Skorast ekki undan ábygð vilji flokksmenn nýjan oddvita Agnar Már Másson skrifar 17. september 2025 20:00 Þó Magnea Gná segi að traust ríki í garð oddvitans hefur það vissulega hvarflað að henni að sækjast sjálf eftir oddvitasætinu. Það liggur þó ekki fyrir hvernig valið verður á lista flokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Samsett Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hyggst bjóða sig aftur fram í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík í vor og kveðst ekki ætla að skorast undan ábyrgð ef flokksmenn vilji jafnvel að hún leiði listann. Hún segir þó að traust ríki í garð núverandi oddvita en fylgi flokksins hefur dvínað verulega frá síðustu kosningum.
Magnea segist aðspurð í samtali við Vísi að hún eigi eftir að taka ákvörðun um hvort hún muni sækjast eftir oddvitasætinu sem nú er skipað Einari Þorsteinssyni, sem gerði það ljóst í gæt að hann vilji áfram leiða listann í sveitarstjórnarkosningum í vor. „Ég ætla að bjóða mig aftur til borgarstjórnar,“ segr Magnea. „En hvar á lista ég verð liggur ekki fyrir.“ Aðalatriðið sé að hún skipi sæti sem „gagnist flokknum sem best.“ Gengið verður til kosninga laugardaginn 16. maí og ljóst að spennandi átta mánuðir eru fram undan. Kveðst þó enn treysta Einari Einar, fyrrverandi borgarstjóri, sagði við Vísi á mánudag að hann hyggðist gefa kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í næstu sveitarstjórnarkosningum. Fylgismælingar úr Reykjavík sýna aftur á móti að flokkurinn njóti aðeins stuðnings þriggja prósenta borgarbúa. Ríkir enn traust til Einars? „Já, það er það,“ svarar hún, „og við vinnum frekar náið saman.“ Hvað fylgi í könnunum varðar vísar hún til þess að fylgi flokksins hafi hríðlækkað þegar Framsókn gekk í samstarf með Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum. „Ég held að það sé gott traust innan flokksins og ég held að við eigum alveg meira inni en kannanir gefa til kynna,“ segir hún og bendir á að á sama tíma fyrir síðustu kosningar hafi fylgi Framsóknar verið svipað og það er nú. Það kom nokkuð á óvart þegar Einar ákvað að slíta borgarstjórnarsamstarfinu í febrúar síðastliðnum. Til stóð að mynda nýjan meirihluta með Viðreisn, Sjálfstæðisflokknum og Flokki fólksins en planið fór út um þúfur þegar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafnaði samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Segir fólk hafa komið að orði við sig Magnea er yngsti sitjandi borgarfulltrúinn, fædd 1997, en hún skipaði þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins þegar hann vann stórsigur í borgarstjórnarkosningum 2022 með Einar í stafni en með þeim í borgarstjórn eru framsóknarmennirnir Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson. Hefurðu verið hvött til þess að leiða listann? „Ég hef fengið hvatningar úr ýmsum áttum og þetta er meðal þess sem hefur verið talað við mig um, en ég bara met það seinna þegar að því kemur,“ svarar hún. „Akkúrat núna erum við að ákveða hvernig við ætlum að velja á lista og svo liggur ekki fyrir hverjir verða í framboði eða hvernig það verður. En ég held að það yrði óábyrgt af mér að segja nei núna. En ég skorast ekki undan ábyrgð.“
Borgarstjórn Framsóknarflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Innlent Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Innlent Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Erlent SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Innlent Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Innlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Erlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Fleiri fréttir Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Hinsegin fólk upplifi óöryggi í strætisvögnum Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Afgerandi niðurstaða um þjóðarmorð og óþreyjufullir foreldar á Nesinu Sjá meira