Samkeppnismál

Fréttamynd

Reglu­gerðir ESB hafi „sér­stak­lega slæm á­hrif á Ís­land“

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair telur að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri. Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, segir möguleg tækifæri innan myntbandalags Evrópusambandsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu

Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Of snemmt að draga fram heyk­víslar

„Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 pró­sent, þá er það náttúru­lega alveg galið,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­takanna um full­yrðingar Sam­keppnis­eftir­litsins sem fram komu í um­ræðu­skjali um stöðu elds­neytis­markaðarins. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrir­tækja­sam­stæðurnar á dag­vöru- og elds­neytis­markaði sýni betur hvar arð­semi þeirra verður til.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Frum­niður­stöður kalli á dýpri um­ræðu um verð­lagningu olíu­fé­laganna

Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“

„Við erum búin að vera í ESB núna í 30 ár,“ segir Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Baldur er eindreginn stuðningsmaður evrunnar. „EES-samningurinn er um það bil 75-80% aðgangur að ESB. Við höfum góða reynslu af 80% aðild að ESB, þannig að það er ekki nema 20% eftir,“ segir Baldur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ógnar­löng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efnismeðferðar. Héraðsdómur hafði vísað málinu frá meðal annars á þeim grundvelli að stefna í því fæli í sér óhæfilegan skriflegan málflutning. Stefnan taldi einar 135 blaðsíður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar borgi 55 prósent meira fyrir mat­vöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.

Neytendur
Fréttamynd

Hættu við sam­runann vegna af­skipta Samkeppniseftirlitsins

Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar apóteki í Borgartúni. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur því verið afturkölluð. Ástæðan er sögð frummat Samkeppniseftirlitsins á samrunanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Advania lýkur kaupum á Evolv

Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Í tilkynningu kemur fram að Samkeppniseftirlitið hafi ekki gert athugasemdir við samruna fyrirtækjanna og hafi lokið meðferð málsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar

Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á kaup Nova á fyrirtækinu Ofar hf. (áður Origo). Lokauppgjör og frágangur viðskiptanna á samkvæmt áætlun að fara fram á næstu vikum en heildarvirði kaupanna er 4,4 milljarðar króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hrósar olíu­fé­lögunum fyrir við­brögð sín

Fjármálaráðherra segist ánægður með hvernig olíufélögin hafa brugðist við tímabundinni heimild í lögum um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Viðbrögð þeirra bendi til að félögin séu meðvituð um sína ábyrgð.

Innlent
Fréttamynd

Bensín­verð hefur lækkað

Bensínverð lækkaði í gær þegar lækkun virðisaukaskatts tók gildi. Lækkunin er ein af tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissuástandi og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. 

Viðskipti innlent