Innlent

Mega ekki teygja starf­semi tjaldsvæðisins yfir götuna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Tjaldsvæðið er á Egilsstöðum.
Tjaldsvæðið er á Egilsstöðum. Vísir/Vilhelm

Forsvarsmenn tjaldsvæðisins á Egilsstöðum við Kaupvang mega ekki teygja starfsemi sína vestur yfir götuna. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Austurlands eftir kæru.

Eigendur að Skjólvangi 2, sem stendur við hlið tjaldsvæðisins við Kaupvang, kærðu ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands um að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17. Starfsleyfið gaf rekstraraðilum leyfi til þess að nýta svæðið „vestan Kaupvangs“ frá 1. júní til 31. ágúst þegar hið eiginlega tjaldsvæði er fullnýtt.

Í Skjólvangi er starfsemi Skattsins á Egilsstöðum. Í kærunni segir eigandi hússins að hann hafi orðið fyrir margvíslegum og neikvæðum áhrifum af rekstri tjaldsvæðisins. Við útgáfu nýja starfsleyfisins sé tjaldsvæðið stærra en heimild til rekstrar hafi áður verið. Stærra tjaldsvæðið liggi því að lóð eigandans og er það ekki tilgreint sem tjaldsvæði í aðal- og deiliskipulagi.

Einnig hafi salernisgámur verið á svæðinu frá því um vorið 2025 án nokkurs samráðs eða kynningar af grenndarrétarlegum toga. Hann hafi einnig verið staðsettur nærri inngangi í hús á lóð eigandans, sem gera má ráð fyrir að sé húsnæði Skattsins.

Engar kvartanir

Í máli Heilbrigðiseftirlits Austurlands kemur fram að ákvörðunin hafi verið byggð á umsögn frá sveitarfélaginu Múlaþingi. Umrætt svæði sé í eigu Múlaþings og sé óbyggð lóð. Það hafi áður verið notað sem tjaldsvæði en sé tilgreint sem miðsvæði í deiliskipulagi og séu fyrirætlanir um að það rísi byggingar.

Engar skráðar kvartanir vegna ónæðis hafi borist embættinu frá öðrum en kæranda við meðferð málsins. Fullyrðingar um ónæði, rusl, mikla umferð og sjónmengun hafi því ekki verið studdar með gögnum og því hafi ekki verið tilefni til að synja umsókn um starfsleyfi.

Niðurstaða nefndarinnar var sú að tjaldsvæðið sjálft væri í samræmi við skipulag en viðbótarsvæðið vestan við Kaupvang væri það ekki. Því var ákveðið að fella starfsleyfið sem náði til viðbótarsvæðisins úr gildi á meðan hitt héldist óbreytt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×