýra sérstöðu og ásýnd. Við viljum að þeir höfði til breiðs hóps og verði hluti af veitingastaðaflóru borgarinnar. Við erum mjög ánægð með að hafa jafn reynslumikla matreiðslumenn og Guðmund Víði og Ómar í fararbroddi. Við viljum meðal annars endurvekja hádegishlaðborðin vinsælu og einnig hvetja fjölskyldur og vini að hittast í bröns um helgar, sem verður í boði á báðum veitingastöðum,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. Fram undan jólavertíð Segir í tilkynningunni að veitingarekstur beggja hótela nái einnig til ráðstefna, funda, veislna, erfidrykkja og stærri viðburða. Dom og Laufi sé ætlað að þjóna ólíkum hópum og tilefnum yfir daginn, hvort sem um er að ræða viðskiptafundi, samveru fjölskyldna og vinahópa eða stærri samkomur. Fram undan sé jafnframt jólavertíðin og verði að venju boðið upp á jólahlaðborð í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Jólahlaðborðinu sé meðal annars ætlað fyrirtækjum og hópum og mun Stuðlabandið sjá um tónlist og skemmtun á völdum kvöldum. Íslandshótel er leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og rekur nítján hótel með um 2.400 herbergjum víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík, auk Hilton Reykjavík. Kjarnastarfsemi félagsins sé hótel- og veitingarekstur og félagið á jafnframt stóran hluta þeirra fasteigna sem hýsa starfsemina.
Veitingastaðir Hótel á Íslandi Reykjavík Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira