Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands heldur í dag málþing um stöðu loftlagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og brýna þörf á aukinni samhæfingu rannsókna og miðlun á niðurstöðum þeirra. Fylgjast með má málþinginu á Vísi. Innlent 6.3.2026 12:32
Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Hlýindi í hafinu víða í kringum Ísland í febrúar voru þau mestu frá upphafi mælinga Hafrannsóknastofnunar. Vísbendingar eru um að hringrás sem flytur hlýjan sjó til norðurs hafi styrkst en óvissa ríkir enn um framtíð hennar í hlýnandi heimi. Innlent 6.3.2026 09:28
Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Hópur vísindamanna í Hollandi segir að fjöldi jarðarbúa sem er talinn í hættu vegna vaxandi ágangs sjávar sé mun meiri en áætlað hefur verið hingað til vegna þess að sjávarhæð hafi verið verulega vanmetin. Erlent 5.3.2026 15:43
Þess vegna er Svíþjóð að standa sig vel Svíþjóð er meðal þeirra ríkja sem hafa náð miklum árangri í loftslagsmálum á síðustu áratugum. Árið 1990 nam losun gróðurhúsalofttegunda um 82,5 milljónum tonna CO₂-ígilda en er í dag um 44 milljónir tonna. Skoðun 23. febrúar 2026 13:32
Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Bandaríkjastjórn hótar því að yfirgefa Alþjóðaorkumálastofunina ef hún fellur ekki frá tali um orkuskipti. Kolefnishlutleysi muni aldrei nást. Erlent 18. febrúar 2026 11:14
Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar. Viðskipti innlent 18. febrúar 2026 08:30
Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. Veður 18. febrúar 2026 07:27
Er AMOC kerfisáhættan í Epstein-skjölunum? Nei - Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) kemur ekki fyrir í Epstein-skjölunum. Samlíkingin varpar ljósi á hvernig fjölmiðlaumræða beinist að dramatískum afhjúpunum á kostnað kerfislægra loftslagsógna. Skoðun 18. febrúar 2026 07:00
„Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Sérfræðingur í kolefnismörkuðum telur vel skipulagða herferð í gangi til þess að hafa áhrif á endurskoðun kerfisins sem stendur fyrir dyrum. Viðskipti innlent 17. febrúar 2026 07:01
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10
Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Færð á jökla eru miklu erfiðari vegna mikillar rýrnunar. Víða eru að koma í ljós sprungusvæði sem geta verið hættuleg ferðamönnum og þeim sem sinna mælingum. Afkomumælingum seinkaði verulega vegna slæmrar færðar og aðgengis. Eins slæmar og mælingar voru fyrir síðasta vetur er útlitið ekkert betra í ár. Hrafnhildur Hannesdóttir, fagstjóri jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands, hefur miklar áhyggjur af bæði horfum jöklanna og færðinni á þá. Innlent 15. febrúar 2026 19:01
Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fellt úr gildi álit Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna um að gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, séu skaðlegar heilsu og velferð manna. Erlent 13. febrúar 2026 06:58
Orðræðu Viðskiptaráðs um loftslagsskatta snúið upp á loftslagsmál og raunveruleikann Sunnudaginn 8. febrúar síðastliðinn var áhugavert viðtal á Sprengisandi við Björn Brynjúlf Björnsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Geir Guðmundsson verkfræðing um aukinn kostnað í flugi og flutningum vegna afnáms undanþágu sem Íslendingar hafa lengi notið innan viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir koldíoxíðs. Skoðun 11. febrúar 2026 18:32
Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að kippa stoðunum undan loftslagsaðgerðum og reglum með því að hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar mönnum í vikunni. Fastlega má þó gera ráð fyrir að dómstólar eigi lokaorðið um það. Erlent 11. febrúar 2026 09:21
ETS er ekki bilað, það er loksins farið að virka Undanfarið hafa birst fréttir og yfirlýsingar frá hagsmunaaðilum í atvinnulífinu um að kostnaður við kaup á losunarheimildum innan ETS-kerfisins (Emissions Trading System) muni margfaldast á næstu árum og verða íþyngjandi fyrir íslenskt atvinnulíf. Skoðun 6. febrúar 2026 08:30
Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Það er ákveðin, dáldið dýrkeypt, skemmtun fólgin í því að lesa loftslagspistla undir viðskiptasíðum mbl.is. Þar virðist vera starfrækt sérstök deild sem sérhæfir sig í að mála vísindalega samstöðu heimsins sem dularfullt samsæri til þess eins að hafa af almenningi peninga. Skoðun 4. febrúar 2026 13:33
Eru tæknilegar forsendur orkuskipta til staðar? Í svargrein Gunnars Einarssonar við fyrri grein mína um rangfærslur í loftslagsumræðu eru settar fram efasemdir um hvort sú tækni og þau aðföng sem þarf til orkuskipta séu raunverulega til staðar. Skoðun 2. febrúar 2026 07:33
Árangur Dana í loftslagsmálum margfalt betri en Íslendinga Danmörk hefur á undanförnum árum orðið eitt fremsta fyrirmyndarríki heims í loftslagsmálum. Landið hefur ekki aðeins sett sér metnaðarfull markmið í tengslum við Parísarsamkomulagið heldur jafnframt sýnt í verki að draga megi verulega úr losun án þess að grafa undan efnahagslegri velferð eða lífsgæðum. Skoðun 29. janúar 2026 08:30
Dómsdagsklukkan færð fram Hin svokallaða dómsdagsklukka hefur verið færð fram og stendur nú í 85 sekúndum frá miðnætti, sem er met. Í fyrra var hún í 89 og færðist því fjórum sekúndum nær endalokunum milli ára. Dómsdagsklukkan er tæki vísindamanna til að sýna fram á það hve nálægt mannkynið er heimsendi. Erlent 28. janúar 2026 17:02
Hitamál Flatjarðarsinna Ég hef lengi fylgst með fólki sem afneitar vísindum, sérstaklega loftslagsvísindum. Oft þegar ég rekst á slíka umræðu rifjast upp fyrir mér að það er líka fólk þarna úti sem heldur í alvörunni að jörðin sé flöt og ver tíma sínum í að rökræða það við annað fullorðið fólk á netinu. Flest getum við líklega verið sammála um að það sé ekki sérlega gáfuleg iðja. Við köllum það bara vitleysu og höldum áfram með lífið. Skoðun 23. janúar 2026 08:00
Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. Innlent 22. janúar 2026 21:48
Loftslagsáhætta er öryggismál Íslendingar kannast flestir við Golfstrauminn sem er hluti hafstraumakerfis í Norður-Atlantshafi og gegnir lykilhlutverki í að gera Ísland byggilegt. Skoðun 22. janúar 2026 06:50
Orðum fylgir ábyrgð – líka þegar rætt er um loftslagsbreytingar Ég man eftir einni stund þegar ég var ungur nemandi í framhaldsskóla þegar ég las á forsíðu dagblaðs fyrirsögn sem var á þá leið að mannkynið myndi deyja út. Þá var umræðan um alnæmi að komast í hámæli. Skoðun 21. janúar 2026 10:57
Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Hugsanlegt er að strangari reglur um losun gróðurhúsalofttegunda frá alþjóðaflugi í Evrópu geti þýtt að það verði sex þúsund krónum dýrara fyrir meðalheimilið að ferðast til útlanda en áður. Efnahagsleg áhrif losunarkerfis á almenning á Íslandi eru sögð hafa verið óveruleg til þessa. Viðskipti innlent 18. janúar 2026 07:01