
Vegagerð

Gera tilraunir með skafrenningsmæli
Tilraunir hafa verið gerðar með skafrenningsmæli á Steingrímsfjarðarheiði í vetur en vonir standa til að mælirinn komi til með að nýtast við að meta snjóflóðahættu.

Nýr Grindavíkurvegur vonandi lagður til frambúðar
Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir óvissu ríkja um hraunrennsli í átt að Suðurstrandavegi þrátt fyrir að útlitið sé ágætt sem stendur. Unnið er að lagningu nýs Grindavíkurvegar sem hann vonar að verði til frambúðar.

Ferðin yfir nýja Ölfusárbrú mun kosta 500 krónur
Kostnaður við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar austan við Selfoss verður væntanlega um fjórtán milljarðar króna en honum verður mætt með vegjöldum en reiknað er með að ferðin muni kosti fimm hundruð krónur á bíl. Áfram verður hægt að aka ókeypis yfir núverandi Ölfusárbrú.

Hefðu viljað sjá fleiri tilboð í Ölfusárbrú en fagna því sem barst
Forstjóri Vegagerðarinnar segir vonbrigði að aðeins eitt tilboð hafi borist í hönnun og byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá. Hún fagnar því þó að tilboð hafi borist.

Aðeins eitt tilboð barst í byggingu brúar yfir Ölfusá
ÞG verktakar ehf. var eina fyrirtækið sem gerði tilboð í hönnun og byggingu brúar yfir Ölfusá. Tilboð voru opnuð í dag. Fimm aðilar höfðu lýst yfir áhuga á verkefninu og höfðu útboðsgögn til skoðunar.

Óvissa um útboð næsta áfanga á Dynjandisheiði
Útboð þriðja áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði er í óvissu. Til stóð að bjóða verkið út í febrúar en núna fást óljós svör frá Vegagerðinni um hvort búið sé að fresta útboðinu og hve lengi því muni seinka.

Ljúkum við hringveginn!
Árið 1974 var veglagningu hringinn í kringum landið lokið og hringvegurinn vígður með pompi og prakt. Árið 2019 var síðan lokið við að leggja bundið slitlag hringin í kringum landið og þeim áfanga fagnað með ögn minna pompi og prakt.

Tvær göngu- og hjólabrýr koma yfir Elliðaár í Víðidal
Framkvæmdir vegna nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hófust í síðustu viku. Brúin rís í Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks. Þetta er önnur brúin sem byggð er á sama tíma í Víðidal.

Vinna hafin við göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár
Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist á þessum kafla í Víðidal. Brúarsmíðin er einn verkþátta Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, sem Suðurverk og Loftorka annast.

Grindavíkurvegur opnaður á nýjan leik
Búið er að opna leið um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut að nýrri vegtengingu að Bláa lóninu sunnan varnargarðs. Nýr hluti Bláalónsvegar er allur innan varnargarðsins. Þessi leið er öllum opin en lokað er til Grindavíkur nema þeim sem um mega fara.

Í vörn fyrir hálendið: Andmæli við hugmyndir um endurnýjun Kjalvegar
Í ljósi þingsályktunartillögu nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins frá síðasta hausti um endurnýjun Kjalvegar, sem hefur vakið athygli og umræðu, finnst mér mikilvægt að koma á framfæri afstöðu minni - ég er algjörlega andvígur þessari tillögu.

Einn dregið sig úr útboðinu vegna Ölfusárbrúar og fleiri að íhuga það
Að minnsta kosti einn aðili af fimm hefur dregið sig formlega úr tilboðsferlinu vegna byggingar Ölfusárbrúar og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis eru fleiri að íhuga að gera slíkt hið sama.

Ökumenn stoppi stutt á nýjum vegi yfir heitt hraun
Unnið er að gerð nýs vegar innan varnargarðanna við Svartsengi sem opnar leið til Grindavíkur og í starfsemi í Svartsengi, þar á meðal Bláa lónið. Hraun fór yfir hluta Grindavíkurvegar og Bláalónsvegar í síðustu viku. Með nýju vegtengingunni verður hægt að fara frá Grindavíkurvegi að Bláalónsvegi sem tengist inn á Nesveg.

Dagur svarar fyrir sig varðandi dýrari Fossvogsbrú
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir eðlilegt að hækkun á kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar sé sett í samhengi við samgönguverkefni víða um land af hendi ríkisins.

Vegagerð yfir hraunið er lokið
Framkvæmdir næturinnar við hjáveitulögn Njarðvíkuræðar gengu vel og örugglega fyrir sig samkvæmt HS Orku. Vegur liggur nú yfir heitt hraunið. Þjónusta á Suðurnesjum verður skert næstu daga en fyrirkomulag skólahalds er til skoðunar.

Unnið að viðgerð og vegagerð í alla nótt
„Þetta gekk vel. Það var tíðindalítið þegar kemur að eldgosinu en það hefur mikil vinna farið fram í nótt,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um fregnir næturinnar.

Samgöngumál í Mýrdal
Þann 29. janúar s.l. rann út frestur til að gera athugasemdir til Skipulagsstofnunar vegna umhverfisskýrslu VSÓ um breytta veglínu í Mýrdal.

Vegagerð á villigötum
Í fjölmiðlum undanfarna daga hefur verið töluverð umfjöllun um Fossvogsbrú því samkvæmt nýjustu áætlunum er verðmiðinn á brúnni orðinn 8,8 milljarðar króna og hefur allavega fjórfaldast frá því lagt var af stað.

Ný mislæg gatnamót í hrauninu fyrir framtíðar byggingarsvæði
Gerð nýrra mislægra gatnamóta í hrauninu milli Straumsvíkur og Hvassahrauns fylgir breikkun Reykjanesbrautar, sem hófst fyrr í vetur. Gatnamótunum er ætlað að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar, að því er fram kom í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar.

Verktakar sjá fram á metár í útboðum
Met verður slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár, miðað við þau áform sem kynnt voru á Útboðsþingi í dag. Aðgerðir vegna Grindavíkur gætu þó sett strik í reikninginn en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að frestun stórframkvæmda gæti orðið ein af mótvægisaðgerðunum.

Kalla eftir jarðgöngum: Flestir íbúar hafa fests í snjóflóði eða rétt sloppið
Súðavíkurhlíð var lokað fyrirvaralaust í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Sveitarstjóri segir bíla hafa verið báðu megin við flóðið og kallar eftir jarðgöngum til að auka öryggi íbúa.

Miklar framkvæmdir boðaðar á árinu
Opinberir verkkaupar boða ríflega tvöföldun í útboðum verklegra framkvæmda. Umfangsmestu útboðin boða Landsvirkjun, Vegagerðin og Nýr Landspítali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greiningu Samtaka iðnaðarins vegna Útboðsþings 2024 sem fram fer í dag.

Fleiri banaslys í boði Vegagerðarinnar?
Þegar janúar er rétt hálfnaður hafa fimm manns látist í bílslysum á þjóðvegum landsins. Slysið við Skaftafell hinn 12. janúar vakti sérstaka athygli mína, enda keyri ég nær vikulega þessa leið austur í Suðursveit. Í slysinu létu tvær manneskjur lífið og sex aðrir slösuðust. Aðkoma á slysstað var með því ljótara sem þaulreyndir viðbragðsaðilar hafa séð.

Nýjar sprungur myndast og þær eldri stækka
Margar sprungur hafa myndast í og við Grindavík í jarðhræringum síðustu sólarhringa. Eldri sprungur, sem unnið hafði verið að því að fylla upp í og gera við, hafa einnig stækkað.

Skorar á Fjarðabyggð að draga til baka stuðning við jarðgöng
Forsvarsmaður undirskriftasöfnunar um breytta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum, Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson, skorar á bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar að draga til baka stuðning Fjarðabyggðar innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi við Fjarðarheiðargöng. Jafnframt hvetur hann þá til þess að fara fram á nýja úttekt á gangnakostum á Mið-Austurlandi.

Tíu tonna hámark á Suður- og Vesturlandi
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður ásþungi ökutækja takmarkaður við tíu tonn bæði á Suðurlandi og Vesturlandi.

„Bílstjórinn stendur sig mjög vel en þessar aðstæður eru óviðunandi“
Íbúi Borgarbyggðar segir vegi ekkert hafa verið hálkuvarða þrátt fyrir yfirlýsingar sveitarfélagsins um að í forgangi séu vegir þar sem er skólaakstur. Skólarútan ferðist löturhægt um fljúgandi hálar ósaltaðar brekkur.

„Hver ber ábyrgð á vegum þegar þeir eru orðnir dauðagildra?“
Sumarhúsaeigandi við Jarðlangsstaði í Borgarbyggð segir hvorki sveitarfélagið né Vegagerðina vilja taka ábyrgð á hálkuvörnum á veginum sem leiðir að sumarhúsabyggðinni. Í henni eru meira en 150 sumarbústaðir og segir hann flughálku hafa verið á veginum í fleiri daga. Litlu megi muna að þar verði mannskæð bílslys nánast daglega.

Til hvers eru markmið?
Undanfarna daga og vikur hef ég lesið yfir umhverfismatsskýrslu Vegagerðinnar vegna færslu hringvegar um Mýrdal sem nú er í kynningu. Þar leggur Vegagerðin til leið norðan við Víkurþorp, svokallaðan valkost 4, vitandi það að sú leið komi ekki til greina hjá Mýrdalshreppi.

Vegagerðin tekur við rekstri Sævars
Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.