Sport

Fremsta af­reks­fólk Ís­lands fær 600 þúsund í verk­taka­laun

Sindri Sverrisson skrifar
Langt og strangt bataferli liggur fyrir Eygló sem fagnar því þó að niðurstaða fékkst í það sem var að hrjá hana.
Langt og strangt bataferli liggur fyrir Eygló sem fagnar því þó að niðurstaða fékkst í það sem var að hrjá hana. Vísir/Sigurjón

Íþróttamaður ársins 2025 er í hópi þeirra þriggja sem hljóta hæstu starfslaun íslensks afreksíþróttafólks næstu 14 mánuði, eða 600 þúsund krónur á mánuði. Um verktakagreiðslur er að ræða.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tilkynnti um 33 manna hóp sem hljóta mun starfslaun afreksíþróttafólks frá 1. nóvember til ársloka 2027.

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir, íþróttamaður ársins 2025, Hilmar Örn Jónsson sleggjukastari og Snæfríður Sól Jórunnardóttir sundkona hljóta hæstu launin eða 600.000 krónur hvert á mánuði.

Fjórtán einstaklingar og tvö danspör hljóta svo laun úr B-flokki eða 300.000 krónur á mánuði og fjórtán einstaklingar eru í C-flokki og hljóta 150.000 krónur á mánuði.

Alls bárust umsóknir frá 22 sérsamböndum fyrir 102 einstaklinga en 33 hljóta laun og koma þeir úr 11 íþróttagreinum.

Þetta er annað árið þar sem íslenskt afreksíþróttafólk í fremstu röð fær greidd laun fyrir sína vinnu.

Afreksíþróttafólk á starfslaunum til loka árs 2027:

A-flokkur

  • Hilmar Örn Jónsson – Frjálsíþróttir
  • Eygló Fanndal Sturludóttir – Lyftingar
  • Snæfríður Sól Jórunnardóttir – Sund

B-flokkur

  • Nikita Bazev og Hanna Rún Bazev Óladóttir – Dansíþróttir
  • Nicolo Barbizi og Sara Rós Jakobsdóttir – Dansíþróttir
  • Dagur Kári Ólafsson – Fimleikar
  • Thelma Aðalsteinsdóttir – Fimleikar
  • Ágúst Ingi Davíðsson – Fimleikar
  • Hildur Maja Guðmundsdóttir – Fimleikar
  • Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir – Frjálsíþróttir
  • Sindri Hrafn Guðmundsson – Frjálsíþróttir
  • Baldvin Þór Magnússon – Frjálsíþróttir
  • Erna Sóley Gunnarsdóttir – Frjálsíþróttir
  • Gunnlaugur Árni Sveinsson – Golf
  • Kristín Þórhallsdóttir – Kraftlyftingar
  • Arnór Logi Uzureau – Skotíþróttir
  • Hákon Þór Svavarsson – Skotíþróttir
  • Andri Nikolaysson Mateev – Skylmingar
  • Snorri Dagur Einarsson – Sund

C-flokkur

  • Elísabet Rut Rúnarsdóttir – Frjálsíþróttir
  • Daníel Ingi Egilsson – Frjálsíþróttir
  • Hulda Clara Gestsdóttir – Golf
  • Guðný Björk Stefánsdóttir – Lyftingar
  • Matthías Kristinsson – Skíði
  • Anna Kamilla Hlynsdóttir – Skíði
  • Jón Erik Sigurðsson – Skíði
  • Bjarni Þór Hauksson – Skíði
  • Guðmundur Leo Rafnsson – Sund
  • Jóhanna Elín Guðmundsdóttir – Sund
  • Einar Margeir Ágústsson – Sund
  • Leo Anthony Speight – Taekwondo



Fleiri fréttir

Sjá meira


×