Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Björn Berg skrifar 6. október 2026 07:03 Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. 57 ára karl spyr: „Ef bankar falla eru sjóðsbréf sem eru í ríkisskuldabréfum örugg?“ Fjöldi Íslendinga ávaxtar sparifé í ríkisskuldabréfum. Sumir kaupa stök bréf og geyma þau á vörslureikningi, margir fjárfesta í ríkisskuldabréfasjóðum og nær allir eiga ríkisskuldabréf óbeint í gegnum lífeyrissjóðinn sinn. Það er ágætt að hafa í huga að þetta eru meira og minna sömu skuldabréfin, útgefin af íslenska ríkinu. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað eru sjóðir? Sjóðir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Allir eiga þeir það þó sameiginlegt að vera hugsaðir sem sameiginleg fjárfesting fjölda fjárfesta. Einstaklingur leggur sparifé sitt inn í verðbréfasjóð með því að kaupa í honum hlutdeildarskírteini. Sjóðstjóri ber svo ábyrgð á að koma fénu fyrir í fjárfestingum eða sparnaðarleiðum, innan þeirra marka sem fjárfestingarstefna sjóðsins leyfir (sú stefna er aðgengileg á vef sjóðastýringarfyrirtækisins). Ríkisskuldabréfasjóðir eru því væntanlega með þá stefnu að fjárfesta einkum í ríkisskuldabréfum, en blæbrigðamunur getur þó verið á þeim, til dæmis á hlutfalli verðtryggðra og óverðtryggðra bréfa. Eru sjóðir öruggir? Sjóðir sem bankarnir bjóða eru yfirleitt reknir af sérstökum sjóðastýringarfyrirtækjum. Ýmist eru það ótengdir samstarfsaðilar eða dótturfyrirtæki. Sem dæmi má nefna að Íslandsbanki býður sjóði Íslandssjóða, Landsbankinn sjóði Landsbréfa, Kvika sjóði Kviku eignastýringar og Arion sjóði Stefnis. Hver sjóður er svo rekinn á sérstakri kennitölu af sjóðastýringarfyrirtækinu. Með þessu er reynt að koma fyrir að vandræði hjá móðurfélagi eða sjóðastýringarfyrirtæki hafi það bein áhrif á einstaka sjóði. Árangur sjóðsins fer eftir ávöxtun undirliggjandi eigna og áhætta hans endurspeglar áhættu þeirra eigna. Því er öryggi sjóða mjög misjafnt. Sjóður sem fjárfestir í áhættusömum eignum er áhættusamari en sjóður sem fjárfestir í áhættulitlum eignum. Þar að auki mætti telja til áhættu líkur á mistökum við stjórnun sjóðsins, skattabreytingum og öðru sem erfitt getur verið að meta, svo sem mögulegu inngripi opinberra aðila. Það þarf þó að greina á milli þess hvort sjóðurinn sé öruggur gagnvart falli banka eða hvort virði sjóðsins geti lækkað, en það er ekki alveg sama spurningin. Ríkisskuldabréfasjóður getur verið aðskilinn rekstri bankans en samt lækkað í virði ef vextir breytast eða aðstæður á markaði versna. Voru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir í hruninu? Þegar markaðir hrundu haustið 2008 lækkaði gengi margra sjóða. Lækkunin var þó afar misjöfn og endurspeglaði áhrif hrunsins á þau bréf sem inni í sjóðunum voru. Þannig lækkuðu íslenskir hlutabréfasjóðir mun meira en sjóðir sem fjárfestu bæði í íslenskum og erlendum hlutabréfum. Fyrirtækjaskuldabréfasjóðir lækkuðu líka talsvert en ekki ríkisskuldabréfasjóðir. Hvers vegna lækkaði gengi þeirra ekki? Vegna þess að þrátt fyrir allt sem hér gekk á stóð íslenska ríkið skil á greiðslum af þeim skuldabréfum sem í sjóðunum voru. Það er ekki þar með sagt að fullkomlega útilokað sé að ríki geti lent í vandræðum með að greiða af sínum skuldum, eins og eigendur skuldabréfa Argentínu, Grikklands og fleiri landa þekkja. En það þarf verulegt áfall til. Eru sjóðsbréfin þá örugg? Ríkisskuldabréf þykja almennt á meðal öruggustu fjárfestinga sem völ er á. Við skulum samt ekki gleyma því að þau geta sveiflast í verði og ríkisskuldabréfasjóðir því líka. Sjóðum fylgir þó ákveðið öryggi, sem skiptir máli þegar sparifé er ávaxtað. Með eignadreifingu er fjárfest í nokkrum skuldabréfum eða fjölda bréfa og er dreifingunni ætlað að draga úr áhættu og sveiflum. Þá sinnir sjóðstjóri eftirliti með safninu, greiðslum er endurfjárfest og almennt eru viðskipti með verðbréfasjóði nokkuð þægilegri og einfaldari en með stök skuldabréf. Ég get ekki lofað því að ríkisskuldabréfasjóðir yrðu 100% öruggir við fall banka eða annað áfall. En ef spurt er hvar sparifé sé líklegt til að vera í nokkuð góðu skjóli þegar bankar lenda í klandri er erfitt að finna mörg öruggari skjól en dreifðan sjóð sem fjárfestir í skuldabréfum ríkisins. Það þýðir þó ekki að gengi sjóðsins geti ekki lækkað, það getur það sannarlega og því er gott að kynna sér vel eðli skuldabréfa áður en fjárfest er í þeim. Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Fjöldi Íslendinga ávaxtar sparifé í ríkisskuldabréfum. Sumir kaupa stök bréf og geyma þau á vörslureikningi, margir fjárfesta í ríkisskuldabréfasjóðum og nær allir eiga ríkisskuldabréf óbeint í gegnum lífeyrissjóðinn sinn. Það er ágætt að hafa í huga að þetta eru meira og minna sömu skuldabréfin, útgefin af íslenska ríkinu. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað eru sjóðir? Sjóðir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Allir eiga þeir það þó sameiginlegt að vera hugsaðir sem sameiginleg fjárfesting fjölda fjárfesta. Einstaklingur leggur sparifé sitt inn í verðbréfasjóð með því að kaupa í honum hlutdeildarskírteini. Sjóðstjóri ber svo ábyrgð á að koma fénu fyrir í fjárfestingum eða sparnaðarleiðum, innan þeirra marka sem fjárfestingarstefna sjóðsins leyfir (sú stefna er aðgengileg á vef sjóðastýringarfyrirtækisins). Ríkisskuldabréfasjóðir eru því væntanlega með þá stefnu að fjárfesta einkum í ríkisskuldabréfum, en blæbrigðamunur getur þó verið á þeim, til dæmis á hlutfalli verðtryggðra og óverðtryggðra bréfa. Eru sjóðir öruggir? Sjóðir sem bankarnir bjóða eru yfirleitt reknir af sérstökum sjóðastýringarfyrirtækjum. Ýmist eru það ótengdir samstarfsaðilar eða dótturfyrirtæki. Sem dæmi má nefna að Íslandsbanki býður sjóði Íslandssjóða, Landsbankinn sjóði Landsbréfa, Kvika sjóði Kviku eignastýringar og Arion sjóði Stefnis. Hver sjóður er svo rekinn á sérstakri kennitölu af sjóðastýringarfyrirtækinu. Með þessu er reynt að koma fyrir að vandræði hjá móðurfélagi eða sjóðastýringarfyrirtæki hafi það bein áhrif á einstaka sjóði. Árangur sjóðsins fer eftir ávöxtun undirliggjandi eigna og áhætta hans endurspeglar áhættu þeirra eigna. Því er öryggi sjóða mjög misjafnt. Sjóður sem fjárfestir í áhættusömum eignum er áhættusamari en sjóður sem fjárfestir í áhættulitlum eignum. Þar að auki mætti telja til áhættu líkur á mistökum við stjórnun sjóðsins, skattabreytingum og öðru sem erfitt getur verið að meta, svo sem mögulegu inngripi opinberra aðila. Það þarf þó að greina á milli þess hvort sjóðurinn sé öruggur gagnvart falli banka eða hvort virði sjóðsins geti lækkað, en það er ekki alveg sama spurningin. Ríkisskuldabréfasjóður getur verið aðskilinn rekstri bankans en samt lækkað í virði ef vextir breytast eða aðstæður á markaði versna. Voru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir í hruninu? Þegar markaðir hrundu haustið 2008 lækkaði gengi margra sjóða. Lækkunin var þó afar misjöfn og endurspeglaði áhrif hrunsins á þau bréf sem inni í sjóðunum voru. Þannig lækkuðu íslenskir hlutabréfasjóðir mun meira en sjóðir sem fjárfestu bæði í íslenskum og erlendum hlutabréfum. Fyrirtækjaskuldabréfasjóðir lækkuðu líka talsvert en ekki ríkisskuldabréfasjóðir. Hvers vegna lækkaði gengi þeirra ekki? Vegna þess að þrátt fyrir allt sem hér gekk á stóð íslenska ríkið skil á greiðslum af þeim skuldabréfum sem í sjóðunum voru. Það er ekki þar með sagt að fullkomlega útilokað sé að ríki geti lent í vandræðum með að greiða af sínum skuldum, eins og eigendur skuldabréfa Argentínu, Grikklands og fleiri landa þekkja. En það þarf verulegt áfall til. Eru sjóðsbréfin þá örugg? Ríkisskuldabréf þykja almennt á meðal öruggustu fjárfestinga sem völ er á. Við skulum samt ekki gleyma því að þau geta sveiflast í verði og ríkisskuldabréfasjóðir því líka. Sjóðum fylgir þó ákveðið öryggi, sem skiptir máli þegar sparifé er ávaxtað. Með eignadreifingu er fjárfest í nokkrum skuldabréfum eða fjölda bréfa og er dreifingunni ætlað að draga úr áhættu og sveiflum. Þá sinnir sjóðstjóri eftirliti með safninu, greiðslum er endurfjárfest og almennt eru viðskipti með verðbréfasjóði nokkuð þægilegri og einfaldari en með stök skuldabréf. Ég get ekki lofað því að ríkisskuldabréfasjóðir yrðu 100% öruggir við fall banka eða annað áfall. En ef spurt er hvar sparifé sé líklegt til að vera í nokkuð góðu skjóli þegar bankar lenda í klandri er erfitt að finna mörg öruggari skjól en dreifðan sjóð sem fjárfestir í skuldabréfum ríkisins. Það þýðir þó ekki að gengi sjóðsins geti ekki lækkað, það getur það sannarlega og því er gott að kynna sér vel eðli skuldabréfa áður en fjárfest er í þeim.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01
Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03
Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02