Fyrst íslenskra löggiltra endurskoðenda til að verða meðeigandi stórs endurskoðunarfyrirtækis erlendis Atli Ísleifsson skrifar 11. júní 2020 11:16 Bryndís Símonardóttir. FLE
Bryndís Símonardóttir varð um síðustu mánaðamót fyrst íslenskra löggiltra endurskoðenda til að gerast meðeigandi (partner) hjá einum af fjórum stóru endurskoðunarfyrirtækjunum annars staðar en á Íslandi. Í tilkynningu frá Félagi íslenskra endurskoðenda segir að hin 36 ára Bryndís hafi orðið meðeigandi hjá Deloitte í Danmörku, en hún er löggiltur endurskoðandi bæði í Danmörku og hér heima. Meðeigendur hjá Deloitte í Danmörku eru nú 242. „Ferlið sem Bryndís gekk í gegnum hófst á kynningu á árinu 2018 fyrir helstu stjórnendum endurskoðunarsviðs Deloitte. Hún var svo valin í meðeigendaferli sem er kallað HPP (High Potential Program), þar sem 20-25 starfsmenn sem stefna að því að verða meðeigendur eru valdir árlega. Í þessu ferli er fyrst og fremst lögð áhersla á mannlega þáttinn til að styrkja einstaklinginn í stjórnendahlutverkinu, bæði andlega og líkamlega. Þeir sem komast í gegnum þetta ferli leggja fram umsókn um stöðu partners og viðskiptaáætlun sem rökstyður á hvaða forsendum sú ætti að verða niðurstaðan. Eftir yfirferð stýrihóps, kynnti Bryndís viðskiptaáætlun sína fyrir stjórnendum Deloitte. Eftir þá kynningu var niðurstaðan sú að Bryndísi var boðið að verða meðeigandi í fyrirtækinu,“ segir í tilkynningu frá FLE. Stóru endurskoðunarfyrirtæki heims eru Deloitte, PricewaterhouseCoopers (PwC), Ernst & Young (EY) and KPMG.
Vistaskipti Tímamót Mest lesið Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent