Íþróttir
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 334 ›
Tveggja marka sigur á Tékkum Íslendingar höfðu betur gegn Tékkum í æfingaleik þjóðanna í handbolta sem fram fór í Laugardalshöllinni í dag. Lokatölur urðu 34-32 og náðu íslensku strákarnir þar með að hefna fyrir tapið fyrir Tékkum í gær. Handbolti 14.1.2007 17:37
Federer segir Nadal að breyta um stíl Svissneski tennisspilarinn Roger Federer telur að sinn helsti keppinautur, Spánverjinn Rafael Nadal, þurfi að breyta leikstíl sínum til að bæta sig sem tennisspilari í nánustu framtíð. Federer lætur ummælin falla aðeins degi áður en Opna ástralska meistaramótið í tennis hefst, þar sem flestir spá því að Nadal geti helst veitt þeim svissneska einhverja keppni. Sport 14.1.2007 17:04
Benitez hafnaði Real Madrid í sumar Rafael Benitez hafnaði boði um að gerast þjálfari Real Madrid síðasta sumar en frá þessu greindi stjórnarformaður Liverpool, Rick Parry, í morgun. Parry segir að Benitez hafi hugsað málið vandlega en að lokum ákveðið að halda áfram því starfi sem hann hafði byrjað á Anfield. Enski boltinn 14.1.2007 17:03
Ísland með forystu í hálfleik Ísland hefur fjögurra marka forystu, 18-14, gegn Tékkum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í æfingaleik liðanna í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið er að spila mun betur en það gerði í viðureign liðanna í gær. Handbolti 14.1.2007 16:52
Stallone stal senunni Bandaríski kvikmyndaleikarinn Silvester Stallone stal senunni á Goodison Park í dag þar sem leikur Everton og Reading fór fram. Stallone var sérstakur heiðursgestur Bill Kenwright, stjórnarformanns Everton á leiknum, og var leikarinn hylltur af áhorfendum á vellinum fyrir leikinn. Stallone fagnaði ógurlega þegar Andy Johnson skoraði jöfnunarmark Everton þegar skammt var eftir. Enski boltinn 14.1.2007 16:02
Jafnt hjá Everton og Reading Evrton og Reading skildu jöfn, 1-1, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem var að ljúka rétt í þessu. Það var Andy Johnson sem jafnaði leikinn fyrir heimamenn í Everton á 81. mínútu eftir mistök Marcus Hahnemann í marki gestanna. Enski boltinn 14.1.2007 15:41
Eggert býður í Ashley Young Allar líkur eru taldar á því að Watford samþykki tilboð upp á átta milljónir punda frá Eggert Magnússyni í framherjann Ashley Young. Watford hafði áður hafnað boði West Ham upp á sjö milljónir punda en staðfesti hefur verið að Eggert og félagar lögðu fram nýtt og endurbætt tilboð í gær. Enski boltinn 14.1.2007 15:07
Ekki spurning hvort heldur hvenær Að sögn Rick Parry, stjórnarformanns Liverpool, er það ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær auðkýfingarnir frá Dubai gangi frá kaupum á meirihluta í félaginu. Parry segir að verið að sé að ganga frá smáatriðum í kaupsamningum og að eigendaskiptin gætu gengið í gegn innan fárra daga. Enski boltinn 14.1.2007 14:50
Bullard á góðum batavegi Jimmy Bullard, miðvallarleikmaður Fulham, er á góðum batavegi eftir að hafa lent í hrottalegum hnémeiðslum strax í upphafi leiktíðar og útilokar knattspyrnustjórinn Chris Coleman ekki að Bullard spili með liðinu síðar á tímabilinu. Enski boltinn 14.1.2007 14:22
Reading komið yfir gegn Everton Reading er komið með forystu í viðureign sinni gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni en það var varnarmaðurinn Joleon Lescott sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er frá vegna meiðsla. Enski boltinn 14.1.2007 14:18
Robson lætur Beckham heyra það Gamli refurinn Bobby Robson gagnrýnir David Beckham harðlega í pistli sem hann skrifar í enska dagblaðið Daily Mail og birtist í morgun. Robson segir að ákvörðun Beckham um að fara til Bandaríkjanna sanni að hann hafi ekki lengur metnaðinn né lystina til að keppa á meðal þeirra bestu. Enski boltinn 14.1.2007 14:06
Beckham útilokar ekki landsliðið David Beckham hefur ekki gefið landsliðsferilinn með Englandi upp á bátinn þrátt fyrir að hann sé á leið í heldur lágt skrifuðu bandarísku atvinnumannadeildina. Beckham kveðst alltaf ætla að gefa kost á sér í landsliðið. Enski boltinn 14.1.2007 14:01
Jon Terry boðar uppreisn Fyrirliði Chelsea, John Terry, kveðst ætla að beita sér að fullum krafti í að halda Jose Mourinho hjá félaginu en hann hefur sterklega verið orðaður við að brottför frá Chelsea í lok leiktíðar. Terry boðar uppreisn á meðal leikmanna gegn stjórn félagsins. Enski boltinn 14.1.2007 13:31
10 þúsund fráköst hjá Garnett Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Körfubolti 14.1.2007 11:30
Inter setti met á Ítalíu Inter Milan setti í gærkvöld met í ítölsku A-deildinni þegar liðið vann sinn 12. leik í röð. Í gær var það Torino sem lá í valnum, 3-1, en Adriano, Zlatan Ibrahimovich og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter. Þjálfarinn Roberto Mancini vill ekki gera of mikið úr metinu. Fótbolti 14.1.2007 11:27
