Viðskipti innlent

Sonur Kristjáns í hans stað á hval­veiðiráð­stefnu

Kjartan Kjartansson skrifar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. Vísir/Vilhelm

Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi son sinn í fyrsta skipti á fund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ástralíu í síðustu viku. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór fyrir sendinefnd Íslands en ráðuneyti sjávarútvegsmála hefur fram að þessu farið með það hlutverk.

Alþjóðahvalveiðiráðið fundaði í Hobart á áströlsku eyjunni Tasmaníu í síðustu viku en það fundar nú annað hvert ár. Kristján Loftsson hefur setið fundi ráðsins á þeim tíma sem Ísland hefur verið aðili að því en nú bar hins vegar svo við að Loftur Kristjánsson, sonur Kristjáns, tók sæti hans.

Loftur virðist hvorki á meðal stærstu hluthafa Hvals hf. né eiga sæti í stjórn fyrirtækisins miðað við nýjasta birta ársreikning þess fyrir árin 2024 til 2025.

Sú nýlunda var einnig á ráðstefnunni í ár að formaður íslensku sendinefndarinnar var fulltrúi frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneyti sem fer með málefni hvalveiða hefur alla jafna haft formennsku í nefndinni.

Auk fulltrúa utanríkisráðuneytisins og Lofts voru fulltrúar frá atvinnuvegaráðuneytinu, hvalaskoðunarfyrirtæki og Hafrannsóknastofnun í sendinefndinni. Dýraverndarsamtökin Hvalavinir sendu tvo áheyrnarfulltrúa á fundinn.

Kristján Loftsson er 83 ára gamall. Hann sat síðasta fund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Lima í Perú fyrir tveimur árum. Mikla athygli vakti þegar sonur Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi ráðherra, heyrðist segja á leynilegri upptöku að Kristján hefði greitt fyrir ferð Jóns á ráðstefnuna í Perú.

Jón var ekki hluti af sendinefnd Íslands en sagðist hafa verið þar á vegum IWMC, alþjóðlegra samtaka sem styðja vísindaveiðar á hvölum. Fullyrti Jón að hann hefði greitt allan kostnað við ferðina sjálfur þvert á það sem sonur hans heyrðist segja að Kristján hefði greitt allan annan kostnað Jóns en flugferðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×