Innlent
112 113 114 115 116 117 118 119 120 … 334 ›
Latibær tilnefndur til Emmy verðlauna Magnús Scheving og Jonathan Judge voru í dag tilnefndir til Emmy verðlaunanna fyrir leikstjórn Latabæjarþáttanna. Þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlauna en í fyrra var Julianna Rose Mauriello, bandaríska stúlkan sem leikur Sollu Stirðu, tilnefnd sem fyrir leik sinn. Innlent 8.2.2007 17:49
Jóhanna undrast synjun ríkisstjórnar Jóhanna Sigurðardóttir segir frá því á bloggsíðu sinni í dag að forsætisráðuneytið hafi synjað beiðni hennar um að fá afhent öll þau gögn af ríkisstjórnarfundum þar sem málefni Byrgisins voru til umræðu. Innlent 8.2.2007 17:39
Milestone tekur 16,5 milljarða lán Fjárfestingafélagið Milestone ehf. hefur gengið frá lánasamningi við alþjóðlega fjárfestingabankann Morgan Stanley um töku láns fyrir 16,5 milljarða krónur til þriggja ára. Lánið er veitt í tengslum við endurfjármögnun félagsins. Viðskipti innlent 8.2.2007 14:27
Exista kaupir í Sampo í Finnlandi Fjármálafyrirtækið Exista hefur keypt rúmlega 15 prósent hlut í finnska tryggingafélaginu Sampo Oyj. Áætlað meðalverð hlutanna í viðskiptunum nam 20,5 evrum á hlut en samkvæmt lokagengi hlutabréfa í Sampo í gær er markaðsvirði hlutanna um 1,9 milljarðar evra, eða um 170 milljarðar króna. Stjórn Exista hefur skuldbundið sig til að gefa út nýtt hlutafé í Exista í tengslum við kaupin. Viðskipti innlent 8.2.2007 10:24
Uppsett áskriftarverð Sýnar vegna HM réttlætanlegt Samkeppniseftirlitið telur kostnaðarforsendur hafa réttlætt uppsett verð sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar þegar val stóð á milli þess að kaupa áskrift þann tíma sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð yfir í fyrrasumar eða kaupa áskrift að Sýn til lengri tíma. Viðskipti innlent 8.2.2007 10:04
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Seðlabanki Íslands ákvað í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 14,25 prósentum. Þetta er í takt við spár innlendra sem erlendra greinenda sem spáðu óbreyttum vöxtum. Viðskipti innlent 8.2.2007 08:56
Framtíðarlandið býður ekki fram í vor Á fundi Framtíðarlandsins í kvöld voru greidd atkvæði um það hvort ætti að bjóða fram í alþingiskosningum í vor. Niðurstaðan var að 96 sögðu nei og 92 sögðu já. Því hefur verið ákveðið að bjóða ekki fram. Þar að auki þurfti aukinn meirihluta, eða 2/3 atkvæða, til þess að samþykkja tillöguna. Tillagan um framboð í komandi alþingiskosningum var því felld. Innlent 7.2.2007 23:36
Erilsamt hjá lögreglunni í gær Lögreglan á höfuðbrogarsvæðinu setti upp myndavél við Dalasmára í Kópavogi í gær. Brot fimmtán ökumanna voru mynduð. Meðalhraði hinna brotlegu var tæpir 46 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en sá hraðast ók var mældur á tvöföldum hámarkshraða. Eftirlit lögreglunnar í Dalasmára kom í kjölfar ábendinga frá íbúunum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu tók lögreglan tuttugu og fimm ökumenn fyrir hraðakstur. Innlent 7.2.2007 22:51
Siv leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi Siv Friðleifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson og Una María Óskarsdóttir skipa þrjú efstu sæti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Þetta var niðurstaða aukakjördæmisþings í kvöld. Þingið hófst kl. 20:00 en þar var tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir komandi þingkosningar borin upp til samþykktar. Listinn var samþykktur án breytinga. Þess er gaman að geta að Steingrímur Hermannsson skipar heiðurssætið á listanum. Innlent 7.2.2007 22:38
Enn rökrætt um framboð Framtíðarlandsins Mjög fjölsóttur fundur Framtíðarlandsins stendur enn yfir á Hótel Loftleiðum. Mörg hundruð manns mættu á fundinn en gildan atkvæðisrétt höfðu einungis þeir sem gerst höfðu félagar fyrir tólf á hádegi á mánudaginn var. Á fundinum var borin upp tillaga stjórnar um að boðið yrði fram í nafni Framtíðarlandsins í næstu alþingiskosningum og drög að stefnu þar að lútandi var lögð fram. Innlent 7.2.2007 21:59
Konan sem lýst var eftir er fundin Konan sem lögregla höfuðborgarsvæðisins lýsti eftir í kvöld, Guðríður Bjarney Ágústsdóttir, er fundin. Hennar hafði verið saknað frá því fyrr í kvöld. Lögreglan vill koma þökkum á framfæri til þeirra sem aðstoðuðu við leitina. Innlent 7.2.2007 21:55
Of seint að læra að prjóna Það kom flatt upp á marga í íslenska flugheiminum fyrir 22 árum þegar Arngrímur Jóhannsson sagði upp stöðu sinni sem yfirflugstjóri Arnarflugs, stofnaði sitt eigið flugfélag, og keypti gamla Boeing þotu. Nú stendur hann enn á tímamótum, kominn í nýtt félag, og er í fyrsta sinn á ferlinum að láta smíða fyrir sig þotur. Innlent 7.2.2007 20:05
Fulltrúi forseta mætti ekki á fund utanríkismálanefndar Hvorki fulltrúi forsetaembættisins né utanríkisráðuneytisins mætti á fund utanríkismálanefndar í morgun, vegna setu forsetans í þróunarráði Indlands. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, segir að utanríkisráðherra muni koma á fund nefndarinnar síðar. Innlent 7.2.2007 19:45
Orðaskak á þingi vegna ummæla Frjálslyndra Þingmenn Frjálslynda flokksins gerðu harða hríð að Sæunni Stefánsdóttur, þingmanni Framsóknarflokks og formanni Innflytjendaráðs, í upphafi þingfundar í morgun, fyrir að halda því fram að Frjálslyndi flokkurinn ali á mannfyrirlitningu og hatri í garð útlendinga í útvarpserindi í gær. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra kom félaga sínum til varnar og sagði frjálslyndi Frjálslynda flokksins komið langt frá upprunalegri merkingu orðsins. Innlent 7.2.2007 19:41
Fiskimjölsverksmiðju við Krossanes lokað Aldrei framar munu menn finna peningalykt á Akureyri. Ísfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að loka fiskimjölsverksmiðjunni á Krossanesi og eru viðbrögð bæjarbúa ekki öll á sama veg. Innlent 7.2.2007 19:25
Hætt að miða við fyrri greiðslur Hætt hefur verið að miða við fyrri greiðslur í fæðingarorlofi, þegar næsta barn fæðist innan þriggja ára, en umboðsmaður alþingis telur það ekki samræmast lögum. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á alþingi í dag. Magnús Stefánsson sagði, í svari við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, að starfshópur væri að skoða framkvæmd laganna í kjölfar niðurstöðu umboðsmanns og hann styddi þá breytingu sem þegar hefði verið gerð. Innlent 7.2.2007 19:19
3 milljónir króna í miskabætur raunhæfar Saga drengjanna í Breiðavík sýnir hvernig samfélagið getur framleitt afbrotamenn, segir Guðrún Ögmundsdóttir. Hún segir ekki óraunhæft að borga fórnarlömbum ofbeldis í Breiðavík þrjár milljónir í miskabætur fyrir þjáningar sínar. Innlent 7.2.2007 19:11
Leggst gegn framboði í nafni Framtíðarlandsins Ómar Ragnarsson einn forsprakka Framtíðarlandsins segist leggjast gegn framboði til alþingiskosninga í nafni Framtíðarlandsins. Það sé ekki ráðlegt að stærstu umhverfissamtök landsins bjóði fram í eigin nafni. Búist er við miklum átökum á fundi Framtíðarlandsins í kvöld þar sem ákveðið verður hvort ráðist verður í framboð fyrir alþingiskosningar. Innlent 7.2.2007 18:33
Forsætisráðherra boðar lækkun skatta á fyrirtæki Forsætisráðherra boðaði einföldun á skattkerfinu og lækkun skatta á fyrirtæki til að auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á viðskiptaþingi í dag. Formaður viðskiptaráðs segir hvalveiðar Íslendinga geta sett árangur útrásarfyrirtækjanna í uppnám. Innlent 7.2.2007 18:15
Eldur í geymslu á Hótel Höfn Rétt eftir klukkan fimm í dag varð elds vart í geymslu í kjallara Hótels Hafnar. Brunakerfið lét vita af eldinum en erfiðlega gekk að staðsetja eldinn vegna reyks. Reykkafari var sendur inn til þess að staðsetja hann. Slökkvilið Hafnar er enn að störfum á hótelinu. Einhverjar glæður leynast þar enn og verið er að reykræsta hótelið. Innlent 7.2.2007 17:55
Samfylkingin vill huga að sprotafyrirtækjum Á blaðamannafundi í dag kynnti Samfylkingin nýja stefnumótun í atvinnumálum. Þær unnu til verðlauna á nýafstöðnu Sprotaþingi Samtaka sprotafyrirtækja og Samtaka iðnaðarins sem haldið var á föstudag. Þar greiddu fundarmenn atkvæði um tillögur stjórnmálaflokkanna og urðu tillögur Samfylkingarinnar í þremur efstu sætunum. Innlent 7.2.2007 17:43
Forsætisráðherra boðar skattabreytingar Ákveðið hefur verið að leggja af skattlagningu á söluhagnað fyrtækja af hlutabréfum. Geir H. Haarde forsætisráðherra greindi frá þessu á Viðskiptaþingi 2007 í dag. Viðskipti innlent 7.2.2007 16:05
Ísland í 19. sæti á ímyndarlista Ísland er í nítjánda sæti á lista þjóða þar sem mældur er styrkur ímyndar þeirra út frá stjórnsýslu, menningu, ferðamennsku, útflutningi og fleiri þáttum. Listinn nefnist Anholt Nation Brands Index, nefndur eftir Simon Anholt sérfræðingi í ímyndarmálum þjóða sem kynnti niðurstöðurnar á Viðskiptaþingi 2007 í dag. Viðskipti innlent 7.2.2007 15:21
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar dregst saman Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum skilaði 335 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 442 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrirtækisins dróst því saman sem nemur 107 milljónum króna. Þar af nam hagnaðurinn 248 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2006. Viðskipti innlent 7.2.2007 09:07
Kaupa sex Airbus-breiðþotur Flugfélag Arngríms Jóhannssonar og Hafþórs Hafsteinssonar, Avion Aircraft Trading, samdi í dag um smíði sex Airbus-breiðþotna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt flugfélag kaupir nýjar Airbus-þotur beint frá verksmiðjunum. Innlent 6.2.2007 19:15
Í gæsluvarðhald eftir Kompás Hálffimmtugur karlmaður var í héraðsdómi í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald í eina viku. Maðurinn er einn af þeim fimm sem fóru í íbúð, sem Kompás hafði tekið á leigu, í þeirri von að hitta þrettán ára stúlku. Innlent 6.2.2007 18:58
Fjármagnstekjufólk greiði til samfélagsins Skattkerfið þarf að ná til fólks sem hefur fjármagnstekjur en greiðir ekki venjulega skatta, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Á þriðja þúsund landsmanna hefur eingöngu fjármagnstekjur og borgar ekkert til sveitarfélaganna. Innlent 6.2.2007 18:52
Húsnæðislán bankanna hækkað fasteignaverð Vextir á íbúðalánum eru hærri nú en þeir voru fyrir innreið bankanna á húsnæðislánamarkaðinn. Innkoma bankanna var mislukkuð segir sjálfstæður fjármálaráðgjafi. Innlent 6.2.2007 18:00
Varnarliðið skuldar íslenskum fyrirtækjum Íslensk fyrirtæki kvarta undan því að hafa ekki fengið greitt fyrir vörur hjá Varnarliðinu, um eða yfir hálfu ári eftir að herinn fékk vörurnar. Reikningarnir eru ýmist sendir til höfuðstöðva hersins á Ítalíu eða í Bretlandi. Innlent 6.2.2007 18:44
Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd. Innlent 6.2.2007 17:31