Vont tap hjá Barcelona “Við þurfum að vakna,” sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, eftir 3-1 tap liðsins gegn Espanyol í gærkvöldi. Barcelona hefur ekki náð að sigra í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni en er áfram í 2. sæti deildarinnar – a.m.k. um stundarsakir. Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 63 mínútur leiksins. Fótbolti 14.1.2007 11:09
Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. Enski boltinn 13.1.2007 20:06
Fyrsta tap Juve á tímabilinu Juventus tapaði sínum fyrsta leik í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag gegn Mantova á útivelli, 1-0. Sjálfsmark frá Robert Kovac réði úrslitunum í leiknum en við tapið fellur Juventus niður í 6. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á eftir Mantova. Fótbolti 13.1.2007 20:03
Stjarnan upp að hlið Valsstúlkna Stjörnustúlkur komust í dag upp að hlið Valsstúlkna á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta með því að leggja Hauka af velli á heimavelli sínum, 21-15. Um sannkallaðan toppslag var að ræða því fyrir leikinn voru liðin með jafnmörg stig. Valur, Stjarnan og Grótta hafa öll fengið 18 stig en Grótta hefur spilað tveimur leikjum meira en tvö fyrstnefndu liðin. Handbolti 13.1.2007 19:32
Mögnuð tilþrif í stjörnuleikjunum í dag Fullt var út úr dyrum í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í dag þar sem fram fóru hinir árlegu stjörnuleikir úrvalsdeildar karla og kvenna í körfubolta. Hjá körlunum höfðu erlendir leikmenn betur gegn þeim íslensku en hjá konunum laut Esso-liðið í lægra haldi fyrir Shell-liðinu. Körfubolti 13.1.2007 19:24
Walter Smith ver ákvörðun sína Walter Smith, frávarandi þjálfari skoska landsliðsins og nýráðinn þjálfari Glasgow Rangers í Skotlandi, hefur varið ákvörðun sína um að yfirgefa herbúðir landsliðsins til að snúa aftur á Ibrox. Smith segir að nánast allir knattspyrnustjórar í heiminum hefðu tekið sömu ákvörðun og hann. Fótbolti 13.1.2007 15:16
10 leikmenn Arsenal lögðu Blackburn Leikmenn Arsenal sýndu mikinn karakter með því að leggja Blackburn af velli á útivelli í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar, 2-0. Gilberto Silva var vikið af leikvelli strax á 12. mínútu leiksins en þrátt fyrir að vera manni fleiri átti Blackburn ekki roð í fríska leikmenn Arsenal. Kolo Toure og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. Fótbolti 13.1.2007 19:06
Íslendingar töpuðu fyrir Tékkum Íslenska landsliðið í handbolta beið lægri hlut, 29-27, í æfingaleik gegn Tékklandi í Laugardalshöllinni í dag. Íslenska liðið lék langt undir getu í leiknum en megin munurinn á liðunum lá í markvörslunni. Liðin mætast öðru sinni á morgun. Handbolti 13.1.2007 17:42
Beckham getur haft gríðarleg áhrif Koma David Beckham til LA Galaxy getur komið liðinu í hóp fremstu félagsliða veraldar, að því er Alexei Lalas, fyrrum landsliðsfyrirliði Bandaríkjanna og núverandi framkvæmdastjóri LA Galaxy, heldur fram. Fótbolti 13.1.2007 15:12
Ísland einu marki yfir í hálfleik Íslenska landsliðið í handbolta hefur forystu, 16-15, í æfingaleik liðsins við Tékkland sem fram fer í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið hefur verið nokkuð frá sínu besta í leiknum en jafnt hefur verið á nánast öllum tölum. Handbolti 13.1.2007 17:03
Man. Utd. gefur ekkert eftir Manchester United og Chelsea unnu bæði góða sigra í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Man. Utd. átti ekki í erfiðleikum með Aston Villa á heimavelli sínum og vann 3-1 og þá spilaði Chelsea sinn besta leik í langan tíma þegar það lagði Wigan af velli, 4-0. Íslendingaliðið West Ham missti unnin leik niður í jafntefli á síðustu stundu. Fótbolti 13.1.2007 16:55
Mourinho: Ekki lesa blöðin Jose Mourinho hefur hvatt stuðningsmenn Chelsea til að leiða hjá sér allar vangaveltur um framtíð sína hjá félaginu, en portúgalski stjórinn hefur ítrekað verið orðaður við brotthvarf úr stjórastólnum í vor. Mourinho vill enn ekki tjá sig efnislega um meint ósætti hans og stjórnar félagsins og segja spænsk dagblöð í morgun að umboðsmaður hans sé í viðræðum við Real Madrid. Fótbolti 13.1.2007 14:34
Man. Utd. að valta yfir Aston Villa Topplið Manchester United er að sýna allar sínar bestu hliðar í leik sínum við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, en Ji-Sung Park, Michael Carrick og Cristiano Ronaldo hafa skorað mörkin. Chelsea er einnig yfir gegn Wigan, 1-0, en það var Frank Lampard sem skoraði mark meistaranna. Fótbolti 13.1.2007 15:46
Heiðar byrjar hjá Fulham Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá Fulham þegar liðið sækir Eggert Magnússon og félaga hjá West Ham heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýju mennirnir hjá West Ham. Luis Boa Morte og Nigel Quashie, eru báðir í byrjunarliðinu ásamt Carlos Tevez. Fótbolti 13.1.2007 15:02
Öruggt hjá Liverpool Liverpool vann sannfærandi 3-0 útisigur á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem framherjarnir Dirk Kuyr og Peter Crouch sáu um að skora mörkin. Sá síðarnefndi skoraði tvívegis. Með sigrinum styrkir Liverpool stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar, fjórum stigum á undan Arsenal en fimm stigum á eftir Chelsea. Fótbolti 13.1.2007 14:48