Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2026 11:47 Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Sýn sakar starfsmenn Rúv um að hafa matað ráðuneytið á röngum tölfræðigögnum við undirbúning breytinga á lögum um Ríkisútvarpið. Sýn telur að starfsmenn RÚV hafi matað menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið á sérvöldum og röngum tölfræðigögnum við undirbúning frumvarps um tekjuöflun Ríkisútvarpsins. Félagið segir ráðuneytið ekki hafa haft undir höndum skýrsluna sem það telur samanburð í frumvarpsdrögunum byggja á. RÚV hafi neitað að afhenda hana.
Þetta kemur fram í umsögn Sýnar sem barst í Samráðsgátt stjórnvalda 12. október. Frumvarpsdrögunum um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið er ætlað að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Lagt er til að ríkisframlag verði skert um fjárhæð sem svarar til tíu prósenta af verðleiðréttu meðaltali auglýsingatekna undanfarinna fjögurra ára. Auglýsingatekjur umfram 2,8 milljarða króna komi einnig til frádráttar ríkisframlagi. Sýn gagnrýnir undirbúning þessara breytinga og telur eftirlit Fjölmiðlanefndar með starfsemi RÚV hafa brugðist. Segja ráðuneytið ekki hafa haft skýrsluna Sýn óskaði eftir að ráðuneytið afhenti lokaða útgáfu skýrslu Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, á grundvelli upplýsingalaga. Félagið gekk út frá því að samanburður í greinargerð frumvarpsdraganna byggði á henni. Samkvæmt umsögninni svaraði ráðuneytið 8. október að það hefði ekki skýrsluna undir höndum. Hún væri lokuð og aðeins aðgengileg RÚV vegna aðildar þess að EBU. Ráðuneytið hefði jafnframt upplýst að RÚV hefði neitað að afhenda skýrsluna og því gæti það ekki veitt aðgang að henni. Sýn telur þetta vekja alvarlegar spurningar um vinnubrögð og hlutlægni við undirbúning frumvarpsins. „Allt bendir til þess að starfsmenn RÚV hafi matað ráðuneytið á sérvöldum og beinlínis röngum tölfræðigögnum, enda kemur berum orðum fram í frumvarpsdrögunum að haft hafi verið samráð við RÚV við samningu frumvarpsins.“ Telja tölunum ruglað saman Í greinargerð frumvarpsdraganna segir að tæplega áttatíu prósent almannaþjónustumiðla í Evrópu, sem eigi aðild að EBU, séu fjármögnuð með sambærilegum hætti og RÚV, með opinberum framlögum og viðskiptatekjum. Sýn telur þetta ranga túlkun á tölunum. Félagið segir opinbera útgáfu EBU-skýrslunnar sýna að um 78 prósent samanlagðra tekna miðlanna komi úr opinberum sjóðum. Það sé annað en að áttatíu prósent miðlanna séu fjármögnuð með sambærilegum hætti og RÚV. Telja RÚV stýra upplýsingagjöfinni Sýn lýsir vinnubrögðunum sem stofnanatöku. Með því á félagið við að RÚV stýri upplýsingunum sem berast stjórnvaldinu sem á að setja starfsemi þess skorður. Félagið telur RÚV þannig hafa komið í veg fyrir eðlilega og rétta upplýsingagjöf til þeirra sem semja frumvarpið, keppinauta og almennings. Sýn segir undanþágur sem RÚV hafi fengið frá takmörkunum á starfseminni jafnframt bera merki um að þetta hafi viðgengist lengi. Sýn beinir sambærilegri gagnrýni að Fjölmiðlanefnd. Félagið segir nefndina ekki hafa tekið upp eitt einasta mál að eigin frumkvæði á árunum 2022 til 2025 um fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði. Þá telur Sýn að nefndin hafi gefist upp á sjálfstæðu eftirliti með því hvernig RÚV sinni almannaþjónustuhlutverki sínu. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Ríkisútvarpið Sýn Fjölmiðlar Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Sjá meira