Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók. Innlent 4.3.2026 22:28
Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar frelsissviptingu og vörslu fíkniefna. Málið heyrir undir umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Innlent 4.3.2026 16:48
Rósa í heiðurssæti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði hefur birt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, er í heiðurssæti listans. Innlent 4.3.2026 13:20
Guðmundur Árni leiðir áfram listann Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði var samþykktur á félagsfundi flokksins í dag. Guðmundur Árni Stefánsson leiðir áfram listann og Stefán Már Gunnlaugsson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Hildur Rós Guðbjargardóttir eru þar jafnframt ofarlega. Elín Anna Baldursdóttir sálfræðingur vermir fjórða sætið. Innlent 28. febrúar 2026 14:14
Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar lögðum við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að hefjast handa um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Tillagan byggir á niðurstöðum starfshóps sem lauk störfum í lok síðasta árs þar sem gert er m.a. ráð fyrir íbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu og við Heiðvang/Vesturvang í Norðurbæ. Skoðun 27. febrúar 2026 09:02
Þegar við hugum að líðan styrkjum við allt samfélagið Góð heilsa er ein sterkasta undirstaða góðs samfélags og öflugra vinnustaða. Þegar fólki líður vel eykst orka, einbeiting og starfsánægja. Það er því keppikefli okkar að hér hjá Hafnarfjarðarbæ líði fólki vel. Skoðun 27. febrúar 2026 07:33
Fimm sparnaðarráð fasteignasala: „Líklega besta tímakaup fólks“ Fasteignasalinn Páll Pálsson gefur fimm ráð um það hvernig megi spara og hagnast á fasteignaviðskiptum. Þar kemur hann inn á mikilvægi þess að vera ekki dómharður, kynna sér gögn eigna, skoða endurfjármögnun reglulega og vera með meðalfermetraverð hverfa á hreinu. Lífið 26. febrúar 2026 16:25
Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. Innlent 26. febrúar 2026 12:02
Lest í stað Borgarlínu? Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum árum snúist að verulegu leyti um Borgarlínu. Það er skiljanlegt. Skoðun 26. febrúar 2026 09:32
Vilja borgarlest í stað borgarlínu Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar. Innlent 26. febrúar 2026 09:32
Hvoru megin ætlar þú að sitja? Það fyrsta sem ég heyrði þegar ég mætti á leik FH og Hauka á dögunum var hvoru megin ég ætlaði að sitja. Spurningin kom aftur og aftur, sögð með brosi, stundum með smá kímni en alltaf með sömu undirliggjandi merkingu, nú þarf að velja. Skoðun 26. febrúar 2026 08:02
Halló boltafjörðurinn Hafnarfjörður Nú hefur Hafnarfjörður kynnt með stolti að til standi að byggja nýjan golfvöll í Hafnarfirði, sem eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir þá fjöldamörgu iðkendur sem stunda þá íþrótt. Hins vegar er tölfræðin fyrir þá íþrótt frekar sláandi fyrir okkur, sem berjumst fyrir öðrum íþróttum, en hvergi í heiminum, já öllum heiminum, eru fleiri golfvellir miðað við höfðatölu en á Íslandi eða sirka 5300 manns á hvern völl. Skoðun 25. febrúar 2026 07:02
Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á heimili þess í Hafnarfirði í september í fyrra hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er einnig ákærður fyrir vændiskaup. Innlent 24. febrúar 2026 14:03
Galopið ávísanahefti skattgreiðenda í Hafnarfirði Heimildin, DV og Vísir sögðu frá því fyrir helgi að Hafnarfjarðarbær hafi samið við mig um bætur vegna þeirrar ólöglegu ákvörðunar skólastjóra Hraunvallaskóla að afturkalla ráðningu mína í starf deildarstjóra tómstundamiðstöðvar skólans. Skoðun 23. febrúar 2026 12:02
Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Í þann mund sem slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var að ráða niðurlögum elds við Elliðavatn barst tilkynning um annan eld við Krýsuvíkurleiðina. Innlent 22. febrúar 2026 19:57
Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær hefur greitt þremur fyrrverandi starfsmönnum alls vel rúmlega fimm milljónir króna í sáttagreiðslur á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hafa verið gerðir sextán starfslokasaminga sem eru umfram þriggja mánaða uppsagnarfrest. Innlent 20. febrúar 2026 13:32
Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn. Innlent 18. febrúar 2026 13:30
Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17. febrúar 2026 15:40
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10
Kominn undan feldi og svarið er nei Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði ætlar ekki að gefa kost á sér til varaformennsku í Framsóknarflokknum. Hann segist hafa tekið áskoranir um slíkt alvarlega en á þessum tímapunkti þurfi fókus hans að vera á starfi flokksins í Hafnarfirði. Innlent 13. febrúar 2026 15:02
Íhugar að bjóða fram til varaformanns Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. Innlent 12. febrúar 2026 16:09
Strætó fyrir sum börn, ekki öll Við fjárhagsáætlunarvinnu Hafnarfjarðarbæjar síðustu fjögur ár lagði ég fram tillögu að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði fargjöld hafnfirskra barna í strætó. Skoðun 11. febrúar 2026 16:02
Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Ráðamenn og verktakar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýju uppbyggingarverkefni í Hafnarfirði þar sem reistar verða tæplega fjögur hundruð íbúðir, þar á meðal þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán. Innlent 10. febrúar 2026 17:42
Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Nemendur Víðistaðaskóla í Hafnarfirði frumsýna uppsetningu á söngleiknum Mamma Mía á föstudaginn með fimmtíu manna leikhópi. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa setið sveittir við að smíða leikmynd og búninga. Menning 10. febrúar 2026 11:02