Gunnhildur Edda ráðin framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2023 13:33 Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir. Aðsend Stjórn Handverks og hönnunar hefur ákveðið að ráða Gunnhildi Eddu Guðmundsdóttur í starf framkvæmdastjóra sjálfseignarstofnunarinnar. Gunnhildur Edda tekur við starfinu af Sunnevu Hafsteinsdóttur.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Handverk og hönnun. Þar kemur fram að Handverk og hönnun hafi verið stofnað árið 1994 sem verkefni þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis en orðið að sjálfseignarstofnun árið 2007. „Meginmarkmið Handverks og hönnunar er að stuðla að eflingu handverks, listiðnaðar og hönnunar, og að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi. Edda tekur við keflinu af Sunnevu Hafsteinsdóttur sem sagði starfi sínu lausu fyrr í ár. Sunneva hefur sinnt hlutverki framkvæmdastjóra um árabil við góðan orðstír. Edda útskrifaðist með BA gráðu í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og lauk meistaragráðu í hönnun frá háskólanum í Gautaborg 2015. Hún starfaði sem fatahönnuður á árunum 2009-2013 þegar hún stofnaði og rak fatahönnunarfyrirtækið Shadow Creatures ásamt systur sinni. Hún var einnig ein af stofnendum verslunarinnar KIOSK í Reykjavík. Edda hefur mjög fjölbreytta reynslu í menningartengdri stjórnun og starfaði t.d. sem umsjónarmaður Listasalar Mosfellsbæjar 2011-2012, verkefnastjóri Artótek 2016-2017 og skipulagði og stjórnaði árlegum alþjóðlegum tónlistarhátíðum sem haldnar voru í Reykjavík 2016 – 2021,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Tíska og hönnun Handverk Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira