Telja hvorki hættu á jarðskjálftum né áhrifum á vatnsból af Coda Terminal Kjartan Kjartansson skrifar 14. febrúar 2025 12:05 Svona gæti hluti borteigs Coda Terrminal í Hafnarfirði litið út samkvæmt tillögu Carbfix. Carbfix Kolefnisförgunarstöð sem Carbfix vill reisa í Hafnarfirði eru ekki talin líkleg til þess að hafa áhrif á vatnsból eða valda jarðskjálftavirkni sem fólk verði vart við í áliti Skipulagsstofnunar. Stofnunin segir að sérstaklega þurfi hins vegar að vakta hvort stöðin gæti haft neikvæð áhrif á einstakar sjávarfallatjarnir við Straumsvík.
Álit Skipulagsstofnunar á umhverfismati fyrir Coda Terminal, móttöku- og geymslustöðvar fyrir koltvísýring sem Carbfix vill reisa í landi Hafnarfjarðar, var birt í dag. Ætlun Carbfix er að taka á móti flutningaskipum sem flytja koltvísýring til landsins og dæla honum ofan í jörðu þar sem hann binst við berglög með aðferð sem fyrirtækið þróaði til þess að farga kolefni og brennisteinsvetni við Hellisheiðarvirkjun. Verkefnið hefur mætt háværri mótspyrnu hjá sumum íbúum Hafnarfjarðar sem hafa varað við mögulega skaðlegum áhrifum á vatnsból og umhverfi auk þess sem þeir telja að niðurdæling uppleysts koltvísýrings gæti valdið jarðskjálftavirkni í nágrenni íbúabyggðar á Völlunum. Ekki er þó talið líklegt að starfsemi Coda Terminal hafi þessi skaðlegu áhrif í áliti Skipulagsstofnunar. Vatnsból við Kaldárbotna og í Vatnsendakrikum séu þannig langt utan áhrifasvæðis niðurdælingar og vatnstöku sem Carbfix hyggur á og allt bendi til þess að óverulegur líkur séu á örvaðri jarðskjálftavirkni. Stofunin telur þó að vakta þurfi allar hugsanlegar breytingar sem starfsemin kunni að valda vel. Áhersla Carbfix á áfangaskiptingu, mótvægisaðgerðir og vöktun séu lykilatriði. Sérstaklega vill stofnunin að gaumgæfilega verði fylgst með hvort að starfsemi Coda Terminal hafi neikvæð áhrif á sjávarfjallatjarnir í Straumsvík sem séu fágætar á heimsvísu og einstök náttúrufyrirbrigði. Þurfa að fylgjast vel með áhrifum á einstakar sjávarfallatjarnir Niðurstöður líkanareikning benda til þess að starfsemi Coda Terminal geti haft áhrif á grunnvatnshæð, seltu og hitastig sjávarfallatjarnanna í Straumsvík. Óvissa sé um útreikninga líkansins. Í ljósi þess hversu einstakar tjarnirnar og lífríki þeirra sé telur Skipulagsstofnun að möguleg áhrif Coda gætu orðið verulega neikvæð. Ekki sé ásættanlegt að framkvæmdirnar valdi óafturkræfum áhrifum á tjarnirnar og lífríki þeirra. Tekur Skipulagsstofnun undir umsögn Umhverfisstofnunar um að verði neikvæðar breytingar í tjörnunum meiri en gert var ráð fyrir þurfi að takmarka umfang framkvæmdanna. Vöktun og eftirfylgni auk skipulagðra viðbragða gegni lykilhlutverki varðandi möguleg áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á tjarnirnar. Carbfix lagði fram ítarlega vöktunaráætlun fyrir tjarnirnir og lífríki þeirra og sagðist ætla að leita álits Hafrannsóknastofnunar og Umhverfisstofnunar um útfærslur á vöktunar- og viðbragðsáætlunum. Sjávarfallatjarnir í Straumsvík eru sagðar einstakar á heimsvísu og einstök náttúrufyrirbrigði. Carbfix lagði fram ítarlega vöktunaráætlun fyrir þær í umhverfismatinu.Vísir/Egill Niðurdæling langt neðan við neysluvatnsvinnslu Starfsemi Coda Terminal verður vatnsfrek. Dæla á grunnvatni upp úr svonefndum Straumsvíkurstraumi á um hundrað til þrjúhundruð metra dýpi en svo dæla vatninu aftur niður þegar búið verður að blanda koltvísýringi út í það. Skipulagsstofnun telur ekki að framkvæmdin sé líkleg til að hafa áhrif á vatnsból við Kaldárbotna og í Vatnsendakrikum enda séu þau utan áhrifasvæðis niðurdælingar og vatnstöku. Byggir stofnunin það á gögnum Carbfix og sérfræðiáliti Magnúsar Tuma Guðmundssonar, jarðfræðings. Auk þess eigi niðurdæling koltvísýrings að fara fram langt neðan þeirra svæða sem séu nýtt til neysluvatnsvinnslu fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Engu að síður sé fyllsta ástæða til þess að fylgjast vel með mögulegum breytingum á aðstæðum samhliða niðurdælingu og vatnstöku. Niðurdælingin leiði til hækunar grunnvatnsborðs en ekki er gert ráð fyrir að það skili sér í hækkun umhverfis Ástjörn. Skipulagsstofnun telur þó mikilvægt að fylgjast með grunnvatnsborði við tjörnina, Hvaleyrarvatn og Urriðakotsvatn. Leyfi geri ráð fyrir að fólk finni ekki fyrir jarðskjálftum Óverulegur líkur er á því að jarðskjálftavirni verði örvuð með niðurdælingunni svo finnanlegt verði. Vísar Skipulagsstofnun meðal annars til umsagnar Íslenskra orkurannsókna og sérfræðiálits Elíasar Rafns Heimissonar, sérfræðings hjá Jarðvísindastofnun, um að Straumsvíkursvæðið sé óvirkt og fyrirhugaðar niðurdælingarholur nái niður á tiltölulega lítið dýpi. Komi til þess að skjálftar mælist sé líklegt að þeir verði það smáir að fólki finni þá ekki. Skipulagsstofnun segir hins vegar að í ljósi nálægðar við íbúabyggð og umfangs framkvæmdanna, sem ÍSOR segir að af allt annarri stærðargráðu en önnur niðurdæling sem hefur átt sér stað hér á landi, sé þörf á að gæta fyllstu varúðar enda sé ekki hægt að útiloka að fólk greini skjálftavirkni. Forsendur leyfisveitinga til Coda Terminal ættu að byggja á því að íbúar í nágrenni framkvæmdasvæðis verði ekki varir við jarðskjálfta sem rekja megi til starfseminnar, að mati Skipulagsstofnunar. Carbfix dælir koltvísýringi niður í jörðin í borholum sem þessum við Hellisheiðarvirkjun. Kolefnisbindingartæknin var þróuð þar og hefur verið notuð í meira en áratug.Vísir/Arnar Mæla snefilefni þegar koltvísýringurinn kemur til landsins Gagnrýnendur Coda Terminal hafa mikið rætt um snefilefni sem kunna að vera í koltvísýringnum sem á að flytja til landsins og möguleg skaðleg áhrif þeirra á umhverfið. Skipulagsstofnun segir að ekki liggi fyrir hvert magn eða styrkur einstakra snefilefna verði. Niðurstöður úr mælingum á hreinleika koltvísýringsins fyrir dælingu í geymslutanka Coda Terminal í Straumsvík þurfi að liggja fyrir til að tryggja að hann uppfylli kröfur í starfsleyfi. Þá þurfi að fylgjast með styrk efna í vöktunarholum til að tryggja að áhrifa snefilefna verði ekki vart. Leggja til sautján skilyrði fyrir leyfi Alls leggur Skipulagsstofnun til sautján skilyrði fyrir framkvæmdum Coda Terminal, tveimur fleiri en Carbfix lagði til í umhverfissmatsskýrslu sinni. Þau varða flest vöktun og eftirlit með áhrifum starfseminnar og framkvæmdanna, þar á meðal á sjávarfallatjarnirnar, skjálftavirkni og grunnvatnsborð. Einnig eru nefnd skilyrði um rannsóknir á grunnástandi tjarna og vatna á áhrifasvæði framkvæmdarinnar og uppsetningu á gasnemum fyrir koltvísýring í kringum athafnasvæði Coda Terminal vegna mögulegs leka.
Skipulag Coda Terminal Loftslagsmál Umhverfismál Vatn Hafnarfjörður Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira